19. júní - 19.06.1998, Síða 51
Minnisvarðar og
vökustaurar
Hverju hefur jafnréttisbaráttan skilað okkur? Þótt enn só
langt í land eru áfangar jafnréttisbaráttunnar mikilvægir
minnisvarðar. Þeir eiga ekki aðeins að vekja konur og
karla til vitundar um mikilvægi þessarar mannréttinda-
baráttu kvenna heldur minna á að enn er löng leið að
markinu.Við megum ekki sofna á verðinum heldur verð-
um við að halda áfram að berjast fyrir jöfnum rétti
kvenna og karla, í orði og á borði.
rír jafnréttisþenkjandi aðil-
ar voru beðnir að gera
grein fyrir jafnréttisbaráttunni í
fortíð, nútíð og framtíð.
Árið 1904 er konum fyrst heimilað að sitja í Lærða skólanum
Árið 1907 fá konur kosningarétt og kjörgengi í bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningum
Árið 1908 er kvennalisti boðinn fram í sveitarstjórnarkosningum í
Reykjavík og jafnframt er fyrsta konan kosin í borgarstjórn
Árið 1911 fá konur rétt til embættisnáms og embætta
Árið 1915 fá konur eldri en fjörutíu ára almennan kosningarétt
Árið 1918 fá konur kosningarétt til jafns við karla
Árið 1922 er kvennalisti boðinn fram á landsvisu
Árið 1933 er fyrsta konan skipuð ríkisféhirðir
Árið 1935 lýkur fyrsta íslenska konan lögfræðiprófi
Árið 1945 kemur bókmenntatímaritið Embla fyrst út en þar birtust
einungis ritsmíðar kvenna ásamt viðtölum við skáldkonur og endur-
minningar
Árið 1970 gegnir fyrsta konan ráðherraembætti
Árið 1975 eru lög um fæðingarorlof samþykkt á Alþingi
Árið 1980 er fyrsta konan kosin forseti íslands
Árið 1994 er fyrsta konan kjörin borgarstjóri Reykjavíkur
Árið 1997 verður fyrsta konan deildarstjóri við Háskóla íslands
Árið 1999 eru konur í fyrsta sinn fleiri en sem nemur 30% þing-
manna, alls 22, og hafa aldrei áður setið jafnmargar konur á þingi
Spurningarnar voru
^^6^3 telur þú merkilegustu áfanga
jafnréttisbaráttunnar?
Hvernig metur þú stöðuna í dag?
■ Hvaða áherslur telur þú vænlegastar
til árangurs í jafnréttisbaráttu fram-
tíðarinnar?
Fortíð - nútíð og... framtíð
Linda Blöndal stjórnmálafræðingur
mat stöðuna í fortíð, nútíð og framtíð svona:
Kvennalistakonur ljá öðrum rödd sína
Fortíð: „Fyrir utan stórsigra líkt og kosn-
ingarétt kvenna 1920 og stofnun sér-
stakra kvennaframboða á íslandi, þar með
talinn Þjóðvaka, þá finnst mér persónu-
lega spennandi að staldra við í nýliðinni
fortíð og minnast hins nýja tóns sem rit-
nefndin 19. júní í fyrra sló svo margir tóku
eftir. Áfanginn fólst í heiðarlegri en rót-
tækri tilraun til að fá að tala og skrifa um
allt sem snýr að konum á íslandi, ekki
bara sumt, og ég fékk sjálf að vera þátt-
takandi í. “
Nútíð: „Það er merkur áfangi að sjá fjölg-
un kvenna, bæði í sveitarstjórnum sem og
á Alþingi, eftir nýafstaðnar kosningar.
Þessi samtíðaráfangi er tengdur afrekum
fortíðarinnar og má þakka Kvennalistan-
um sérstaklega fyrir. Merkasti samtíðar-
áfanginn er að Kvennalistakonum hefur
tekist að ljá stórum stjórnmálasamtökum
rödd sína þrátt fyrir agnarlítið eigið fylgi
og halda þar með áfram að starfa á
þingi."
Framtíð: „Merkasti áfangi framtíðarinnar
verður þegar forsætisráðherra íslands
verður kona og innan hverrar deildar Há-
skólans verður a.m.k. einn prófessor af
kvenkyni. Langmerkasti áfanginn er þeg-
ar þetta tvennt verður ekki lengur sér-
stakt fréttaefni. “
51