19. júní - 19.06.1998, Side 44
vinnusami og hafinn yfir gagnrýni. Satt að
segja getur hann verið hinn mesti þrjótur,
óreglusamur og vanrækt fjölskyldu sína, en
sé hægt að kalla hann duglegan er það kost-
ur sem tekur öðrum fram.
Þeir sem ekki vilja vinna aukavinnu eru litn-
ir hornauga og þjóðfélagið hefur tilhneigingu
til að hafna þeim. Svo rammt kveður að
þessu að næstum minnir á ofstæki sértrúar-
hópa. Ekkert þykir bogið við að á íslandi vinni
fólk allt að 60 stunda vinnuviku meðan aðrar
Evrópuþjóðir hugleiða að stytta vinnuvikuna í
rúma 30 tíma.
Neysla (slendinga hefur gert þeim kleift að
réttlæta vinnudýrkunina. Afþreying lands-
manna er orðin sjálf neyslan og því þarf að
taka á sig enn meiri vinnu svo að unnt sé að
skemmta sér.
Það er líka eins og form samfélagsins sé
sniðið að fylgni við slíkt mynstur og er al-
gengt að ung pör leggist árum saman í
vinnuþrælkun og hætti öllu rugli eins og
ferðalögum og menningarneyslu. Þau kaupa
gagnlega hluti; íbúð, bíl og ógrynni af nauð-
synlegum rafmagnstækjum og tólum. Ekki er
óalgengt að ungt fólk steypi sér í miklar
skuldir vegna bílakaupa og greiðslubyrðin
sem það tekur á sig sé allt að 50 þúsund
krónur á mánuði utan trygginga til allt að sjö
ára.
Skuldsetning heimilanna
( orði kveðnu er hagur fjölskyldunnar settur
ofar öllu en á borði er það vinnan. Ungt fólk
hér á landi sem er að eiga börn og koma sér
upp heimili verður að skuldsetja sig mikið til
þess að komast yfir húsnæði. Afleiðingin
verður síðan ótrúlega langur vinnudagur hjá
hjónunum með börnin í rándýrri gæslu á dag-
heimilum.
Útgjöld til félagsmála eru hlutfallslega
lægst á (slandi af öllum þjóðum á Evrópska
efnahagssvæðinu og við stöndum hinum
Norðurlöndunum langt að baki hvað varðar
fæðingarorlof og stuðning við barnafjölskyld-
ur. (sland er eina landið af Norðurlöndunum
sem tekjutengir barnabætur og hvergi er
hlutfall greiðslna foreldra við rekstur leikskóla
hærri en hér. Framlög til skóla og félagsmála
eru lægri hér á landi en annars staðar á Norð-
urlöndum en þrátt fyrir það er sífellt meiri
ábyrgð færð yfir á skóla.
Vinnan gefur lítið í aðra
hönd
Langur vinnutími, lág laun og húsnæðisbasl
gerir það að verkum að fjölskyldan stendur
höllum fæti í íslensku samfélagi. Atvinnuþátt-
taka og vinnutími beggja foreldra er með því
hæsta sem þekkist. Langur vinnutími stafar af
því að launin eru of lág fyrir dagvinnu og
duga ekki til framfærslu fjölskyldu og jaðar-
skattareru þannig að aukin yfirvinna gefur lít-
ið í aðra hönd.
Skólaárið er það stysta sem þekkist á
Norðurlöndunum. Vissulega er boðið upp á
ýmis námskeið og afþreyingu fyrir börn á
yngri skólastigum en þrátt fyrir það þarf að
brúa bil. Fyrir kemur að hjónin eiga ekkert
sumarfrí saman því þau taka sumarfrí hvort í
sínu lagi til að börnin séu ekki ein heima. Það
er einnig nöturlegt að einstæð móðir skuli
sigla inn í sumarið með aðeins fáa sumarfrís-
daga þar sem hinir hafa verið teknir um jól,
páska og á vinnudögum kennara.
Margir foreldrar freistast til að hafa börnin
ein og eftirlitslaus heima því barnagæsla er
dýr. Kannski er það skýringin á því að slys á
börnum í heimahúsum eru algengari hér en
annars staðar á Norðurlöndum. Er ekki fram-
tíðarsýnin sú í skólamálum að skólaárið verði
lengt til fjölbreyttari starfa með börnum og
unglingum? Atvinnusjúkdómar eru margir
og algengust er gigtin sem liggur í ættum
og tengist oft ákveðnum störfum. Vefjagigt-
arsjúklingar eru margir og tengjast orsakir
sjúkdómsins oft langvarandi álagi, t.d.
vökunóttum vegna veikra ungbarna eða slys-
um.
Hver er stefnan í fjölskyldu-
málum?
