19. júní - 19.06.1998, Side 25
að þær fái ekki að koma fram með einkj-
skoðanir sínar eða að þær fótum troði hver
aðra. Við verðum að fá að vera einstaklingar,
með okkar guðfræðiskoðanir, skoðanir á
femínisma og skoðanir á málefnum samtím-
ans eins og líftækni, samkynhneigð og
hverju öðru. Ég á mjög erfitt með að þola ef
ég fæ ekki að vera sjálfstæð i hópi kvenn-
anna, þá finnst mér kvennahópurinn kúga
mig."
Skoðanir kvenna innan íslensku kirkjunnar
eru það ólíkar í kvennaguðfræði og femín-
isma, að þeim hefur ekki alveg auðnast að
halda nógu fast hverri utan um aðra:
„Við höfum því miður ekki tekið á þessu, en
við erum að reyna það í litlum hópum. Það
að vera ekki sammála á alls ekki að vera okk-
ur fjötur um fót. En ef ég fæ ekki að vera ég
sjálf innan um konur, þá líst mér bara ekki á
blikuna!"
Helgu hefur persónulega aldrei fundist að
karlmenn kúgi hana. Hún hefur alltaf um-
gengist stráka og karia og þurft að takast
á við þá. Farið í slag við þá, bæði líkam-
lega og andlega ef svo ber undir:
„Ég hef ekki áhyggjur af karlmönnum í eina
mínútu! Ég hef stundum haft meiri áhyggjur
af konum. Mér þykir langskemmtilegast í líf-
inu að vera með fólki af báðum kynjum,
þessarar þjóðar og annarra þjóða. Hvort
sem það er í umræðu eða öðru. Mér finnst
það svo fjölskrúðugt, skemmtilegt og
ögrandi. En að vera með fólki þar sem allir
eru eins og allir segja það sama, það verður
svo einsleitt, leiðinlegt og lítið skapandi. Ég
flosna bara upp úr slíku."
Hún leggur áherslu á að sjálfstæði og
styrkur hverrar manneskju sé grundvöllur
kvenfrelsis:
„Ég held að ef konum á að farnast vel í jafn-
réttisbaráttu sem og öðru, þá verði þær að
huga að sér sjálfum sem manneskjum og
einstaklingum. Þær þurfa að æfa sig í að
spyrja: Hvað finnst mér? Þær mega ekki
byrja alltaf á því að hugsa um leið og þær
eru spurðar álits á einhverju: Stelpur, hvað
finnst ykkur? Þær verða að þora að hafa eig-
in skoðun og halda sínu striki. Öðruvísi verð-
ur umræðan ekki til.
Herra Karl Sigurbjörnsson hvatti konur
sérstaklega til að sækja um auglýst prests-
embætti í vor og vísaði í landslög um jafn-
an rétt kynjanna. Er þessi hvatning hans
meðvituð aðgerð innan kirkjunnar til að
taka á jafnréttismálum?
„Herra Karl hefur jafnréttishugsjónir í heiðri
og lætur það koma fram á öllum stöðum.
Honum er annt um það sem biskupi (slands
að kirkjan sýni jafna stöðu karla og kvenna, í
hvaða lífi kirkjunnar sem það birtist."
Annt um kirkjuhefðina
Nú heyrast stundum þær gagnrýnisraddir
að kirkjan tróni uppi á einhverjum stalli og
komi ekki nógu mikið niður til fólksins. Er
Heima með börnunum, fsak og Önnu Maríu Toma.
kirkjan að gera eitthvað í því að tengjst
hinum almenna borgara?
„Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá verð ég
að segja að ég skil stundum ekki þessa kröfu
um að „koma til fólksins" því mér finnst við
alltaf vera að því. Við erum alltaf að tala um
Guð og Jesús. Hér í Háteigskirkju er t.d. fjöl-
margt í boði og svo hefur verið um langan
tíma. En um Háteigskirkju hefur líka stundum
verið sagt að hún sé íhaldssöm og kannski er
hún það, a.m.k. er okkur mjög annt um að
varðveita kirkjuhefðina eða ritúalið. Ég er
sjálf af þessum meiði."
