19. júní - 19.06.1998, Blaðsíða 65
anna, vandasamt. Ég held henni hafi fundist
ég koma of fljótt inn í myndina. Kannski hafði
hún reiknað með að flytja sjálf inn á heimilið
og hjálpa til með dótturbörn sín en svo var
ég allt í einu komin til sögunnar. Ekki að hún
hefði neitt á móti mér persónulega heldur var
eins og samdráttur okkar neyddi hana til að
viðurkenna þá staðreynd að maðurinn vildi
nýjan maka. Ég lagði mig fram um að fullvissa
hana um að ég ætlaði aldrei að taka börnin
frá henni eða á nokkurn hátt skaða þeirra
samband og hún væri alltaf velkomin á heim-
ili okkar."
Togstreita í byrjun
Hefur fyrri reynsla þín úr stjúpfjölskyldu auð-
veldað þér lífið? „( minningunni er æska min
ágæt og ég hafði ekki neinar áhyggjur af því
að mitt hjónaband myndi sigla í strand,"
svarar Elsa og brosir en heldur svo áfram: „I
byrjun var dálítil togstreita milli minna barna
og barna mannsins míns og þá þurftum við
að einbeita okkur að því að ráða fram úr
hverjum degi. Ég held það hafi markað tíma-
mót í samskiptum okkar að við leituðum að-
stoðar hjá fjölskylduráðgjafa kirkjunnar. Við
höfðum gengið í gegnum erfitt tímabil sem
kom niður á börnunum. Hjá ráðgjafanum
fengum við þá staðreynd staðfesta að það
getur enginn komið í staðinn fyrir móður eða
föður og við ættum að gefa börnunum okkar
tíma hvortfyrir sig og við ættum að vera frjáls
að því að sýna þeim blíðu. Atlot barna okkar
gefa okkur mikið og við verðum færari um að
gefa af okkur þegar við erum hamingjusöm
og sátt."
Hjálp að handan
Talið berst að trúmálum og Elsa svarar því ját-
andi að hún trúi á framhaldslíf. „Á ákveðnu
tímabili átti ein stjúpdóttir mín ákaflega erfitt.
Ég var ráðalaus og fyrir tilviljun fór ég með
hana til miðils. Mér til undrunar talaði miðill-
inn til hennar á þann hátt að það gat verið
móðir hennar. Röddin sefaði hana og í lokin
sagði röddin að ég hefði verið valin til að
verða stjúpmóðir þeirra systkinanna. Vissu-
lega kom þetta miklu róti á mig. Kannski eru
hinir látnu nær okkur en við vitum. Ég er ekki
ósátt við þá tilhugsun því móðir barnanna var
góð kona og móðir og öllum mikill
harmdauði. Þessi upplifun hjálpaði bæði mér
og stjúpdóttur minni gegnum ákveðna erfið-
leika."
Talar þú um móður barnanna við þau? „Já.
Mér finnst gott þegar tilefni gefst til þess.
Krakkarnir nefna hana sjaldan núorðið en töl-
uðu meira um hana meðan þau voru yngri og
ég átti trúnaðarstundir með þeim. Ég reyndi
í þeim samtölum að leiða þeim fyrir sjónir að
lífið heldur áfram og við verðum öll að takast
á við daginn í dag, getum ekki fært tímann til
baka þótt við fegin vildum. I upphafi sam-
búðarinnar voru jólin erfiðust," segir hún svo.
„Þegar tekið var upp allt jóladótið sem
minnti á móðurina sem var horfin. Ég vildi
leyfa börnunum að njóta þess sem þau vildu
og nokkur jól vorum við með tvö jólatré, sitt
á hvorri hæð í húsinu. Mér finnst eðlilegt og
mjög æskilegt að þau haldi í allt sem minnir
þau á mömmu sína."
Elsa hikar við að svara spurningunni um
það hvort einhver mál séu erfiðari en önnur.
