19. júní - 19.06.1998, Blaðsíða 10
Ráðstefna um konur og
lýðræði við árþúsundamót
Gert er ráð fyrir að um
400 manns frá Norður-
löndunum, Eystrasalts-
löndunum, Rússlandi og
Bandarfkjunum taki þátt í
ráðstefnunni „Konur og
lýðræði við árþúsunda-
mót" sem haldin verður í
Reykjavík á hausti kom-
anda, 8. til 10. október.
Af því tilefni ræddi Arna
Schram við Dr. Sigríði
Dúnu Kristmundsdóttur
mannfræðing, formann
undirbúnings- og fram-
kvæmdanefndar ráðstefn-
unnar.
Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir formaður undirbúnings- og
framkvæmdanefndar ráðstefnunnar.
Markmið ráðstefnunnar er m.a. að
vekja athygli á mikilvægi þess að
konur taki virkan þátt í lýðræðinu
og er hún haldin í boði ríkisstjórnar (slands, í
samstarfi við ríkisstjóm Bandaríkjanna og
Norrænu ráðherranefndina. Hillary Rodham
Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna, mun Ijúka
ráðstefnunni á þriðja degi með því að fjalla
um niðurstöður hennar, en enn er óljóst um
aðra lykilræðumenn á ráðstefnunni.
Að sögn Sigríðar Dúnu er undirbúningur
ráðstefnunnar kominn vel á veg og hafa
þegar verið send út um sjö hundruð bréf til
fræðimanna, kvennasamtaka og fleiri aðila í
þátttökulöndunum þar sem m.a. er óskað
eftir hugmyndum um efnisþræði ráðstefn-
unnar, hvernig þátttöku kvenna í lýðræðis-
ferli ríkjanna sé háttað, hvaða vandamál séu
uppi á því sviði og að lokum hverjar séu
hugsanlegar lausnir og hverjir gætu unnið
að þeim lausnum. Sigríður segir að svörin
hafi smám saman verið að berast og að nú
sé unnið að því að skipuleggja ráðstefnuna
út frá þeim svörum. „Með því að fara yfir
svörin fáum við yfirlit yfir hver þekkingin er á
þessum málum í þátttökulöndunum, hvernig
vandamálin eru skilgreind af þeim sem best
þekkja til og hvernig best er að taka á
þeim."
Sigríður Dúna segir að fyrir liggi að setja
saman vinnuhópa sem starfa eigi á ráðstefn-
unni og að í þeim vinnuhópum taki þátt þeir
aðilar sem þekki vandamálin sem og þeir
sem hafa tök á því að leysa þau (viðkomandi
löndum. „I vinnuhópunum stefnum við því
Með Magneu Þ. Hjálmarsdóttur, framkvæmda-
stjóra ráðstefnunnar.
saman fræðilegri þekkingu, vettvangsþekk-
ingu og aflinu til að framkvæma verkið," seg-
ir hún og tekur fram að síðastnefndu aðilarn-
ir séu til að mynda fulltrúar einkafyrirtækja
eða frjálsra félagasamtaka svo dæmi séu tek-
in. „Þetta er með öðrum orðum verkefna-
miðuð ráðstefna þar sem við höfum hugsað
okkur að gera fleira en að tala um vandamál-
in. Við erum búin að gera það nokkuð
lengi."
Hugmyndin er sú að vinnuhóparnir starfi
hver I sínu lagi laugardaginn 9. október en
á sunnudeginum Ijúki þeir störfum og kynni
niðurstöður sínar um hvaða verkefni eigi að
setja á laggirnar og hverjir eigi að vinna að
þeim. Til dæmis hvaða verkefni eigi að vinna
í Eistlandi og hverjir eigi að framkvæma þau.
„Formenn vinnuhópanna munu skýra frá
niðurstöðunum á sunnudeginum og þeir
sem hyggjast framkvæma þær ganga fram á
sviðið og tilkynna það sérstaklega," segir
Sigríður Dúna. Þegar þetta liggur fyrir mun
Hillary Clinton ávarpa fundinn og fjalla um
ráðstefnuna og hverju hún hafi skilað. „Síð-
an", segir Sigríður Dúna, „er stefnt að því að
halda aðra ráðstefnu að ári, hugsanlega í
einu af Eystrasaltslöndunum og fara yfir
hvaða árangur hafi náðst í þeim verkefnum
sem sett voru fyrir."
Hlusta þarf á allar raddir
Þegar Sigríður Dúna er innt eftir dæmum
af þeim vandamálum sem þátttökulöndin
eiga við að glíma varðandi þátttöku kvenna
10