Morgunn - 01.06.1963, Page 81
MORGUNN
75
6. gr.
Aðalfundur skal haldinn í marz-mánuði ár hvert. Skal
boða aðalfund bréflega eða með auglýsingu í dagblöðum
í Reykj avík með minnst þriggja daga fyrirvara.
Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað og
meiri hluti fulltrúaráðs félagsins sækir fundinn.
7. gr.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þau mál, er hér segir:
a. Formaður fulltrúaráðs skýrir frá starfsemi félagsins
á liðnu ári.
b. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félags-
ins fyrir hið liðna ár.
c. Kosið skal í fulltrúaráð félagsins samkv. 9. gr.
d. Kosnir endurskoðendur félagsins.
e. önnur mál, sem upp kunna að verða borin.
Ekki getur kosning í fulltrúaráð farið fram, nema
reikningar félagsins hafi áður verið samþykktir.
8. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Félagsgjöld
skulu ákveðin árlega á aðalfundi. I félagsgjaldinu er inni-
falið áskriftargjald að ársriti félagsins „Morgni“. Sé um
hjón að ræða, sem bæði eru félagar, greiða þau aðeins
og fá eitt eintak af ritinu, nema þau óski annars.
9. gr.
Á aðalfundi skal kosið fulltrúaráð, skipað tólf mönnum
til tveggja ára. Gengur helmingur þeirra úr fulltrúaráði
á hverjum aðalfundi, eftir kjöraldri. Heimilt er að endur-
kjósa menn í fulltrúaráð.
Ennfremur skulu kosnir tveir endurskoðendur til eins
árs í senn.
10. gr.
Fulltrúaráð skiptir með sér störfum og kýs úr sínum