19. júní - 19.06.1998, Side 64
"Nei, systir mín er ekki
systir mín og þetta er ekki
dóttir hennar..."
„Óbein skilaboð eru lesin út úr hverri
hreyfingu. Óbein skilaboð felast í táknmáli
án orða og þann orðaforða verður að nota
með gætni. Þess vegna eru sameiginlegar
stundir, eins og fermingar, oft mjög
orkufrekar því þá er maður helst minntur á
að fjölskyldan er samsett og verður að hafa
hemil á öllum svipbrigðum og fasi."
Víðfemt hlutverk
Talið berst að ráðgjöf. „Nei, við höfum
verið samstíga í að vinna úr málum okkar og
ekki leitað eftir aðstoð. Við höfum samt oft
óskað þess að við hefðum gert það. Eitt
finnst mér mjög gagnrýnivert í sambandi við
giftingar og skilnaði," bætir Katla áköf við.
„Þegar fólk skilur þarf það að fara til prests.
Er þá reynt að leita sátta og ræða málin. En
þegar fólk giftir sig er ekki skylda að tala við
einn eða neinn. Það vantar ekki
auglýsingarnar og dýrðina kringum
brúðkaupin en allt of oft endist hamingjan
skammt. Mér finnst full ástæða til að
endurskoða það atriði, sérstaklega með
börn í huga."
Katla er ekki hlynnt því að stjúpur stofni með
sér samtök en segir: „Mér finnst löggjöfin
gera okkur alveg hroðalegan grikk. Við
erum algjörlega réttlausar. Til dæmis ef við
hjónin myndum skilja þá höfum við, ég og
stjúpdóttir mín, engan lagalegan rétt hvor
gagnvart annarri. Mér finnst þetta kannski
vera atriði sem þyrfti að berjast fyrir að fá
breytt, í því tilfelli væri félagsskapur
stjúpmæðra, eða jafnvel stjúpforeldra, mjög
þarfur. Eins og málum er háttað í dag er
mjög stór hluti fólks í þessari aðstöðu en þó
á mjög mismunandi hátt. Tíminn sem
„stjúpsambandið" hefur varað ætti t.d. að
skipta máli og það hve náið sambandið er. (
dag er forsjá algerlega í höndum
kynforeldra svo að það er þeirra að
samþykkja einhverja umgengni og þá að
hvaða marki ef til skilnaðar kemur. Það sér
það auðvitað hver skynsamur maður að
þarna eru gífurlega miklir hagsmunir
tveggja einstaklinga, stjúpforeldris og
barns, í húfi. Ég hef oft hugsað um það
hvernig barnið mitt myndi upplifa það að
missa móður sína í annað sinn. Ekki missa
kynmóður sína, náttúrulega. Ég veit ekki
hvernig hún myndi höndla það.
Að vera stjúpmóðir er í rauninni meira en
vera móðir. Það er miklu víðfeðmara og
krefst miklu meira en vera bara kynmóðir. Ég
þekki dæmi þar sem stjúpbarnið er ofsalega
erfitt. Helgarnar sem það er hjá stjúpunni
eru rosalegar. Barn sem maður fæðir er
manns eigið og jafn sjálfsagt að elska það
og að draga andann. Þegar um stjúpbarn er
að ræða þarf að vinna málið á annan hátt.
Auðvitað geri ég mér grein fyrir því að ég á
sérstaklega góð stjúpbörn. Ég er svo heppin
því dóttir mín er eins og hugur manns og
samband okkar gæti ekki verið betra."
Þannig kemst Elsa Þorsteinsdótt-
ir m.a. að orði þegar hún talar um
flókið fjölskyldumynstur sitt.
Hún heldur áfram og lýsir kring-
umstæðunum nánar. „Tilsvarið
var hluti af samtali fyrir mörgum
árum. Stjúpsystir mín var að
passa fyrir mig og var hún spurð
hvort hún ætti barnið sem sat í
kerrunni," segir Elsa. „Hún svar-
aði því til að barnið væri systur-
dóttir hennar, en fór svo eitthvað
að útskýra málið frekar, sem
gerði bara illt verra, og sá sem
spurði botnaði ekki neitt í neinu.
En, já, ég er úr stjúpfjölskyldu.
Mamma giftist ekkjumanni sem
átti fjögur börn og vissi ég því
nokkuð vel hvað beið mín þegar
ég giftist sjálf ekkjumanni fyrir
fimm árum."
Elsa er stjúpmóðir fjögurra barna, þriggja
stúlkna og eins drengs. Hún á dóttur og tók
í fyrra hjónabandi fósturdóttur sem hún að
sjálfsögðu lítur á sem eigið barn. Spurning-
unni um það hvaða merkingu orðið stjúpa
hafi í hennar huga svarar Elsa: „Orðið sjálft
finnst mér ekki jákvætt og kýs frekar að nota
orðið fósturmóðir. Vissulega mætti íhuga
það að finna eitthvert geðþekkara orð því
stjúpa er dálítið grimmt."
Um upphaf sambúðarinnar segir Elsa:
„Það var erfitt til að byrja með. Skammt var
liðið frá láti konunnar þegar við kynntumst
og kannski allt of stuttur tími fyrir alla að
jafna sig á jafn erfiðri staðreynd og dauðinn
er. Að vísu hafði lát konunnar aðdraganda
því hún var í nokkur ár veik af krabbameini.
Sérstaklega fannst mér samband mitt og
tengdamóður mannsins míns, ömmu barn-
64