19. júní - 19.06.1998, Page 68
Skýrsla formanns Kvenréttindafélags íslands
Lögð fram á landsfundi félagsins 6. mars 1999 í Ráðhúsi Reykjavíkur
Aðalfundur 1998
Á aðalfundi 1998 fórfram stjórnarkjör. Hans-
ína B. Einarsdóttir og Hulda Karen Ólafs-
dóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi
setu í stjórn. í aðalstjórn voru kjörnar Ólafía
B. Rafnsdóttir, til tveggja ára og Kristín Ein-
arsdóttir, til eins árs. f varastjórn voru kjörnar
Ragnhildur Guðmundsdóttir og Elín Sigurð-
ardóttir, báðar til tveggja ára.
Nýja framkvæmdastjórnin skipti með sér
verkum að loknum aðalfundi og var þá
þannig skipuð:
Sigríður Lillý Baldursdóttir, formaður
Hómfríður Sveinsdóttir, varaformaður
Ólafía B. Rafnsdóttir, gjaldkeri
Guðný Hallgrímsdóttir, ritari
Kristín Einarsdóttir, meðstjórnandi
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir, Ragnhildur
Guðmundsdóttirog Elín Sigurðardóttir skipa
varastjórn.
Fundir stjórnar og fram-
kvæmdastjórnar
Framkvæmdastjórn hafði sama hátt á og áð-
ur varðandi fundatíðni. Yfir sumarið voru
reglulegir fundir mun færri en yfir vetrartím-
ann. Fundir réðust af verkefnum og voru
nokkuð tíðir þegar mikið stóð til en strjálli
þess á milli. Hins vegarféllu samskipti fram-
kvæmdastjórnarinnar ekki niður milli funda
þar sem félagið hefur net-tengst og allar
framkvæmdastjórnarkonurnar hafa tölvu-
póstfang. Sparaði það okkur mörg sporin að
ræða málin með tölvupósti. Framkvæmda-
stjórnin hefur einnig haldið fjölmarga óform-
lega vinnufundi. Á árinu hafa verið haldnir
fjórtán framkvæmdastjórnarfundir og óform-
legir vinnufundir framkvæmdastjórnar hafa
verið um tuttugu talsins.
Stórustjórnarfundir hafa verið haldnir
mánaðarlega yfir vetrarmánuðina, þó
þannig að þegar félagið hefur staðið fyrir
opnum fundi hefur stórustjórnarfundur verið
felldur niður. Haldnir hafa verið fimm stóru-
stjórnarfundir.
Á afmæli félagsins 27. janúar sl. var hald-
inn opinn félagsfundur sem auglýstur var í
fjölmiðlum.
Opnir fundir og samkomur
félagsins
„Konurnar í húsinu - til styrktar
konum í Bosníu"
Kvenréttindafélagið, ásamt Kvenfélagasam-
Sigríður Lillý Baldursdóttir fráfarandi formaður
KRFl.
bandinu og Bandalagi kvenna í Reykjavík
stóð fyrir fundi um stöðu kvenna í Bosníu
hinn 25. október í fundarsal Hallveigarstaða.
Á fundinn kom Vilborg Auður ísleifsdóttir
sagnfræðingur sem hefur búið í Þýskalandi
um árabil og staðið þar að stofnun kvenna-
hreyfingarinnar BISER. BISER hefur m.a. stað-
ið fyrir kaupum á húsnæði þar sem starfrækt
hefur verið miðstöð fyrir konur, þeim til upp-
byggingar, og eins er stefnt að þvf að koma
á laggirnar einhverri starfsemi og framleiðslu
þar sem konurnar geta fengið vinnu. Ástand-
ið í Bosníu er afar slæmt og hefur það bitnað
illa á konum. Skrifstofa BISER í Sarajevo býð-
ur upp á stuðning við konur sem hafa orðið
fórnarlömb ofbeldis og nauðgana. Einnig fá
konur sem hafa slasast og örkumlast í stríðinu
og ekkjur aðstoð BISER. Miðstöðvar hafa
einnig verið opnaðar í Zagreb, Tuzla og
Travnik. Vilborg gerði grein fyrir sögu lands-
ins og þeim þjóðernishópum sem þar búa og
takast nú á með hörmulegum afleiðingum.
