19. júní - 19.06.1998, Side 12
í návígi þegar víkingasýningin, Saga Norður-
Atlantshafs, í Smithsonian-safninu í Was-
hington var formlega kynnt í Bandaríkjunum
í apríl sl. „Ég hafði aldrei hitt Hillary i návígi
áður. Þegar hún heilsaði mér sagðist hún
hlakka til að koma til (slands á ráðstefnu um
stöðu og hlut kvenna næsta haust. Ræða
hennar á kynningarfundinum var góð og
glæsilega flutt. Var erfitt að átta sig á því
hvað hún las af blöðunum fyrir framan sig og
hvað hún sagði frá eigin brjósti. Er greinilegt
að hún hefur einlægan áhuga á þessari sýn-
ingu um víkingana og hefur lagt sig fram um
að kynna sér sögu þeirra, að öðrum kosti
hefði hún ekki getað flutt mál sitt af jafn-
miklu öryggi." Björn segirfrá kynnum sinum
af henni á heimasíðu sinni á netinu og lýsir
því m.a. þegar hann ræddi við hana eftir
fundinn. „Ég sagði við hana, að hún hefði
greinilega mikinn áhuga á víkingunum. Hún
hló við og sagði, svo að allir heyrðu, sem
þarna stóðu: Hvernig má annað vera um
konu, sem kölluð er valkyrja?"
En áður en lengra er haldið skulum við líta
nánar á bakgrunn valkyrjunnar. Hillary Diane
Rodham, eins og hún hét áður en hún gifti
sig, fæddist 26. október árið 1947 í lllinois í
Chicago og ólst upp í Park Ridge, úthverfi
borgarinnar, ásamt foreldrum sínum Dorothy
Rodham og Hugh Rodham og tveimur yngri
bræðrum, Hugh og Tony. Hún stundaði nám
í Wellesley-háskólanum og síðan í lagadeild
Yale-háskólans en þar kynntist hún manns-
efni sínu, Bill Clinton. Þau gengu í hjóna-
band árið 1975 og dóttir þeirra Chelsea kom
í heiminn árið 1980.
Hillary varð strax mjög áberandi í Hvíta
húsinu eftir að Bill Clinton hafði verið kjörinn
forseti Bandaríkjanna árið 1992, ekki bara
sem eiginkona og móðir heldur líka sem
áhrifavaldur í opinberri stefnumótun manns
síns og sérskipaður talsmaður ríkisstjórnar-
innar fyrir almannatryggingum í heilbrigðis-
kerfinu. „Þegar Hillary Clinton fór fyrir þing-
ið til að mæla fyrir umbótum á bandaríska
heilbrigðiskerfinu héldu þingmenn vart vatni
yfir málafylgjan, rökfimi og skýrri framsetn-
ingu hennar hvar í flokki sem þeir stóðu,"
skrifar Karl Blöndal blaðamaður í grein sinni
um Hillary í Morgunblaðinu hinn 23. júní
1996. Þrátt fyrir þennan sannfæringarkraft
náði málið ekki fram að ganga í þinginu. Jón
Baldvin Hannibalsson minnist þess að hafa
fylgst með því í sjónvarpinu þegar Hillary
beið ósigur í málinu á þinginu en það var í
kringum 1993. „Það var tilkomumikið að
fylgjast með því að þegar þingmannanefnd-
in var að grilla Hillary Clinton í málinu átti
hún alls kostar við alla þessa þingmenn.
Hafði á hraðbergi lagalegar og fræðilegar
útskýringar á viðfangsefninu og rökstuðning
fyrir lausnum," segir Jón Baldvin og bætir
því við að viðureignin hafi staðið yfir í marga
klukkutíma. Skemmst er frá því að segja að
eftir að tilraunir til úrbóta á heilbrigðiskerfinu
mistókust og demókratar höfðu tapað meiri-
hluta sínum í báðum deildum þingsins dró
Hillary Clinton sig í hlé frá opinberu stjórn-
málastarfi enda var henni kennt um ófarirnar.
Smám saman fór hins vegar aftur að bera á
henni á opinberum vettvangi, eða í upphafi
árs 1995, en þá var hún farin að leggja meiri
áherslu á „mýkri" málefni á borð við barna-
uppeldi og kvenréttindi og skrifaði metsölu-
bókina It Takes a Village eða Það þarf heilt
þorp til að ala upp barn. Á þessum tíma átti
hún auk þess fullt (fangi með að svara ásök-
unum um þátt sinn í Whitewater-málinu svo-
nefnda og öðrum spillingarmálum, en þau
mál eru látin liggja á milli hluta hér.
Ekki heiglum hent að fást
við Hillary
Miðað við þá mynd sem fjölmiðlar gefa af
Hillary er henni sennilega rétt lýst sem val-
kyrkju; tignarlegri, sterkri og duglegri konu.
