Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 115
ORKUVEITUHÚSIÐ - ARKITEKTÚR
Við húsið. Gott útsýni er nefnilega svo
róandi og þægilegt og virkar um leið vel
á hugann.“
Áberandi en bó hógvært Það er áhuga-
vert að skoða hvernig húsið spilar inn í
umhverfið. Þó að það sé gríðarstórt og
að hluta til svart og ætti þannig að verða
mjög áberandi og yfirgnæfandi í
umhverfinu, er ekki svo. Það fellur ótrú-
lega inn í og það er ekki fyrr en komið er
mjög nálægt að það sést hversu stórt það
er. Iiturinn utan á vesturhúsinu, sem er
klætt áli, er síbreytilegur efdr veðri og
birtuskilyrðum. Svarta granítið, sem
klæðir austurhúsið, gefur því virðuleika
og festu og til samans mynda húsin þijú
fallega heild sem spilar vel með umhverf-
inu og landslaginu. Spennan sem form
hússins myndar gefur vísbendingu um
starfsemina. Við hönnun hússins hefur
það verið haft að leiðarljósi að húsið
styrki ímynd fyrirtækisins sem fram-
sækið hátæknifyrirtæki.
Hagnýtar upplýsingar Það er gríðai-
lega mikið mál að hanna og byggja slíkt
hús þannig að það þjóni sínum tilgangi
auk þess að passa inn í umhverfið.
„Við nutum þess hve mjög var vandað
til allrar forvinnu af hendi Orkuveit-
unnar,“ segir Ólafur. „Þarfagreiningin
var mjög nákvæm og vel unnin og til
mikillar fyrirmyndar. Húsið var svo
byggt á rétt rúmum tveimur árum og
efnið í það sótt víða að, t.d. kom stein-
klæðning austurhússins frá Kína,
álklæðning vesturhússins kom frá
Danmörku og svo mætti lengi telja.
Mjög gott samstarf var milli allra
hönnuða hússins, enda um spennandi
og einstakt verkefni að ræða. Burðar-
virki var hannað hjá Linuhönnun, hita-
og loftræstilagnir hjá Almennu verk-
fræðistofunni og Fjarhitun, en hönnun
raflagnakerfis var í höndum Rafhönnun-
ar. Loks annaðist Verkfræðistofa Snorra
Ingimarssonar þá þætti er lutu að bruna-
vörnum og öryggismálum.
I svona stóru og flóknu verkefni
myndast óhjákvæmilega mikilvægur
gagnabanki, sem um margt er einstakur,
og mun án efa mun nýtast okkur vel í
framtíðinni við lausn á sambærilegum
verkefnum.“ BD
GÆÐASTEFNA
Orkuveitu Reykjavíkur
Orkuveitan leggur höfuðáherslu á gæði þeirrar vöru og þjónustu sem fyrirtækið
lætur af hendi. Starfsmenn Orkuveitunnar vita að gæði, áreiðanleiki og arðsemi
í rekstri tryggir árangursríkt starf.
Orkuveitan gerir sér grein fyrir mikilvægi þess að vernda auðlindir þjóðarinnar
og tryggja eins og kostur er sjálfbæra nýtingu þeirra.
Starfrækt er gæðaráð sem samhæfir og stjórnar aðgerðum á sviði gæðamála.
Ahersla er lögð á að starfsmenn þekki og tileinki sér gæðastefnu fyrirtækisins.
STEFNA ORKUVEITU REYKJAVÍKUR ER:
• Að vera traust og ábyrgt fyrirtæki, sem veitir viðskiptavinum sínum aðgang
að nægri orku og vatni með fullnægjandi gæðum og afhendingaröryggi.
• Að veita viðskiptavinum sínum hraða, sveigjanlega og hagkvæma þjónustu.
Að uppfylla kröfur um hollustu, öryggi og umhverfi.
Að vinna eftir ströngum reglum við kaup á vörum og þjónustu.
Að á virkjunarsvæðum og öðrum viðkvæmum svæðum séu að öllu jöfnu ekki
notuð efni eða verklag sem rýrt geti gæði vatnsins og gilda strangar reglur
um frávik.
Að fara að kröfum staðalsins ISO 9001 og bæta stöðugt virkni
gæðastjórnunarkerfisins.