Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 40
VINNUSTREITA
Streituvalda má tjarlægja og breyta Það er afer einstaklings
bundið hvað veldur starfsfólki streitu. Oft er þó starfsfólk sam-
mála um helstu streituvalda í starfsumhverfinu, streituvalda
sem oft má íjarlægja, breyta
eða milda þannig að
orka starfsfólks
beinist að þeim
kröfum sem eru
eðlilegar og ekki
verður komist
hjá þrátt fyrir
bætt skipu-
lag eða
breytingar.
Jákvæð
áhrif þess,
að starfs-
falin
stjórn
sjálf-
Abyrgð og álag fylgja sem betur
fer flestum störfum. Hæfilegt
álag er afl sem hvetur starfs-
menn til nýsköpunar og framkvæmda
enda er fátt meira letjandi (og jafnvel
streituvaldandi) en störf sem bjóða
upp á endalausa endurtekningu og
takmarkaða áskorun.
Samt sem áður er ekki æskilegt að
álagið sé svo mikið og það langvinnt
að það leiði til neikvæðrar streitu hjá
starfsfólki. Langvinn streita hefur ekki
aðeins neikvæð áhrif á andlega og lik-
amlega heilsu fólks heldur hegðun
þess og starfsgetu sem svo aftur hefur neikvæðar afleiðingar
fyrir fyrirtæki (sjá töflu).
Lykillinn að streitustjórnun í fyrirtækjum er að takmarka
óþarft álag í starfsumhverfinu og búa starfsfólki aðstæður og
byggía upp menningu sem hjálpar því að hámarka leikni sína
til þess að að mæta álagi.
Kannanir benda til þess ab meira en
fjórði hver starfsmaður á Islandi þjáist
afstreitu. Kostnaðurinn birtist í því
að starfsmenn verða afkastalitlir þótt
þeir mæti til vinnu, í raun ófærir um
að klára verkefnin á hefðbundnum
vinnutíma. En hvað geta fyrirtæki
gert til að ráða bót á þessu?
Efdr Steinunni I. Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafsson
starfi sem er í samræmi við reynslu
þess, getu og þekkingu, eru vel þekkt.
Sjálfrœði í kröfuhörðum störfum
minnkar ekki aðeins streitu heldur ýtir
undir nýsköpun og nám (sjá meðfylgj-
andi töflu um sjálfræði). Hæft starfs-
fólk þekkir starf sitt og starfsaðstæður
best og ætti því að hafa hæfilegt um-
boð til afhafna og vera haft með í ráð-
um við ákvarðanir er varða starf þess.
Stuðningur stjórnenda og samstaris-
fólks En það er mikilvægt að hafa í
huga að sjálfsstjórn er ekki nóg ein sér
því hún dregur ekki úr neikvæðum afleiðingum mikils álags
nema starfsmaður njóti líka stuðnings stjórnenda sinna og
samstarfsfólks. A það við um bæði tæknilegan stuðning stjórn-
enda, svo sem góðan aðgang að upplýsingum um tæknileg
atriði og ákvarðanatökur, og félagslegan stuðning sem hvetur
fólk til dáða í samræmi við persónuleika og stöðu þess innan
liðsheildarinnar.
Óskipulag Ó tíma veldur Streitu Þar sem eitt mikilvægasta
atriði í streitustjórnun er að viðkomandi finnist hann hafa
stjórn á aðstæðum sínum er mikilvægt að öðlast leikni í að
stjórna tíma sínum vel. Það er ekkert eitt einfalt ráð til við tíma-
stjórnun en þó má nefna ýmis hagnýt heilræði sem henta
mörgum (sjátöflu).
Einn algengasti streituvaldur í nútíma vinnuumhverfi, fyrir
utan samskiptaörðugleika, er einfaldlega sá að hafa ofmikið að
gera á of skömmum tíma. Margir hafa ekki önnur ráð en að
lengja viðveruna í vinnunni til
þess að komast yfir
nauðsynleg verk-
efni enda er
þekkt að
starfsfólki þyki
löng viðvera vera
hluti af óskráðum
lögum eða menning-
unni á sínum vinnustað
en flest höfum við þó hlut-
verki að gegna utan vinn-
unnar, ýmist sem fjölskyldu-
meðlimir, vinir eða félagsverur.
Eins og gefur að skilja er líklegt
að kröfur um mikla viðveru
og nýtingu á andlegri og
Streita starfsmanna