Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 120
Og eftirlæti margra íslendinga, David Beckham hjá
Manchester United, sparkar bolta í skyrtu með merki Voda-
fone.
Vodafone er í samstarfi við Schumacher og Ferrari og því
bregður vörumerki þeirra alltaf öðru hvoru fyrir á skjánum.
Nafnið sameinar kostina
Vodafone er eitt af sterkustu vöru-
merkjum í heimi og þó að fyrirtækið
haíi ekki verið starfandi á íslenskum
markaði hefur það ekki farið framhjá
íslendingum því að markaðsstarf þess
hefur verið sýnilegt í gegnurn útsend-
ingar á knattspyrnuleikjum í Ensku
úrvalsdeildinni og þátttöku Schumacher
og Ferrari í Formula 1 keppninni. Voda-
fone er nú komið í samstarf við annað
stærsta fjarskiptafyrirtækið á íslenskum markaði, nefnilega
sameinað félag Íslandssíma, Halló og Tals sem hlotið heíúr
nafnið „Og Vodafone". Nafnið þykir sérstakt og hefúr verið milli
tannanna á fólki frá þvi það var kynnt um miðjan apríl. Skoðanir
hafa verið skiptar, sumum finnst það smellið og skemmtilegt,
öðrum finnst það ekki ganga.
Til hagsbóta Pétur Pétursson, forstöðumaður upplýsinga- og
kynningarmála Og Vodafone, segir yfirstjórn fyrirtækisins ekki
hafa áhyggjur af þessu. Og sé stutt og þjált íslenskt orð og það sé
lýsandi fyrir þetta litla félag og starfsemi þess. Ekki hafi komið til
greina að nota nöfn gömlu félaganna því að starfsmenn og við-
skiptavinir eigi auðveldara með að starfa saman og samsama sig
nýju nafni. Og sé notað til að tengja saman tvö orð eða orðasam-
bönd, samanber „Komdu og talaðu við mig“, og því sameini það
kosti hins smáa og stóra á alþjóðlegum vettvangi viðskiptavinum
til hagsbóta. „Við erum fullvissir um að þetta virki vel sem nafn.
Þær kannanir sem við höfum ládð gera eftir að við kynntum
merkið hafa leitt í ljós að þekking á vörumerkinu og nýju nafni
félagsins er afar mikil miðað við að um nýtt nafn sé að ræða,“
segir hann. Vodafone er ekki eignaraðili að Og Vodafone og því
kom aldrei til greina að hið sameinaða félag bæri einungis nafnið
Vodafone. „Vodafone ljær ekki nafn sitt til félaga sem það á
ekkert í þvt að stjórnendur þar vilja hafa áhrif á rekstur þeirra
félaga sem starfa að fullu undir þeirra merki. Við gerðum því
samning við þá um svokallað tvímerki, sem þýðir að við verðum
að nota eitthvað annað nafn með Vodafone-nafninu. Við tókum þá
ákvörðun að nota „Og“ á fyrrgreindum for-
sendum. Og Vodafone verður í framtíðinni
notað um vöru og þjónustu félagsins, t.d.
verður það heitið á verslunum félagsins, en
félagið sjálft mun heita „Og ijarskipti" fáist
til þess samþykki á hluthafafundi 3. júní.
Það getur samt vel verið að hefð skapist
fyrir því að félagið verði kallað Vodafone í
daglegu tali. Við munum ekki amast við því
frekar en að Vífilfell amast við því að Coca
Cola er af flestum kaflað Coke.“
Færir krónur í kassann Þrátt fyrir sýnileika Vodafone hér á
landi þekkja íslendingar ekkert sérstaklega vel tfl fyrirtækisins.
Vodafone er breskt að uppruna og á í dag hlut í farsímafyrir-
tækjum í 28 löndum. Fyrirtækið hefur gert samstarfssamninga
í átta löndum að íslandi meðtöldu. Vodafone þjónar yfir 120 millj-
ónum farsímanotenda og er því eitt stærsta farsímasamfélag í
heimi. Félagið hóf farsímaþjónustu í Bretlandi 1985 sem hluti af
fyrirtækinu Racal Electronics og óx mjög hratt. I september
1991 varð Vodafone, sem stendur fyrir voice og data og phone,
að sérfyrirtæki. Fyrirtækið leggur áherslu á tai- og gagnaflutn-
inga, m.a. um farsíma.
- En hvað þýðir hetta samstarf fyrir íslendinga? „innan
skamms tíma gefúr samningurinn viðskiptavinum okkar kost á
að fá aðgang að farsímaneti Vodafone og samstarfsaðila þeirra
þannig að reikiumhverfið verður mun stærra en áður og símar
Og Vodafone munu virka á mun stærra svæði úti í heimi. Hvað
reikiþjónustu varðar þá munum við bjóða upp á ýmsar áskriftar-
leiðir fyrir þá sem eru á ferðalögum þannig að menn geti notið
betri kjara erlendis en fyrst og fremst hefur þetta þá þýðingu að
við getum komið mun hraðar með nýja þjónustu á markaðinn.
Loks þýðir þetta eitt viðmót fyrir notendur hvar sem þeir eru á
Vodafone farsímanetum í heiminum," svarar Pétur og telur að
samstarfið við Vodafone muni einnig færa fleiri krónur í kassann
hjá Og Vodafone í gegnum erlenda ferðamenn hér á landi. SH
Nafninu - eða stærstum hluta pess -
bregður stöðugt fyrir á skjánum,
íslenska fyrirtœkinu til hagsbóta ogþá
skiptir engu máli pó að fullt nafn sé
Og Vodafone. Vodafone styrkir nefni-
lega Ferrari og Manchester United.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
120