Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 84
„Svona gera fagmenn" gæti Gunnlaugur Helgason verið að
segja - en hvað er hægt að lesa út úr því hvernig hann heldur
á borvélinni?
Kona er ekki bara kona
Gunnlaugi Helgasyni, byggingameistara og sjónvarps-
stjörnu, er skemmt þegar hann fær það verkefni að ritja
upp minningar - snikkarasögur.
„Veistu, mig langar miklu meira til að ræða dótaflkn
iðnaðarmanna," segir hann með stríðnisglott á vör. „Horfðu
bara á iðnaðarmann eða áhugamann um smíðar inni í verslun
sem selur fagverkfæri. Þetta er alveg eins og að horfa á
krakka í dótabúð! Eini munurinn er sá að fullorðni einstak-
lingurinn hefur aðeins meiri sljórn á sér, hoppar ekki og
skoppar um allt...“
Gunnlaugur segist hafa óskaplega gaman af því að fylgjast
með þessu og sérstaklega hversu ólíkt menn bera sig að.
Sumir eru fljótir að ákveða sig, grípa það verkfærið sem þeim
líst á og kaupa það á meðan aðrir koma fyrst í hádeginu,
skoða vandlega og strjúka verkfærunum blíðlega. Hugleiða
kosti og galla, koma svo aftur og hafa jafnvel farið í aðra búð
í millitíðinni til að bera saman verð og gæði og í þriðja sinn
kaupa þeir stykkið - ef það hefur staðist allar rannsóknir.
Þetta er eiginlega alveg eins og þegar karlar eru að velta
konum fyrir sér. Sumir sjá konuna, ráðast til atlögu og eru
snöggir á meðan aðrir fara sér hægar. Svo er auðvitað alltaf
spurning um það hvort hentar betur því kona er ekki bara
kona frekar en verkfæri er bara verkfæri.
Gunnlaugur bætir því við að það væri sennilega gáfúlegt
fyrir konur að fara í verkfæraverslanir ef þær vildu reikna út
persónuleika þeirra sem þær hefðu áhuga á að kynnast betur.
„Nú, eða þá til að kynnast körlum - það er örugglega ekkert
verri leið en að stunda skemmtistaði,“ bætir hann við og á
greinilega erfitt með að hemja stríðnispúkann sem vill
bijótast út.S!]
84
Örn Árnason mundar hamarinn, vígalegur á svip.
Hnífurinn er bestur
■ ■
Orn Arnason leikari er vanur maður þegar um smíðar og
viðgerðir er að ræða. Hann er óspar á ráð varðandi ýmis
verk og á gott safn verkfæra eins og gefur að skilja. En
jafnvel menn eins og hann geta lent í klípu eins og við hin og
Örn segir hér frá tveim slíkum atvikum.
„Eg hafði keypt fataskáp, ósamsettan, og þurfti að koma
honum saman. Eg ákvað að sýna skynsemi og setja hann
saman að hluta til úti í bílskúr þar sem var miklu betra pláss en
í herberginu þar sem hann átti að vera. Þegar ég var búinn að
koma saman grindinni og bakinu var kominn tími til að koma
skápnum inn. Hurðin var geymd til betri tíma og átti að setjast
á seinna. Þetta var skápur í fullri stærð, 2,50 m á hæð og talsvert
mál að hreyfa hann.
Nema hvað, ég kom skápnum inn um dyrnar og inn ganginn
- með talsverðum harmkvælum, því það var ansi þröngt um. Svo
komst hann inn í herbergið og þá sat allt fast því auðvitað var
ekki hægt að reisa skápinn upp þar sem hann var miklu hærri
þegar hann var reistur svona upp á ská en lofthæðin leyfði!
Eg varð því að bíta í það súra epli að koma skápnum út aftur
og taka hann sundur og setja hann saman aftur inni í herberg-
inu. Það þarf víst ekki að taka það fram að þetta tók óratíma, sér-
staklega að taka hann sundur aftur.“
En hin sagan er svona: „Ég var einhvern tíma að leggja flísar
á heilt gólf og inni á miðju gólfinu ætlaði ég að gera bekk, hálfar
flísar, sem renndar voru í hring og þannig búin til skreyting.
Þetta voru stórar flísar, 50 x 50 sm, en litlu flísarnar sem skornar
voru úr þeim stóru voru 25 x 25 sm. Ég byijaði að leggja
flísarnar og það gekk bara vel. Þar til kom að síðustu flísinni.
Hún komst ekki í gatið. Ég horfði á þetta og reyndi aftur og
aftur en ekkert gekk. Flísin stóð alltaf upp á hinar. Ég skildi
þetta ekki. Þetta var þaulreiknað og átti að passa. Allt í einu sá
ég hvar villan lá. Það voru fúgurnar. A milli flísanna voru nefni-
lega 4 mm fúgur og það var í góðu lagi þar til ég reyndi að setja
helmingi fleiri flísar í plássið og gleymdi að reikna með því að
fúgan þyrfti þá að vera helmingi þynnri til að allt gengi upp!“
Þegar Örn var spurður um uppáhaldsverkfærið sitt þagnaði
hann andartak en sagði svo: „Það er tvímælalaust hnífurinn.
Hann er hægt að nota til margra hluta og hann þarf ekki raf-
magn.“ S3