Morgunn - 01.06.1963, Síða 41
MORGUNN
35
kvæmi heilans. Þeir munu segja, að heili og augu frú
Leonards hafi framleitt þennan huga, sem leitar síðan
uppi bækur í húsum fólks, sem hún þekkti sjálf ekki neitt.
En hversvegna sér þá enginn þennan heila og þessi augu að
verki hjá bókaskápunum? En sjálfir efnishyggjumenn-
h'nir fara fram á það við oss, að vér leggjum trúnað á
slík kraftaverk.
Ef vér leiðum nú hjá oss tilgátu efnishyggjumann-
anna, að heili og hugur sé óaðskiljanleg, og gerum ráð
fyrir að sálræn gáfa, miðilsgáfan — en engir framliðnir —
hafi komið fram með bókasönnunina, þá er þó eftir að
skýra það, að oftar en einu sinni var bókin, sem í miðils-
sambandinu var bent á, á tungumáli, sem frú Leonard
skildi ekki eitt orð í. Felur þá skyggnigáfan líka í sér
hæfileika til að þýða af erlendum tungumálum, sem hinn
skyggni sjálfur skilur ekkert í?
(Þessar bókasannanir, sem fram komu hjá frú Leonard,
voru að jafnaði í því fólgnar, að stjórnandi miðilsins
sagði tiltekinn látinn mann reyna að sanna sig með því,
að segja til um, að á tilteknum stað í heimili fundargests-
ins jarðneska væri bókaskápur, og í tiltekinni hillu væri
bók 2. 3. 4. 5. 6. o. s. frv. bók frá hægri, og á tiltekinni
blaðsíðu væri þetta og þetta lesmál). Á þessu fyrirbrigði
er einnig sú skýring hugsanleg, að einhver annar maður
gæti sagt til um þetta og frá honum væri vitneskjan komin
í huga miðilsins, sem var í dásvefni.
Sumir parapsychologar — og vera má að þeir hafi
rétt fyrir sér — gera ráð fyrir, að undir vissum kringum-
stæðum sé frú Leonard gædd almáttugum hæfileika til þess
að ná úr hugum jarðneskra manna endurminningum
þeirra um látinn mann, nákvæma lýsingu af honum, starfi
hans og hugðarmálum, meðan hann var á jörðu. En jafn-
vel þetta skýrir ekki bókasannanir hennar, vitneskju um
ákveðna bók í ákveðinni hillu meðal milljóna bókaskápa í
Englandi. Hinsvegar eru margir þeir, sem mjög hafa iðkað
þessar tilraunir og náþekkja þær, sannfærðir um, að hér