Og þeir sem vitnað var í hér að ofan draga
heldur ekki dul á það. „Hún er vissulega um-
deild líka en vinsældir hennar hafa aukist
mjög eftir þær hremmingar í einkalífi sem
þau hjónin hafa lent í undanfarna mánuði,"
útskýrir Jón Baldvin og rifjar m.a. upp þátt
hennar í þingkosningunum i Bandaríkjunum í
nóvembers sl. „Það er mat fréttaskýrenda að
með framgöngu sinni í lykilkjördæmum [þar
sem hún hélt m.a. stuðningsræður fyrir fram-
bjóðendur demókrataj hafi hún beinlínis ráð-
ið úrslitum um að felldir voru út af þingi tveir
af helstu andstæðingum þeirra hjóna, sem
höfðu látið mest að sér kveða í rannsóknar-
ferlinu sem kennt er við saksóknarann Kenn-
eth Starr." Annar þessara manna er
repúblikaninn Alfonse D'Amato í New York
sem hefur átt fast sæti í öldungadeild síðan
1980. „Þannig að það er ekki heiglum hent
að fást við Hillary Clinton," bætir Jón Bald-
vin við. Engan skal því undra að Hillary hef-
ur verið talin einn af þungavigtarmönnunum
í bandarískum stjórnmálum ( dag. Lengi
hefur verið orðrómur á kreiki um að hún
hygðist sækjast eftir sæti í öldungadeild
Bandaríkjaþings í New York ríki þegar þing-
kosningar fara fram á næsta ári, en þegar
þetta er skrifað hefur hún enn ekki gefið
neina opinberlega yfirlýsingu um þá fyrirætl-
an. Jón Baldvin bendir á að skoðanakannan-
ir hafi gefið til kynna að Hillary gæti unnið
þann sigur með tilstyrk minnihlutahópa og
kvenna jafnvel þótt hún ætt í höggi við mjög
sterkan frambjóðanda, Rudolph Giuiliane,
hinn vinsæla borgarstjóra í New York. „Hins
vegar letja margir Hillary þess að bjóða sig
fram, vegna þess að staða hennar sem
„óbreyttur" öldungadeildarþingmaður væri
heldur þrengri en ef hún hefði einfaldlega
óbundnar hendur af því að láta til sín taka í
þjóðmálum," segir hann og bætir því við til
útskýringar að hlutverk öldungadeildarþing-
manns snúist fyrst og fremst um fyrirgreiðslu
og fjármálabasl.
Mike Hammer segir eins og aðrir sem
kynnst hafa Hillary að hún sé afburðagreind,
kraftmikil og dugleg og hafi í forsetatíð Bills
Clinton breytt hlutverki forsetafrúarinnar frá
því sem áður var. Hún hefur reyndar frá því
að þau hjón luku námi haslað sér völl úti á
vinnumarkaðinum, ekki síður en eiginmaður-
inn, og átt velgengni að fagna sem lögmað-
ur, setið í stjórnum fýrirtækja og félagasam-
taka og barist fyrir bættum réttindum barna
svo eitthvað sé nefnt. „Ég gæti auðvitað
haldið mig heima við yfir kökubakstri og te-
boðum," sagði hún eitt sinn við fréttamenn
þegar Bill Clinton hafði verið valinn sem for-
setaefni demókrata, „en ég tók þá ákvörðun
að sinna því starfi sem ég hafði hlotið mennt-
un til."
Hammer segir að Hillary leggi sig alla fram
við þau málefni sem hún hafi á sinni könnu
en bendir á að henni sé mikið í mun að halda
einkalífi sínu fyrir utan opinbera umfjöllun.
„Hún vill eiga sitt einkalíf, sérstaklega með
Chelsea," segir hann. „Hún er sömuleiðis
ekki mikið fyrir að vera í fjölmiðlum nema um
sé að ræða mikilvæg málefni sem hún vill
vekja athygli á. Að því leyti er hún ekki þessi
dæmigerði stjórnmálamaður sem er úti að
klappa öllum og heilsa öllum og virkar
kannski þess vegna svolítið hrokafull og köld.
En þegar hún er meðal fólks sem hún er að
vinna með er hún mjög indæl."
Fréttaskýrendur hafa margir hverjir bent á
að þessi áhersla Hillary Clinton á að hleypa
fjölmiðlum ekki inn fyrir dyr einkalífsins sé
einmitt ástæða þess að hún hafi lítið sem
ekkert tjáð sig opinberlega um framhjáhald
forsetans og hið margumtalaða Lewinsky-
mál. „Hún hefur einfaldlega engan áhuga á
því að deila sársauka sínum með öllum
heiminum," er m.a. haft eftir nánum sam-
starfsmanni hennar í netúgáfu tímaritsins
Newsweek undir lok síðasta árs. Lengst hef-
ur hún gengið í þá átt með því að láta blaða-
fulltrúa sinn, Marsha Berry, lýsa því yfir opin-
berlega að Hillary Clinton væri búin að fyrir-
gefa eiginmanni sínum.
Leitun að öðrum eins
forsetahjónum
Ljúkum þessari umfjöllun um Hillary Clinton
með frásögn Jóns Baldvins af því þegar hann
Ég sagði við hana, að hún hefði greinilega mikinn
áhuga á víkingunum. Hún hló við og sagði, svo að allir
heyrðu, sem þarna stóðu: Hvernig má annað vera um
konu, sem kölluð er valkyrja?
12