19. júní - 19.06.1998, Page 72
Skýrsla formanns Kvenréttindafélags íslands
Skýrsla formanns Kvenréttindafélags Islands
Lögð fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var 26. mars 1998 í fundarsal Hallveigarstaða
Aðalfundur 1997
Á aðalfundi 1997 fór fram stjórnarkjör og
urðu þær breytingar á stjórninni að Sigríður
Lillý Baldursdóttir tók við formennsku í fé-
laginu í stað Bryndísar Hlöðversdóttur sem
gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Hólmfríður
Sveinsdóttir og Guðný Hallgrímsdóttir voru
kjörnar í aðalstjórn og í varastjórn var kjörin
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir.
Nýja framkvæmdastjórnin skipti með sér
verkum að loknum aðalfundi og var þá
þannig skipuð:
Sigríður Lillý Baldursdóttir, formaður
Hansína B. Einarsdóttir, varaformaður
Hulda Karen Ólafsdóttir, gjaldkeri
Guðný Hallgrímsdóttir, ritari
Hómfríður Sveinsdóttir, meðstjórnandi
Kristín Einarsdóttir, Áslaug Dóra Eyjólfs-
dóttir og Ólafía B Rafnsdóttir skipa vara-
stjórn.
Fundir stjórnar og fram-
kvæmdastjórnar
Síðastliðið sumar og fram eftir hausti voru
framkvæmdastjórnarfundir haldnir vikulega
en á fundi framkvæmdastjórnar 11. septem-
ber var ákveðið að halda fundi fram-
kvæmdastjórnar aðra hverja viku á fimmtu-
dögum en nýta þá fimmtudagshádegið hina
vikuna til vinnufunda framkvæmdastjórnar
eða annarra hópa vegna verkefna sem væru
i vinnslu. Síðan þá hafa fundir framkvæmda-
stjórnar að jafnaði verið hálfsmánaðarlega.
Haldnir hafa verið tuttugu og sjö fram-
kvæmdastjórnarfundir og hátt í það jafn
margir óformlegir vinnufundir.
Stórustjórnarfundir hafa verið haldnir
mánaðarlega yfir vetrarmánuðina, þó
þannig að þegar félagið hefur staðið fyrir
opnum fundi hefur stórustjórnarfundur verið
felldur niður. Haldnir hafa verið sex stóru-
stjórnarfundir. Fjórir hefðbundnir hér í þess-
um sal eða á skrifstofu okkar uppi, en tveir
með nokkuð öðru sniði heima hjá formanni.
Stjórnarkonur komu þar saman í júní til að
Ijúka vetrarstarfinu, kveðja fráfarandi for-
mann og þakka ritstjórn 19. júní fyrirframúr-
skarandi gott blað. ( því hófi nutum við
góðra veitinga sem SS, Hagkaup og ÁTVR
höfðu sent okkur í afmælisgjöf í skreyttum
húsakynnum með blómum frá Blómastofu
Friðfinns. ( síðustu viku hélt stórastjórnin aft-
ur fund á heimili formanns og var til þess
fundar einnig boðið heiðursfélögum KRFl
og fyrrum formönnum.
Framkvæmdastjóraskipti
í september síðastliðnum hætti Edda Hrönn
Steingrímsdóttir störfum sem framkvæmda-
stjóri félagsins og við störfum framkvæmda-
stjóra tók Sigrún Edda Jónsdóttir. Fram-
kvæmdastjórn kvaddi Eddu Hrönn í hófi
heima hjá formanni og var formönnum sem
unnið höfðu með henni einnig boðið til veisl-
unnar. Ég vil þó nota þetta tækifæri til að
þakka Eddu enn á ný mikið og gott starf
hennar fyrir félagið. Sigrún Edda hefur, auk
þess að sinna framkvæmdastjórn félagsins,
umsjón með Hallveigarstöðum. Kvenrétt-
indafélagið mun sjá um rekstur hússins til
hausts 1999.
Opnir fundir félagsins
„Heimilið — griðarstaður gerenda"
Kvenréttindafélagið stóð fyrir fagumræðu
um heimilisofbeldi undir yfirskriftinni „Heim-
ilið — griðarstaður gerenda" — fagumræða
um heimilisofbeldi. Fundurinn var haldinn 8.
apríl 1997 í Borgartúni 6.
Undirbúningur fundarins var í höndum
Ólafíu B. Rafnsdóttur fyrir hönd félagsins en
kveikjan að fundinum var skýrsla dómsmála-
ráðherra um orsakir, umfang og afleiðingar
heimilisofbeldis og annars ofbeldis gegn
konum og börnum. Fundurinn var mjög vel
sóttur. Flutt voru fræðandi erindi og eftir
framsögur spunnust góðar umræður. Sjötíu
manns skráðu sig í gestabók félagsins, en
búast má við að fundargestir hafi verið nokk-
uð fleiri. Til fundarins var boðið fagfólki af
ýmsum toga og félögum í KRF(.
