Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 121

Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 121
 Loftur Árnason, framkvæmdastjóri ístaks. Mynd: Geir Ólafsson Loftur Arnason framkvæmdastjóri ístaks Eftir Vigdísi Stefansdóttur Loftur Arnason er nýr framkvæmdastjóri verk- takafyrirtækisins ístaks en hann er þar öllum hnútum kunnugur eftir að hafa starfað í Jjölda ára hjá Jyrir- tækinu. „Eg hef unnið hjá Istaki frá stofnun fyrirtækisins," segir Loftur. „Undanfarin ár hef ég unnið við hlið Páls Sigurjóns- sonar, fráfarandi fram- kvæmdastjóra, og verið hans næsti maður. Eg þekki því starfið vel og sé ekki að ég muni gera neinar þreytingar á fyrirtækinu. Páll verður áfram innan fyrirtækisins sem stjórnarformaður og því hægt að leita til hans eftir sem áður en það er mikill styrkur Jyrir fyrirtækið." Loftur segir samkeppnina mikla í verktakageiranum og íslensk fyrirtæki að því leytinu til ólík erlendum að vegna smæðar markaðarins þurfi þau að vera allt í öllu. „Við þurfum að vera mjög Jjölhæfir og geta gengið í nánast öll verk en það er ólíkt þvi sem gerist erlendis þar sem iyrirtæki sérhæfa sig á ákveðnum sviðum og koma ekki nálægt öðrum. Að mínu mati gerir þetta íslensk fyrir- tæki sterk í samanburði við önnur og mjög hæf í sam- keppni. Verkefni Istaks eru gríðarlega Jjölbreytt, bæði hér á landi og erlendis, en aðaleigandi Istaks er danskt fyrirtæki, Pihl & son, sem er í eigu Sorens Langvad, og af því leiðir að alltaf eru einhver verkefni unnin í öðrum löndum. Þessa dagana er Istak t.d. samstarfsaðili að stóru verkefni í Hammerfest í Noregi þar sem við erum með 40 starfsmenn." Loftur er fæddur og alinn upp á Grenivík. Hann tók stúdentspróf frá MA og fór þaðan í verkfræði í Háskóla íslands. Eftir það lá leiðin til Kaupmannahafnar þar sem hann lauk verkfræðinámi sínu árið 1969. „Strax að loknu námi hóf ég störf við Búrfells- virkjun hjá þeim sem síðar stofnuðu Istak,“ segir Loftur. Eftir það tók ég þátt í ýmsum stórframkvæmdum á vegum fyrirtækisins, s.s. Mjólkár- virkjun, hafnargerð í Þorláks- höfn, hafnargerð í Færeyjum og virkjun Hrauneyjarfoss svo eitthvað sé nefnt. Eg var líka um tíma í Danmörku þar sem ég vann við sjúkrahús- byggingu og fór einnig nokkrum sinnum til Israel að vinna. Eftir að ég varð yfir- verldræðingur hjá Istaki hef ég verið meira á aðalskrifstof- unni en hef þó komið nálægt nær öllum þeim verkefnum sem ístak hefur sinnt. Loftur segist vera sveita- strákur að upplagi og alltaf sótt í útiveru og veiðiskap. „Það að vera úti við var svo stór þáttur í uppvextinum og sjálfsagður að ég hef ekki getað losnað við það,“ segir hann. „Eg sæki í veiðiskap og skytterí af ýmsu tagi og gönguferðir um Jjöll og firn- indi. Vinnan tekur þó ansi mikið af mínum tíma og svo þarf einnig að sinna Jjölskyld- unni. Eg hef smávegis fiktað í golfi en byijaði svo seint á því að ég held að ég verði aldrei nógu góður til að vera ánægður með það sjálfur.“ Hvað ferðalög snertir segist Loftur helst ferðast innanlands ef hann eigi þess kost. „Ég hef auðvitað þurft að ferðast talsvert erlendis starfsins vegna en mér þykir íslensk náttúra frábær og vil helst vera hér heima í frítímum.“H!] 121
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.