Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 65
AHRIF HflBL fl VIÐSKIPTflLÍFIÐ
særinda sem fylgt geta. I flestum tilfellum fær sjúklingurinn
lungnabólgu sem getur líkst hvort heldur sem er bakteríu- eða
veirulungnabólgu og getur þróast yfir í ARDS (Acute
Respiratory Distress Syndrome). Meðgöngutíminn er 2-7
dagar en getur orðið allt að 10 dagar.
Stokkið milli tegunda Sérfræðingar í smitsjúkdómum segja
þennan faraldur vera sýnishorn af því sem búast má við í fram-
tíðinni. Aðstæður í heiminum, þar sem stór hluti íbúanna er á
stöðugum faraldsfæti og geta þannig borið smit með örskots-
hraða um allan heim, geri að verkum að faraldrar af þessu tagi
og aðrir slíkir séu stöðug ógnun og í raun eðlilegt framhald.
Stephen Morse, sérfræðingur í smitsjúkdómum hjá Columbia
háskóla í Bandaríkjunum, segir aukin ferðalög valda því að fólk
komist nú í snertingu við bakteríur og veirur sem fram til þessa
hafi verið einangruð fyrirbæri og geti flutt þær á einum degi til
stórþorga þar sem engar varnir finnast. „Þetta er ekki spurning
um hvort, heldur hvenær," segir hann og bætir við: „Nútíma
landbúnaðarhættir, þar sem dýrum er hrúgað saman á lítið
svæði, gera að verkum að sjúkdómar breiðast út eins og skógar-
eldur í þurrum skógi.“
Margir sjúkdómar geta farið á milli tegunda og eru sjúk-
dómar í svínum sérstaklega hættulegir. Svín og menn geta smit-
ast af sömu sjúkdómum og þegar þeir berast með rottum og
fuglum, sem þeir gera gjarnan, verður úr þessu ansi skæð
blanda. I ljósi þessa er ekki skrítið þó suðurhluti Kína sé álitinn
upphafsstaður HABL. Öldum saman hefur Guandong hérað
verið eitt þéttbýlasta svæði heims, bæði hvað varðar menn og
dýr sem hafa lifað í miklu nábýli. Það útskýrir reyndar fleiri sjúk-
dóma sem uppruna sinn eiga á þessu svæði og setur varúðar-
merki á önnur svæði heims þar sem svipuð hætta skapast.
Til viðbótar við þessa hættu eru veirur duglegar að stökk-
breytast og eiga fremur auðvelt með að innlima hluta erfða-
mengis annarra tegunda.
Ekki bráðsmitandi Innan Alþjóða heilbrigðismálastofnunar-
innar, WHO, er það daglegt brauð að búist sé til varnar gegn
smitsjúkdómum sem ógna mannkyninu. Flesta þeirra er hægt
að hemja fremur hratt og heimsbyggðin fréttir aldrei af þeim
nema þeir sem skoða heimasíðu stofnunarinnar og svo heil-
brigðisstarfsmenn sem áhuga hafa á því að fylgjast með. HABL
hefúr þó fengið nokkra sérstöðu og má meðal annars sjá það af
því að WHO hefur opnað sérstaka heimasíðu fyrir sjúkdóminn,
http://www.who.int/csr/sars/en/, þar sem hægt er að fylgjast
með flestu því sem breytist í sambandi við sjúkdóminn og með
tilmælum og ábendingum til ferðafólks.
Hér á Islandi hefur sóttvarnarlæknirmn, Haraldur Briem,
borið hitann og þungann af upplýsingaflæði vegna sjúkdóms-
ins. „I ljósi þess að sjúkdómurinn virðist ekki vera bráðsmitandi
og að það er greinilega hægt að hemja útbreiðsluna með tiltölu-
lega einföldum en ströngum reglum, þykir mér sýnt að hann
verði ekki sú ógn sem hann annars gæti orðið,“ segir Haraldur
Briem. „Þar fyrir utan virðist sem þessi sjúkdómur, líkt og aðrir
svipaðir, valdi mestum skaða hjá þeim sem eru illa undir það
búnir að verða veikir, nefnilega eldra fólki og veikburða. Dánar-
Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir segir sjúkdóminn ekki
bráðsmitandi og að ísland sé vel í stakk búið til að eiga við
hann, berist hann hingað.
tíðnin hjá þeim sem orðnir eru 60 ára er snöggtum hærri en
hinna yngri og það er í samræmi við aðra hættulega öndunar-
færasjúkdóma. Hins vegar er á það að líta að Islendingar eru
almennt heilsugóðir og sterkbyggðir og hér er heilsugæslan
góð og miklu betri en víða annars staðar. Við erum þvi ágætlega
undir það búin að hér komi hugsanlega upp tilfelli af HABL og
getum gripið í taumana strax.“
Efnabagslífið Ahrif sjúkdómsins á efnhagslíf heimsins eru
mikil. Fyrst og fremst í Asíu og hvergi meira en í Hong Kong
en borgin hefur verið meira og minna í gjörgæslu undanfarið
vegna sjúkdómsins. Gríðarlegur samdráttur er í ferðamanna-
iðnaði, innkaupavísitalan sýnir rúmlega 20% lækkun og telur J.R
Morgan að samdrátturinn á þessum ársflórðungi geti orðið allt
að 8%. Gríðarlega mörg smáfyrirtæki eru í Hong Kong og finna
þau fyrir áhrifunum fremur stærri fyrirtækjum sem hafa fleiri
leiðir til að bjarga sér. Óttast er að erlend fyrirtæki muni draga
úr fjárfestingum og fara annað og það rekur hastarlega á eftir
yfirvöldum um að bregðast við.
Ferðamannaiðnaðurinn kemur verst út vegna sjúkdómsins
og hefur ferðamönnum fækkað um allt að 50% í ýmsum Asíu-
löndum og nærri 40 prósentum allra flugferða til Hong Kong
hefur verið aflýst. Hótel skýra frá því að nýtingin sé í sögulegu
lágmarki og jafnvel undir 10%.
Flugfélögin China Airlines, Thai Airways, Cathay Pacific og
Vietnam Airlines hafa öll dregið stórlega úr ferðum til Asíu-
landa og Malaysian Airlines tflkynnti þann 28. apríl að öllum
áætlunum félagsins um stækkun hefði verið frestað og að sjúk-
dómurinn hefði þegar kostað félagið um 30 milljónir dollara.
Kostnaður og einahagsleg aðstoð who segir beinan kostnað
á heimsvísu vegna sjúkdómsins nálgast 30 milljarða dollara en
sá kostnaður deilist á margar þjóðir. Alþjóðabankinn hefur sagt
að sameinuð áhrif HABL og stríðsins í Irak séu líkleg til að
65