Ertu þá kannski svartstakkur?
„Ég vil helst ekki taka mér þetta orð í munn
því mér finnst það svo neikvætt og stuðla að
flokkadráttum í kirkjunni sem eru ekki fyrir
hendi. Mér er mjög annt um messuna. Kirkj-
an veit alveg hver hún er og hún á að varð-
veita guðsorð og sakramentin. Hún á að
vernda hag þeirra sem eru minnimáttar.
Þetta finnst mér vera hlutverk kirkjunnar."
í Háteigskirkju er ekki aðeins öldrunar-
þjónusta og nýbúaþjónusta heldur hafa
þar einnig verið haldin erindi um umdeild
mál eins og siðferði í vísindum og læknis-
fræði:
„Mér finnst þetta afar spennandi viðfangs-
efni sem ég tel að kirkjan eigi að skipta sér
af. Ég tel að kirkjan eigi endilega að hafa
skoðun á því sem er í umræðunni í samtím-
anum. Hún á að láta að sér kveða og koma
með yfirlýsingar um hvað henni finnst. Kirkj-
an á aldrei að vera hrædd við að taka af-
stöðu. Ég segi bara: Stattu fast á þínu, góða
kirkja, og vertu óhrædd litla hjörð þótt ein-
hver segi að þú sért ekki nógu góð. Láttu
ekki hæðast að þér eða leggja þig í einelti."
Helga vill að í barna- og æskulýðsstarfi
fylgist kirkjan vel með því sem er nýtt á
döfinni og sé með á nótunum. En það er
ekki þar með sagt að kirkjan eigi að hlaupa
á eftir öllum röddum sem segja: Ef þú ert
ekki eins og við viljum hafa þig, þá ertu
ekki nógu góð:
„Ég er svo hrædd um að stundum séu prest-
ar að rembast eins og rjúpur við staura að
vera svo nútímalegir og sniðugir. Auðvitað er
það af miklum velvilja gert en þeir geta orð-
ið svo þreyttir og útbrenndir eða kulnaðir. Ég
er ekkert að boða einhverja steinrunna,
svarta steypukirkju, ég vil bara að kirkjan
passi upp á ímynd sína og fyrir hvað hún
stendur. Sérstaklega í heimi sem er jafn
margbreytilegur og hann er í dag. Það er allt
svo hverfult og auðvelt að týna sér. Og er þá
ekki dálítið flott að eiga veruleika sem er
traustur: Kirkju. En ég legg áherslu á að hún
verður þó alltaf að vera í nútímanum."
Hvernig sérð þú fyrir þér kirkjuna þróast á
nýrri öld?
„Ég sé hana þannig fyrir mér að hún hafi
sterka sjálfsmynd og að hún komi til með að
varðveita eiginleika sína vel. Ég vil að hún sé
áræðin og taki þátt í umræðu samfélagsins
og að fólk spyrji um skoðun kirkjunnar á álita-
málum. Að fólk haldi fyrst og fremst áfram að
leita til kirkjunnar á ögurstundum í lífi sínu, á
stundum gleði og sorgar. Hún á að vera klett-
ur í ólgusjó. En á sama tíma verður hún að
vera lifandi, djörf og framsækin."
Á hlutur kvenna eftir að aukast innan kirkj-
unnar?
„Já, ég er alveg sannfærð um það, bæði í
prestsstöðum og í þeim stöðum þar sem
ákvarðanir eru teknar. En við skulum ekki
vera of bráðlát þegar við erum að reyna að
breyta 2000 ára gamalli stofnun. Allar góðar
breytingar taka langan tíma, en það er hægt
að brjóta niður og eyðileggja á örskots-
stundu. Það tekur langan tíma að byggja upp
það sem er gott."
25