Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 80
LUNDÚNAPISTILL SIGRÚNflR DflVÍÐSDÓTTUR
Aðalsmenn hopa fyrir
óbreyttum auðkýfingum
Listi Sunday Timesyfir 1.000 ríkustu Englendingana
sýnir að „gamlirpeningar“dala ogþeir„nýju“ eru í
uppsveiflu. Ríkasti maðurinn erpó enn hertoginn af
Westminster sem á hálfa miðborg Lundúna. Rowling,
höfundur Harry Potter, er ríkasta konan á eigin for-
sendum, komin upp fyrir drottninguna.
Eftír Sigrúnu Davíðsdóttur í London
eir dagar eru löngu liðnir að kóngurinn sé ríkasti maður
Englands. Drottningin er ekki nema í 133. sæti á listanum
yfir þúsund ríkustu Englendinga, metin á 250 milljónir
punda, á árlegum auðkýfingalista Sunday Times, sem nýlega
var birtur. Og hún er aðeins í 11. sæti auðkvennalistans.
Potterskaparinn Joanne Rowling komst í ár upp íyrir
drottninguna, metin á 280 milljónir, er í 9. sæti kvennalistans og
122. sæti listans. Iistinn er alltaf fréttaefni og í ár var framganga
Rowling aðalfréttaefnið. Með nýrri bók í ár og æ umfangsmeiri
Potterafurðum er ljóst að auður Rowling gerir ekkert nema
vaxa. I fyrra gifdst hún enskum lækni og er nýbúin að eignast
son. Hann mun heldur betur eiga aðra daga en dóttirin, sem er
tíu ára og fæddist þegar Rowling dró fram lífið sem einstæð
móðir á 70 pundum á viku. Auðugasta konan er Slavica
Ecclestone, eiginkona Bernie Ecclestone, eiganda Formula
1, en þau eru saman í 3. sæti listans. Allar konurnar fyrir ofan
Rowling njóta góðs af fjölskyldu eða eiginmönnum. Hún er sú
eina þeirra, sem hefur skapað sinn auð sjálf.
Hertoginn Of Westminster Fjórða árið í röð trónir hertoginn
af Westminster í efsta sæti og þá er komið að tölum sem
munar um; eignir hans eru metnar á 4,9 milljarða punda, eða á
um 588 milljarða króna. Uppistaðan í auðæfúm hins 51 árs
gamla hertoga, sem heldur sig til hlés við fjölmiðla, eru landar-
eignir í Lundúnum. Hann á hreinlega lóðir í öllum dýrustu
hverfum borgarinnar. Reyndar misvísandi að tala um lóðir, því
um er að ræða landflæmi eins og 100 ekrur í Mayfair og tvö-
falda þá fláttu í Belgravia. Nú er talað um að fasteignaverð fari
dalandi í höfúðborginni, og þó lóðaverðið haldi nokk sínu gæti
hann fundið fyrir niðursveiflunni. Nú hefur hertoginn beint
athyglinni að lóðakaupum og byggingaframkvæmdum í
Skotlandi og víðar um landsins breiðu byggð.
Philip Green í 6. sseti í 6. sæti er kaupnautur Baugsmanna,
hinn kjaftfori Philip Green, metinn á 1,85 milljarða punda, var
Richard Branson, eigandi Virgin samsteypunnar, er 15. rík-
asti Bretinn.
Góðkunningi Jóns Ásgeirs, Philip Green, er sá sjötti ríkasti
og ýmsir spá því að hann eigi eftir að toppa listann áður en
iangt um líður.
80