„Þegar ég hugsa um það finnst mér oft að
þegar krakkarnir geta ekki höndlað eitthvað
tilfinningalega verði gjarnan togstreita um
hluti sem hægt er að meta til fjár."
Gætirðu gefið ráð? „Ég veit það nú ekki. Ég
hef lært að vinna úr málum hverju sinni, slaka
á og veita skoðunum allra svigrúm."
ið áður en kona hans dó og hélt heimili með
börnunum eftir lát hennar og gerði það vel.
Svo vel", bætir hún við og brosir, „að ég er
stundum minnt á þá góðu tíma og saman-
burðurinn er mér ekki í hag. Þá hafi verið eld-
að það sem hver og einn vildi borða."
Taugarnar slitni ekki
Hefur þú hugsað um réttindi þín ef til skiln-
aðar ykkar hjónanna kæmi? Ég hef hugsað
út í það. En ég á fósturdóttur sem mér finnst
vera sem mín dóttir. Hún á foreldra sem hún
Ég vildi leyfa börnunum að njóta þess sem þau vildu og
nokkur jól vorurm við með tvö jólatré, sitt á hvorri hæð í
húsinu. Mér finnst eðlilegt og mjög æskilegt að þau haldi í
allt sem minnir þau á mömmu sína."
Hvað áttu við? „Sennilega er ég mótuð af
uppeldi mínu. Þegar ég lít til baka þá urðu
börn að hlýða og áttu að þakka fyrir um-
hyggju og framfærslu foreldra. ( dag eru for-
eldrar almennt útivinnandi og allir eru að
leita leiða til að létta sér lífið og tilbúnir
skyndiréttir eru hluti af því. Ég vil hafa reglur
í sambandi við heimilishald og ég vil ákveða
hvað á að vera í matinn. Matvendni líð ég illa
því ég er að bjóða krökkunum upp á það
sem ég tel þeim fyrir bestu, eitthvað sem er
hollt og gott."
Elsa segist ekki þekkja margar stjúpur og
finnst þær ekki eiga annað sameiginlegt en
erfiðleika sem tengjast nýjum samböndum.
Svo hlær hún og bætir við: „Einhvern tíma
veit alveg um. Sú staðreynd hefur aldrei
varpað skugga á okkar samband og ég
treysti því að þær taugar sem á milli okkar
eru muni ekki rofna, það sama á við um
stjúpbörn mín."
Að vera stjúpmóðir er því hvorki létt né ein-
falt. „Meðan maðurtrúir því að málstaðurinn
sé góður og maður breyti rétt þá tekur mað-
urframförum og nær árangri. Ef maður íhug-
ar stöðuna reglulega og veltir fyrir sér hvað
betur má fara þá er maður á réttri leið."
Hvernig finnst þér að þér hafi tekist til í
hlutverkinu? „Ætli væri ekki nær að spyrja
börnin Sjálf er ég þakklát fyrir hvað allt hefur
blessast. Sú yngsta er komin yfir fermingu.
„Þegar ég hugsa um það finnst mér oft að þegar krakkarn-
ir geta ekki höndlað eitthvað tilfinningalega verði gjarnan
togstreita um hluti sem hægt er að meta til fjár."
man ég eftir að hafa heyrt að banna ætti
þetta mynstur, að setja saman tvö ólík fjöl-
skyldubrot. Þar með væri náttúrlega engin
stjúpa til. Fyrst og fremst eru það hjónin sem
þurfa að sameinast og leita stuðnings hvort
hjá öðru."
Spurningunni um getu karla til að annast
börnin svarar Elsa: „Karlar eru almennt
skemur einir en konur eftir skilnað eða maka-
missi. Þeir eru alveg jafnfærir og mæður að
sjá um börnin. Maðurinn minn sá um heimil-
Allt er miklu léttara í dag en það var í byrjun.
Við erum heppin með börnin. Heimilið hefur
verið þeirra fasti punktur. Ég held að staðan
sé eins góð og hún getur verið."
65