Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 6
RITSTJÓRNARGREIN
Kauphðllin er ekki fyiir sólóista
Kunnur blaðamaður spurði mig að því, þegar
langt var liðið á íjiilmiðlafárið sem varð vegna
fréttar um yfirtöku Mundar á Baugi Group og
fyrirhugaða afskráningu Baugs úr Kauphöll
Islands, hvort þetta væri nokkurt mál. Er þetta
ekki bara gamla góða gúrkan? Eg sagðist vera
sammála honum um að búið væri að leggja allt of
mikið út af einhverjum samsæriskenningum um
ástæðu afskráningarinnar. Að vísu hefði Jón
Asgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, verið svolítið
tvíræður í viðtölum vegna þessa máls. Jafnframt hefði ég enga
trú á því að Baugur seldi rekstur sinn hérlendis og hyrfi með
allt sitt hafurtask út til Bretlands. Þess má geta að Mundur er
að stærstum hluta í eigu Bónusflölskyldunnar, en aðrir eig-
endur eru Kaupþing og félög í eigu Ingibjargar Pálmadóttur,
Péturs Björnssonar, fyrrv. eiganda Vífilfells, og fáeinir aðrir.
félögum með samþjappað eignarhald, þ.e. fáa
mjög stóra hluthafa, erfiðara fyrir að uppfylla
strangt skráningarhæfi Kauphallarinnar. I
mörgum löndum er þetta hlutfall raunar lægra,
eða 33%. Yfirtökuskyldan er höfð til að vernda
rétt smárra hluthafa og er það vel.
Kauphöll Islands er ekki að hverfa þótt vissu-
lega sé skarð höggvið í hana með brotthvarfi svo
margra fyrirtækja úr henni. Kauphöllin er for-
senda sparnaðar almennings í formi hlutabréfa.
En fyrst svo mörg félög eru á leiðinni út verður að spyija sig
hvers vegna þau vilja yfirhöfuð fara þar inn. Það gera þau til
að sækja frekar fjármagn til hluthafa en lánastofnana, auk
þess sem það auðveldar mörgum gömlum hluthöfum í
félögum, t.d. frumkvöðlum í lokuðum fjölskyldufyrirtækjum,
að losna út og selja hluti sína á skráðu markaðsverði.
Hverfur Kauphöllin? Þessi umræða sýnir auðvitað enn og
aftur hvað Baugur og BónusJjölskyldan eru vinsælt fréttaefni.
Fréttin var í raun ekki önnur en sú að Baugur yrði afskráður
úr Kauphöllinni. Astæðan er sú sama og hjá öðrum skráðum
stórfyrirtækjum sem til stendur að afskrá á næstunni, en þau
eru Olís, Ker, íslenskir aðalverktakar og Plastprent. Saman-
lagt verðmæti þessara fimm félaga er um 50 milljarðar og
nemur um 9% af heildarverðmæti fyrirtækja í Kauphöllinni.
Eigendur þeirra sjá sér engan hag í því lengur að hafa félögin
skráð í Kauphöllinni og uppfylla strangt regluverk hennar og
skilyrði um skráningarhæfi. Það er auðvitað umhugsunarefni
hvers vegna svona er komið. Er Kauphöllin að hverfa og
verða þar engin önnur félög en nokkrir bankar og sjávar-
útvegsfyrirtæki eftir nokkur ár? A þriðja tug fyrirtækja hafa
verið afskráð á síðustu árum, m.a. vegna samruna við önnur
fyrirtæki. Eignarhaldið vefst líka svolítið fyrir mönnum. Hinn
1. júlí nk. taka t.d. í gildi lög um að yfirtökuskylda í skráðum
félögum skapist þegar tiltekinn aðili ráði yfir 40% hlut í fyrir-
tæki. Til þessa hefur verið miðað við 50% hlut. Þetta gerir
Ekki metið sem Skyldi Baugur hefur verið skráður á
markaði í um fimm ár. Gengi hlutabréfa í félaginu hefur lítið
hækkað og viðskipti með bréf í því hafa verið hverfandi
undanfarið - og það þótt félagið hafi á síðasta ári skilað
mestum hagnaði eins félags í Islandssögunni, eða yfir 7 millj-
arða hagnaði eftir skatta, og tilkominn var vegna fjárfestinga í
Bretlandi. Félagið er núna með digra sjóði til fjárfestinga eftir
methagnaðinn. Eflaust líta eigendur Baugs svo á að markað-
urinn hafi ekki metið félagið sem skyldi og til hvers þá að hafa
það á markaði. Félagið er orðið flókið og allt annað en það var
fyrir fimm árum. Það er bæði fjárfestingafélag og matvöru-
keðja. Síðast en ekki síst eru eigendur Baugs svonefndir
sólóistar, frumkvöðlar. Þeim lætur vel að vera einir, frjálsir og
á eigin forsendum í viðskiptum. Til hvers þá að hafa farþega í
aftursætinu með sér þegar stefnt er á áhættufjárfestingar í
Bretlandi? Er ekki betra að hætta eigin fé en annarra í slíkum
leiðangri og vera óbundinn af regluverki Kauphallarinnar?
Kauphöllin lifir, en hún er ekki fyrir sólóista. 33
Jón G. Hauksson
Stofiiuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 65. ár
Sjöfn Gudrún Helga Geir Ólafsson Hallgrímur
Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson
auglýsingastjóri blaðamaður útlftshönnuður
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir
BLAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir
UÓSMYNDARI: Geir Ólafsson
UMBROT: Hallgrímur Egilsson
ÚTGEFANDI: Heimur hf.
V heimur
RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA:
Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 512 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@heimur.is
ÁSKRIFTARVERÐ: kr 7.700.-10% afsláttur ef greitt er með kreditkorti.
LAUSASÖLUVERÐ: 799 kr.
DREIHNG: Heimurhf., sími 512 7575
PRENTVINNSLA: Gutenberghf.
UÓSMYNDIR: © Heimur hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
ISSN 1017-3544
6