Félagið stóð að fundinum ásamt hinum
„konunum í húsinu" og er það, eftir því sem
við best vitum, í fyrsta sinn sem þessar
kvennahreyfingar vinna saman að verkefni.
Félögin standa fyrir ólíkri starfsemi og við-
hafa mismunandi vinnubrögð og þess vegna
er samstarf þeirra að verkefni sem þessu svo
mikilvægt því styrkurinn býr þar í margbreyti-
leikanum. KRFÍ tók að sér að auglýsa fundinn
í fréttabréfinu og hvetja félaga að leggja inn
á reikning BISER. Kvenfélagasambandið,
sem er samband kvenfélaga þúsunda
kvenna um allt land, gerði slíkt hið sama og
Bandalagið safnaði fyrir saumavélum sem
verða sendar til Tuzla.
Kvennamessa 19. júní 1998
Kvenréttindafélagið stóð ásamt Kvennakirkj-
unni og Kvenfélagasambandinu fyrir messu
við Þvottalaugarnar í Laugardal hinn 19. júní.
Sigríður Lillý Baldursdóttir og Guðný Hall-
grímsdóttir voru fulltrúar okkar í undirbún-
ingsnefnd vegna messunnar sem fór fram
með miklum ágætum í fjölmenni og ágætu
veðri. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédik-
aði, séra Guðný Hallgrímsdóttir leiddi bæn
og formaður KRFÍ flutti ávarp við upphaf
messunnar. Fulltrúar frá Kvenfélagasam-
bandinu og Kvennakirkjunni tóku einnig virk-
an þátt í messugjörðinni. Er það von fram-
kvæmdastjórnarinnar að kvennamessa 19.
júní verði árviss atburður hjá félaginu.
Jólafundurinn
KRFl hélt jólafund sinn hinn 4. desember í
kjallara Hallveigarstaða. Fundurinn var með
svipuðu sniði og árið áður. Skáldkonur voru
fengnar til að lesa upp úr bókum sínum, að
þessu sinni komu Silja Aðalsteinsdóttir, sem
las upp úr Ijóðabókinni Perlur úr Ijóðum ís-
lenskra kvenna, Gerður Kristný sem las úr
bók sinni Eitruð epli, Guðrún Helgadóttir
sem las úr barnabókinni Aldrei að vita og
Guðrún Eva Mínervudóttir sem las úr smá-
sagnasafni sínu Á meðan hann horfir á þig
ertu María Mey. Wilma Young spilaði á fiðlu
á fundinum. Að upplestri loknum flutti séra
Guðný Hallgrímsdóttir jólahugvekju.
Menntunin; mátturinn og
dýrðin?
Kvenréttindafélagið stóð fyrir ráðstefnu um
menntun kvenna og stöðu þeirra á vinnu-
markaði fyrr í dag hér í ráðhúsinu. Flutt voru
erindi um menntun og menntunarmöguleika
kvenna og að þeim loknum voru pall-
borðsumræður um stöðu kvenna á vinnu-
markaðinum. Á ráðstefnunni voru eftirfar-
andi erindi flutt: Menntun, máttur og dýrð
kvenna, Sigríður Lillý Baldursdóttir, Hlutur
kvenna í skólastarfi, Björn Bjarnason,
menntamálaráðherra, Er kynjamunur horfinn
úr menntakerfinu? Jón Torfi Jónasson, pró-
fessorvið Háskóla (slands, Skapandi nám, að
skapi kvenna, Valgerður Bjarnadóttir,
68