Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 33
STJÓRNUN JflCK WELCH
Jack Welch: „Ráðið keppnisfólk“
Efdr Jón G. Hauksson
Jack Welch kom víða við á fundi sínum á Nordica
hótelinu. Hann ræddi um mikilvægi þess að stjórnendur
hefðu tilfinningu fyrir rekstrinum og löðuðu til sín góða
starfsmenn - sem væru sölumenn í sér, hvaða starfi sem þeir
annars gegndu - og vildu ná árangri. Það hefði allt að segja.
„Þetta er eins og í íþróttum. Þið verðið að ná í bestu leik-
mennina og það er ykkar hlutverk að láta þá ná vel saman og
vinna sem lið sem ætlar sér ekkert nema sigur í leiknum."
Hann bætti við að það væri hlutverk stjórnenda að tendra
neistann og ná upp þessum sigurvilja. „Látið fólk finna til sín,
látið það skynja að það hafi áhrif; þannig fyllist það eldmóði
og fær ástríðu á starfinu. Gleðin og ánægjan í starfi skiptir
öllu máli. Gerið allt til þess að fólki finnist gaman í vinnunni
og að það njóti þess að ná settum markmiðum.“
Mikilvægi sjálfstrausts Welch sagði að stjórnendur ættu að
koma sér upp skipulögðum verðlaunakerfum gagnvart starfs-
mönnum til að þeir næðu markmiðum fyrirtækisins; m.a. kerfi
er byggðist á bónusum og kauprétti á hlutabréfum. „Utkoma
alls fyrirtækisins er það sem skiptir máli, þess vegna er mikil-
vægt að horfa á heildina; að heildin nái árangri. Bónusar, sem
eingöngu ganga út á að verðlauna einstakar deildir, ná ekki
tilætluðum árangri gagnvart öllu fyrirtækinu. Þeir geta raunar
haft hræðilegar afleiðingar og sökkt því. Borgið öllum bónusa
út frá heildinni, þannig að allir fari að hugsa meira um heild-
ina.“ Hann sagði að það væri samt ekki nóg að setja upp verð-
launa- og afkastahvetjandi kerfi til að fólk hefði garnan af vinn-
unni og yrði æst í að ná árangri. „Þið verðið að leggja áherslu á
heiðarleika, óformlegheit og stöðugleika í fyrirtækjum ykkar.
Starfsmenn verða að vita hvar þeir standa og hvar þeir hafa yfir-
mann sinn. Starfsmenn verða að fá klapp á bakið og finna fyrir
trausti frá yfirmanni sínum, það skapar sjálfstraust. Enginn
nær árangri án sjálfstrausts og eldmóðs. Heiðarleiki er að segja
hlutina eins og þeir eru. Það gengur ekki að segja „vel gert“ við
einhvern starfsmann og reka hann svo heim daginn eftir.
„Heim, þú sem sagðir að ég hefði unnið vel og ég væri góður“.
Þið verðið að byggja starfsmenn ykkar upp og endurhlaða
orku þeirra, þeir eru auðlind ykkar.“
Hvar er hagnaðurinn? Jack lagði mikla áherslu á að stjórn-
endur og starfsmenn spyrðu sig sífellt urn hagnað af verk-
efnum. „Það er ekki nóg að einblína á söluna. Hvar er hagnað-
urinn? Hver þekkir ekki að gerðir hafi verið miklir sölu-
samningar í desember, í lok ársins, þótt þeir væru ekki nægi-
lega hagkvæmir, bara til að ná sölumarkmiðum ársins." Þótt
General Electric sé eitt allra stærsta fyrirtæki heims - með
starfsemi um allan heim og 300 þúsund starfsmenn - er ljóst
að Welch hefur miklar mætur á litlum fyrirtækum og hversu
hvik þau geta verið. „Haldið ykkur við smáfyrirtækisbraginn
þótt þið verðið stórir. Það er affarasælast. Stórrekstur getur
mjög auðveldlega orðið ljótur, leiðinlegur, ijarlægur, erfiður
og ekkert nema skriffinnskan. Njótið þess að vera stórir, en
stjórnið samt þannig að sveigjanleikinn hverfi ekki og að
menn missi ekki marks á aðalatriðinu; að vinna vel, vera sam-
keppnishæfari en keppinautarnir í þjónustu og verði, og njóta
þess að fagna smáurn sem stórum sigrum, eins og svo auð-
velt og gaman er að gera í smáum fyrirtækjum. Það er mikil-
vægt að fagna sérhverjum árangri og njóta þess að sigra.“
Welch var spurður urn það hvernig honum hefði tekist að
sameina fjölskyldulíf sitt og forstjórastarf. Hann sagðist vera
mikill golfáhugamaður og að hann hefði fundið sér tíma fyrir
golf, m.a. þegar hann hefði átt að vera í vinnunni og ekki síst þá
hefði verið spennandi og gaman að spila. Golfið er leiðinlegt
þegar maður er kominn á eftirlaunaaldurinn.“
Það fer ekki á milli mála að hér fer mikill reynslubolti. Það
var vel til fundið að fá hann hingað til lands. S3
EPSON®
Stylus 950
ALVORU
UOSMYNDA-
PRENTUN
• Prentar á A4 blöS og rúllupappír
• 7 lita prentun, 5760 api upplausn
• Prentar beint á geislaaiska
• InnbyggSur pappírsskeri
HmftiiRus
LAUGAVEGI 178 • SIMI 570 7575 • www.hanspetersen.is
33