19. júní - 19.06.1998, Blaðsíða 71
miður bæði illa og seint og er athugunarefni
að standa að átaki í innheimtu og félagaöfl-
un.
Á starfstíma mínum sem formaður félags-
ins hef ég lagt áherslu á að sérhver aðgerð
stæði undirsérfjárhagslega og raunarhöfum
við reynt að safna styrkjum sem bæði standa
undir föstum kostnaði og „umsvifum" fé-
lagsins vegna sérhvers verkefnis. Stundum
hefur okkur orðið miður ágengt en stundum
sérlega vel. Gegnum glerþakið er þannig
styrkt fyrir öllum föstum kostnaði. Öll sala
ætti því að skila sér beint til félagsins. Ráð-
stefnan sem við stóðum að í morgun stend-
ur líka undir sér og gott betur vegna styrkja
frá fyrirtækjum og Reykjavíkurborg.
Framkvæmdastjórinn okkar hefur skilað
frábæru starfi í að halda okkur við efnið í fjár-
söfnuninni og ráðdeildinni og sýnist nú sem
félagið sé á tveimur árum búið að vinna upp
um fimm hundruð þúsund króna skuldahala
sem hefur fylgt því um nokkurt skeið.
Að lokum
Þar sem ég hef ákveðið að gefa ekki kost á
mér til áframhaldandi formennsku í félaginu
vil ég nota þetta síðasta tækifæri mitt til að
tala í krafti þess embættis til að þakka ykkur
fyrir sérlega ánægjulegt samstarf. Konunum
sem ég hef unnið með í framkvæmdastjórn
þakka ég fyrir uppbyggilegt og skemmtilegt
samstarf, þar hefur aldrei borið skugga á.
Það hefur verið gæfa mín að fá að kynnast
þessum konum og vinna með þeim. Við höf-
um ekki alltaf verið sömu skoðunar - við höf-
um skipst á skoðunum - en aldrei deilt.
Stundum gustaði svolítið um félagið á þess-
um þó stutta tíma og þá sýndu þessar konur
styrk sinn, samstöðu og æðruleysi, fyrir það
vil ég sérstaklega þakka. I stórustjórninni hef
ég einnig eignast vinkonur sem ég met mik-
ils. Konur sem ég hefði að öllum líkindum
ekki kynnst ella.
( stórustjórninni er raunar þvílíkt kvennaval
að með ólíkindum hlýtur að vera. Flestar eru
þær störfum hlaðnar og fundarsókn hefur því
ekki alltaf verið góð, en alltaf þegar eitthvað
hefur staðið til eða vinna hefur þurft sértæk
verkefni, hefur reynst einfalt að fá konurnar í
stórustjórninni til að taka að sér aukasnúning
fyrir félagið. Stórastjórnin er ásamt öðru
styrkur Kvenréttindafélagsins. Sigrúnu Eddu
Jónsdóttur framkvæmdastjóra þakka ég frá-
bær kynni og samstarf.
Kvenréttindabarátta er margra kvenna tak
og mikilvægt er að við vinnum saman. I KR-
F( hafa íslenskar konur átt sameiginlegan
vettvang til að heyja sína baráttu allt frá
stofnun félagsins árið 1907. [ félaginu koma
saman konur sem eiga það sameiginlegt að
þeim finnst á konur hallað í íslensku samfé-
lagi og á meðan svo er, er þar verk að vinna.
Ég óska félaginu velfarnaðar og hef það
raunar á tilfinningunni að fram undan séu
bæði spennandi og gjöfulir tímar í sögu
þess.
6. mars 1999
Sigríður Lillý Baldursdóttir
Rafiönaðarsambantí islantís
gaetir hagsmuna rafiBnaðarmanna
um lantí allt
►
Helstu verkefni Rafiðnaðarsambands íslands eru:
Gerð kjarasamninga og túlknn þeirra, varsla starfsrétt-
inda og vinnuvernd.
Að tryggja félagsntenn ogfjölskyldur þeirra þegar dföll
dynjayftr.
Að annast fræðslu og útgáfustarfsemi.
Að gefa félagsmönnum ogfjölskyldum þeirra kost á góðri
aðstöðu til hvíldar í orlofi.
Rafiðnaðarsambandið er starfsgreinasamband sem I eru 10 félög rafiðnaðar-
manna víðsvegar um landið og I þeim eru þeir sem starfa I rafiðnaði hvort
sem þeir hafa sveinspróf eða ekki; rafiðnfræðingar, rafvirkjar, rafveituvirkjar,
rafvélavirkjar, rafeindavirkjar, símsmiðir, sfmamenn, sýningarmenn, tölvu-
og kerfisumsjónarmenn, tæknifólk I rafiðnaði og rafiðnaðarnemar.
Rafiðnaðarskólinn - öftug símenntun fyrir rafi'ðnaðarmenn
Samtök rafiðnaðarmanna eiga og reka Rafiðnaðarskólann, Viðskipta- og
tölvuskólann og Margmiðlunar- og fjarkennsluskólann. Þeir bjóða upp á
fjölbreytt námskeið, sem fjalla um fagtæknileg efni, auk námskeiða á sviði
rekstrar og stjórnunar. Einnig almenn og sértæk tölvunámskeið.
Orlofshús fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra
Rafiðnaðarsambandið á og rekur 41 orlofsaðstöðu á 15 stöðum á land-
inu. Heitir pottar eru við 15 þeirra og eru þau til leigu allt árið.
RAFIÐNAÐARSAMBAND
ÍSLANDS
Rafiönaðarsamband íslands hefurfélagslega aðstöðu
iReykjavík, áAkureyri og á Selfossi.
Leitið nánari upplýsinga (slma: 5681433, bréfasíma: 553 9097,
heimasíðu: raf.is, netfangi: rsi@rsi.rl.is
71