Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 43
þvíumlíku. Hann hefur ekki verið virkur sem daglegur stjórn-
andi í Granda nema undanfarið tæpt ár en sagt er að hann sé
enginn „sparistjórnandi“. Hann ekur daglega um bryggjurnar,
hittir menn og spjallar og stundum fer Ingibjörg kona hans
með honum. Hann „fer upp í skipin, þvælist upp og niður stiga
og talar við fólkið á gólfinu," segir Agúst.
NÆRMYND ÁRNI VILHJflUVlSSON
Góður Skylmingamaður Árni lærði hagfræði við Harvard
University i Bandaríkjunum. Hann fylgist afskaplega vel með
fræðunum, fer reglulega í bókabúðir erlendis og les gríðarlega
mikið. Hann er mjög næmur á umhverfi sitt og það sem er að
gerast, flíkar ekki því sem hann veit en tekur hlutunum af
mikilli alvöru, hvort heldur það er kennsla, stjórnun eða
peningamál. Hann var vinsæll kennari, blandaði geði við
stúdentana og mætti gjarnan í samkvæmi. Stefán Friðfinnsson,
forstjóri íslenskra aðalverktaka, er í hópi gamalla nemenda sem
hafa hitt Arna og fleiri gamla kennara úr viðskiptadeildinni
reglulega einu sinni á ári, á sjálfan bóndadaginn.
,Árni er afspyrnu skemmtilegur maður og kennari og mjög
fær í sínu fagi. Hann var alla tíð félagi nemenda sinna og hrókur
alls fagnaðar, hvort sem það var í vísindaleiðöngrum háskóla-
áranna eða við önnur tækifæri. Það var aldrei neitt kynslóðabil
á milli okkar þó að hann væri einhveijum árum eldri. Þetta voru
heldur tyrfin fög sem hann kenndi en lifandi kennsla Arni bætti
heilmikið úr skák. Hann var burðarásinn í kennslunni þarna og
það sem margir okkar kunna, það lærðu þeir hjá Arna,“ segir
Stefán og bætir við að Árni sé afburða skylmingamaður. „Mér
er minnisstætt þegar ég eitt sinn sá hann skylmast við Tony
Knapp, landsliðsþjálfara í knattspyrnu, á veitingastað hérlendis.
Mátti ekki á milli sjá hvor væri betri, Árni eða Tony Knapp, en
við héldum allir með Árna.“
Eftir að háskólastúdentar fóru að gefa kennurum sínum ein-
kunnir kom fyrir að Árni fengi þá umsögn að hann væri
óstundvís. Hann velti þessu lengi fyrir sér og komst að þeirri
niðurstöðu að í rauninni væri ekki verið að gagnrýna hann fyrir
óstundvísi í tíma, því að það var hann ekki, heldur frekar fyrir þá
sök að hann átti það til að gleyma sér í frásögnum og halda
áfram efdr að tímanum lauk. [£]
r
Arni Vilhjálmsson
Fæddur í Reykjavík 11. maí 1932.
Kvæntur Ingibjörgu Björnsdóttur, sagnfræðingi og fv.
skólastjóra Listdansskóla Islands. Þau eiga þrjár dætur. Ásdís
Helga landslagsarkitekt er gift Guðmundi Franklin Jónssyni
viðskiptafræðingi í Prag og eiga þau þrjú börn. Birna Björk er
BS í landafræði. Maki hennar er Sigurður Tómas Björgvins-
son stjórnmálafræðingur og eiga þau saman eitt barn. Auður
Kristín sagnfræðingur er í sambúð með Einari Þór Harðar-
syni viðskiptafræðingi og eiga þau tvær dætur.
Foreldrar Vilhjálmur Árnason skipstjóri og Guðríður
Sigurðardóttir húsfreyja. Árni á tvær systur, Kristínu og
Sigríði.
Menntun Stúdentspróf (MR1951), cand. oecon. (HÍ1954),
AM. og General Oral Examination for Ph.D. (Harvard 1957),
Teaching fellow (Harvard 1956-1957). Gjesteassosiat við
Oslóarháskóla 1958-1959.
Ferill Starfandi stjórnarformaður Granda (frá júlí 2002) og
þar áður stjórnarformaður félagsins (frá 1988). Árni var
prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Islands (1961- 2001) og
kenndi reikningshald og rekstrarhagfræði við HI 1959-1960.
Árni var hagfræðingur hjá Alþjóðabankanum í Washington
DC (des. 1960-sept. 1961), svo að nokkuð sé nefiit. Hann
hefur gegnt flöldanum öllum af trúnaðarstörfum fyrir hið
opinbera og atvinnulífið og setið í stjórnum flölda fyrirtækja,
m.a. Hampiðjunnar, Hvals, Flugleiða, Granda, Verðbréfa-
þings og Nýheija. í mörgum fyrirtækjum hefur hann verið í
forystu. Eflir Árna liggja mörg merk ifæðirit.
Ahugamál Sjávarútvegur, lestur og fræðagrúsk, laxveiði,
badminton, bridds og skylmingar. HD
43