19. júní


19. júní - 19.06.1998, Blaðsíða 71

19. júní - 19.06.1998, Blaðsíða 71
miður bæði illa og seint og er athugunarefni að standa að átaki í innheimtu og félagaöfl- un. Á starfstíma mínum sem formaður félags- ins hef ég lagt áherslu á að sérhver aðgerð stæði undirsérfjárhagslega og raunarhöfum við reynt að safna styrkjum sem bæði standa undir föstum kostnaði og „umsvifum" fé- lagsins vegna sérhvers verkefnis. Stundum hefur okkur orðið miður ágengt en stundum sérlega vel. Gegnum glerþakið er þannig styrkt fyrir öllum föstum kostnaði. Öll sala ætti því að skila sér beint til félagsins. Ráð- stefnan sem við stóðum að í morgun stend- ur líka undir sér og gott betur vegna styrkja frá fyrirtækjum og Reykjavíkurborg. Framkvæmdastjórinn okkar hefur skilað frábæru starfi í að halda okkur við efnið í fjár- söfnuninni og ráðdeildinni og sýnist nú sem félagið sé á tveimur árum búið að vinna upp um fimm hundruð þúsund króna skuldahala sem hefur fylgt því um nokkurt skeið. Að lokum Þar sem ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér til áframhaldandi formennsku í félaginu vil ég nota þetta síðasta tækifæri mitt til að tala í krafti þess embættis til að þakka ykkur fyrir sérlega ánægjulegt samstarf. Konunum sem ég hef unnið með í framkvæmdastjórn þakka ég fyrir uppbyggilegt og skemmtilegt samstarf, þar hefur aldrei borið skugga á. Það hefur verið gæfa mín að fá að kynnast þessum konum og vinna með þeim. Við höf- um ekki alltaf verið sömu skoðunar - við höf- um skipst á skoðunum - en aldrei deilt. Stundum gustaði svolítið um félagið á þess- um þó stutta tíma og þá sýndu þessar konur styrk sinn, samstöðu og æðruleysi, fyrir það vil ég sérstaklega þakka. I stórustjórninni hef ég einnig eignast vinkonur sem ég met mik- ils. Konur sem ég hefði að öllum líkindum ekki kynnst ella. ( stórustjórninni er raunar þvílíkt kvennaval að með ólíkindum hlýtur að vera. Flestar eru þær störfum hlaðnar og fundarsókn hefur því ekki alltaf verið góð, en alltaf þegar eitthvað hefur staðið til eða vinna hefur þurft sértæk verkefni, hefur reynst einfalt að fá konurnar í stórustjórninni til að taka að sér aukasnúning fyrir félagið. Stórastjórnin er ásamt öðru styrkur Kvenréttindafélagsins. Sigrúnu Eddu Jónsdóttur framkvæmdastjóra þakka ég frá- bær kynni og samstarf. Kvenréttindabarátta er margra kvenna tak og mikilvægt er að við vinnum saman. I KR- F( hafa íslenskar konur átt sameiginlegan vettvang til að heyja sína baráttu allt frá stofnun félagsins árið 1907. [ félaginu koma saman konur sem eiga það sameiginlegt að þeim finnst á konur hallað í íslensku samfé- lagi og á meðan svo er, er þar verk að vinna. Ég óska félaginu velfarnaðar og hef það raunar á tilfinningunni að fram undan séu bæði spennandi og gjöfulir tímar í sögu þess. 6. mars 1999 Sigríður Lillý Baldursdóttir Rafiönaðarsambantí islantís gaetir hagsmuna rafiBnaðarmanna um lantí allt ► Helstu verkefni Rafiðnaðarsambands íslands eru: Gerð kjarasamninga og túlknn þeirra, varsla starfsrétt- inda og vinnuvernd. Að tryggja félagsntenn ogfjölskyldur þeirra þegar dföll dynjayftr. Að annast fræðslu og útgáfustarfsemi. Að gefa félagsmönnum ogfjölskyldum þeirra kost á góðri aðstöðu til hvíldar í orlofi. Rafiðnaðarsambandið er starfsgreinasamband sem I eru 10 félög rafiðnaðar- manna víðsvegar um landið og I þeim eru þeir sem starfa I rafiðnaði hvort sem þeir hafa sveinspróf eða ekki; rafiðnfræðingar, rafvirkjar, rafveituvirkjar, rafvélavirkjar, rafeindavirkjar, símsmiðir, sfmamenn, sýningarmenn, tölvu- og kerfisumsjónarmenn, tæknifólk I rafiðnaði og rafiðnaðarnemar. Rafiðnaðarskólinn - öftug símenntun fyrir rafi'ðnaðarmenn Samtök rafiðnaðarmanna eiga og reka Rafiðnaðarskólann, Viðskipta- og tölvuskólann og Margmiðlunar- og fjarkennsluskólann. Þeir bjóða upp á fjölbreytt námskeið, sem fjalla um fagtæknileg efni, auk námskeiða á sviði rekstrar og stjórnunar. Einnig almenn og sértæk tölvunámskeið. Orlofshús fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra Rafiðnaðarsambandið á og rekur 41 orlofsaðstöðu á 15 stöðum á land- inu. Heitir pottar eru við 15 þeirra og eru þau til leigu allt árið. RAFIÐNAÐARSAMBAND ÍSLANDS Rafiönaðarsamband íslands hefurfélagslega aðstöðu iReykjavík, áAkureyri og á Selfossi. Leitið nánari upplýsinga (slma: 5681433, bréfasíma: 553 9097, heimasíðu: raf.is, netfangi: rsi@rsi.rl.is 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.