Það hlýtur að vera íhugunarefni hvort ekki sé
einhverju ábótavant í fjölskyldumálum þjóð-
arinnar. Heímilið, hornsteinn þjóðfélagsins,
er orðið hornreka og mikið skortir á að þjóð-
in hafi mótað fjölskylduvæna stefnu. Þarf
ekki annað en skoða málefni unglinga sem
lent hafa upp á kant við samfélagið og leiðst
út í neyslu vímuefna og á braut afbrota. Ljóst
er að vandamál unglinga eru ekki einka-
vandamál skólanna heldur eru fleiri þættir
sem þar spila inn í eins og foreldrar, heimili,
félagslegar aðstæður og samfélagið sjálft.
Hjarta heimilisins
Ef við hugum að því á hverju fólk byggir í
upphafi sambúðar kemur í Ijós að oftast er í
gildi sama hefð og áður var þegar faðirinn
vann úti en móðirin annaðist fjölskyldu og
heimili. Móðirin hefur alla tíð verið hjarta og
driffjöður heimilisins og lætur fjölskylduna
ganga fyrir sínum kröfum. Framlag hennar
hefur alltaf þótt sjálfsagt meðan hrópað er
húrra fyrir eiginmönnum sem strauja skyrtur
og þvo gólf.
Aukinni menntun kvenna fylgja bættir at-
vinnumöguleikar og nú eru þær í fastri vinnu
sem þær hlaupa ekki frá frekar en karlar.
Konur sem gegnum aldirnar hafa helgað
heimilinu alla sína krafta eru nú komnar út á
vinnumarkaðinn og þeirri þróun verður ekki
breytt. Samt er það svo að konur eru nær
undantekningarlaust á lægri launum en karl-
ar og því hættara við að þær lendi í því að
vera heima ef börn eru veik.
Fortíð — nútíð
Stundum virðist okkur sem eldri erum að
unga fólkið í dag vilji bara njóta nútímans og
gleyma fortíðinni og þeim gildum sem þá
voru í hávegum höfð. Það gerir lítið úr
matseld og matarvenjum forfeðranna og
nýtni og útsjónarsemi þykir í meira lagi hall-
ærisleg. Það hrærist í neysluþjóðfélagi með
einnota bleyjum og barnamat í krukkum. Við
sem eldri erum spyrjum okkur þess hvort
unga fólkið kunni ekki að vera með börnum
sínum því oft eru tilbúnar þarfir látnar hafa
forgang.
Sjálfsblekking
Vinnan er jafn sjálfsögð og að draga andann
og í mörgum tilfellum notar fólk vinnuna til
að fullnægja félagslegum þörfum sínum. (
umræðum um skemmri vinnutíma ber nokk-
uð á sjálfsblekkingu og hræsni og á það oft-
ar við um karlmenn. Sem fyrirvinnur eru þeir
ósnertanlegar hetjur sem fara í víking hvern
morgun. Þeir finna til mikilvægis við að sjá
pappírshauga á skrifborði sínu og ánægju við
að fara síðastir úr vinnunni. I vinnunni liggur
líka áskorun og ábyrgð og hún er tilbreyting-
in frá færibandavinnu fjölskyldulífsins. Þessi
afstaða skýrir oft langan vinnutíma.
Fæðingarorlof
(dag gefst foreldrum kostur á fæðingarorlofi.
Feður eru samt ekki duglegir að nýta sér
feðraorlof. Þeim þykir mörgum það aum-
ingjalegt, nýbakaðir feður fá sig oft ekki til
að biðja um orlof og þeir eru heldur ekki van-
ir heimilisverkum. Algengara er að feður taki
hluta af sumarfríi sfnu á launum heldur en
feðraorlof með greiðslum frá Tryggingastofn-
un því þær greiðslur eru ekki háar. Fæðingar-
orlof þarf að tengja föðurnum meira en gert
er en það að þeir eru yfirleitt tekjuhærri en
mæðurnar hefur staðið í vegi fyrir því að þeir
hafi tekið fæðingarorlof. Bæði hjónin hafa
hreinlega ekki efni á því að vera á greiðslum
frá Tryggingastofnun.
Konur eru enn mun bundn-
ari yfir börnum
í könnun sem gerð var á vegum „Socialfor-
sikningsinstitutet" í Kaupmannahöfn kom
fram að það var oftast mamma, annars
amma og nágrannar sem önnuðust barnið ef
það var veikt heima. Pabbi kom í fjórða sæti.
Þrátt fyrir miklar framfarir á liðnum árum eru
konur enn mun bundnari yfir daglegum
heimilisverkum og barnauppeldi en karlar.
Karlar hafa almennt gegnt fyrirvinnuhlutverki
í íslensku samfélagi. Samfélagsleg umönnun
smábarna kom síðar til skjalanna hér en ann-
ars staðar á Norðurlöndum.
Eru pabbar óþarfir?
Það getur verið að hlutur karlmanna í þessari
frásögn sé svertur. En staðreyndirnar tala
sínu máli. Börn í leikskóla voru í þykjustuleik
en enginn í leiknum vildi vera pabbinn þvf
hann var allan leikinn til hliðar meðan hinir
sinntu hinum ýmsu störfum, voru systkini,
vinir eða mamma. Skýringin var sú að pabbi
var alltaf í vinnunni.
Sem betur fer eru til bjartari hliðar á þess-
44