Formaður KRF( setti fundinn en síðan
fluttu frummælendur erindi sín. Hildigunnur
Ólafsdóttir, afbrotafræðingur, og Þórdís Sig-
urðardóttir, félagsfræðingur, kynntu skýrslu
dómsmálaráðuneytisins um heimilisofbeldi.
Ingólfur V. Gíslason, félagsfræðingur, og
Guðrún Ágústsdóttir, forseti borgarstjórnar,
fjölluðu um leiðir til úrbóta; Ingólfur um
meðferð ofbeldismanna en Guðrún um
kostnað þjóðfélagsins. Svavar Gestsson al-
þingismaður stjórnaði fundi fram að matar-
hléi. Eftir mat stjórnaði Hansína B. Einars-
dóttir, afbrotafræðingur, pallborðsumræðum
með þátttöku þeirra sem flutt höfðu fram-
sögu.
Fundinum voru gerð ágæt skil í fjölmiðl-
um, en því miður sá dómsmálaráðuneytið
sér ekki fært að styrkja KRF( vegna fundarins
eins og þó hafði komið til tals við undirbún-
ing hans. Dómsmálaráðherra var sérstaklega
boðið að ávarpa fundinn en hann þekktist
ekki boðið.
Kvennamessa 19. júní 1997
Kvenréttindafélagið stóð ásamt Kvennakirkj-
unni og Kvenfélagasambandinu fyrir messu
við Þvottalaugarnar í Laugardal hinn 19. júní.
Guðný Hallgrímsdóttir og Kristín Einarsdótt-
ir voru fulltrúar okkar í undirbúningsnefnd
vegna messunnar sem fór fram með miklum
ágætum í fjölmenni og yndislegu veðri á frá-
bærum stað. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
prédikaði, séra Guðný Hallgrímsdóttir leiddi
bæn, formaður KRF( flutti ávarp við upphaf
messunnar og Kristín Einarsdóttir las ritning-
arorð. Fulltrúar frá Kvenfélagasambandinu
og Kvennakirkjunni tóku einnig virkan þátt í
messugjörðinni.
Stelpur í stjórnmálum
Miðvikudaginn 12. nóvember stóð KRFÍ fyrir
opnum fundi á Kornhlöðuloftinu. Yfirskrift
fundarins var: „Stelpur í stjórnmálum —
Hvað vilja þær, hvernig vegnar þeim?" Um-
fjöllunarefnið var staða kvenna í stjórnmál-
um, ímynd kvenna og hvernig hún samræm-
ist ímynd stjórnmálamannsins sem er hlut-
verk sem sagan hefur skrifað fyrir karlmenn.
Að ávarpi formanns loknu fluttu fjórir fram-
sögumenn erindi, en að loknu sérhverju er-
indi aðstoðuðu rýnar fundargesti við að
spyrja þá spjörunum úr.
Erindi fluttu: Helgi H. Jónsson, fréttastjóri,
en rýnar hans voru: Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir, Arnþrúður Karlsdóttir og Sólveig
Pétursdóttir. Ásdís Halla Bragadóttir, for-
maður SUS, rýnar hennar voru: Margréti K.
Sigurðardóttir, Svala Jónsdóttir og Össur
Skarphéðinsson. Soffía Guðmundsdóttir,
fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri, rýnar
hennar voru Aðalheiður Sigursveinsdóttir,
Hreinn Hreinsson og Kristjana Bergsdóttir.
Og að lokum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
andspænis rýnunum Árna Mathiesen og
Ingu Jónu Þórðardóttur, en Sigurður G.
Tómasson hafði átt að vera í þeim hóp en
komst ekki til fundar.
I stuttu máli má segja að fundurinn hafi
verið bæði gagnlegur og skemmtilegur.
Hann var vel sóttur; þegar best lét voru fund-
argestir um eitt hundrað talsins. Umræður
voru fjörugar og sitt sýndist hverjum um að-
gerðir til að fjölga konum í stjórnmálum og
styrkja þær þegar þangað er komið. Sumum
þótti rétt að taka ekki fram fyrir hendur á ríkj-
andi viðhorfum í samfélaginu sem birtust þá
í vali fólks í prófkjörum, aðrir töldu að til rót-
tækra aðgerða þyrfti að grípa. Sumir töluðu
af langri reynslu en aðrir af nokkuð styttri
veru í stjórnmálum.
Að undirbúningi fundarins unnu Soffía
Guðmundsdóttir, Hólmfríður Sveinsdóttir,
72