Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 18
BflNKAMflL í BRENNIDEPLI
Gjörbreytt landslag
Sjáum hvernig landslagið á hankamarkaðnum
hefur gjörbreyst á nokkrum vikum og mánuðum:
1 Kóngurinn í bankaheiminum, Valur Valsson,
bankasljóri Islandsbanka, sagði fremur óvænt upp í
íslandsbanka eftir afar farsælt starf þar í áratugi og
hefur sest í helgan stein.
2 Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings banka,
varð starfandi sljórnarformaður og tók Hreiðar Már
Sigurðsson við starfi hans sem forstjóri Kaupþings
banka.
3 Kaupþing „stakk óvænt undan“ Landsbanka og
Islandsbanka og gekk í það heilaga með Búnaðar-
bankanum.
4 Árni Tómasson, bankastjóri Búnaðarbankans til
nokkurra ára, hætti í kjölfarið.
5 Landsbankinn „braut blað“ og sagði mjög óvænt upp
20 rótgrónum starfsmönnum úr stjórnendahópi bank-
ans fyrir um tveimur mánuðum. Slikt hefur aldrei áður
gerst í Landsbankanum. Skilaboðin: Nýr kúltúr.
6 Nýir eigendur Landsbankans voru ósáttir við að
„missa“ Búnaðarbankann til Kaupþings og „gerðu
sögulega árás“ á hann í staðinn og náðu frá honum 26
þekktum starfsmönnum, þeirra á meðal þremur
framkvæmdastjórum. I flimtingum hefur þetta verið
nefnt „bankamannaránið mikla“.
7 Sigutjón Þ. Árnason, einn hinna þriggja fram-
kvæmdastjóra Búnaðarbankans sem fengnir voru yfir
til Landsbankans, varð óvænt annar tveggja aðal-
bankastjóra þar og stýrir bankanum ásamt Halldóri
Jóni Krisljánssyni. Samkvæmt skipuriti bankans mun
mjög mæða á Sigurjóni í endurskipulagningu
bankans.
8 Landsbankinn keypti Búnaðarbankann í Lúxem-
borg sem stofnaður var fyrir aðeins tveimur árum og
græddi Búnaðarbankinn um 450 milljónir á þeirri
sölu. Ágæt ávöxtun það! Blekið var vart þornað þegar
Islandsbanki réðst til adögu við nýja eigendur bank-
ans og nappaði tjórum Dönum úr Búnaðarbankanum
í Lúxemborg.
9 Hver heföi trúað þvi fyrir nokkrum árum að banka-
sljórarnir í bönkunum þremur yrðu innan við fertugt.
Siguijón Þ. Árnason, Landsbanka, er tæpra 37 ára.
Bjarni Ármannsson, Islandsbanka, er 35 ára og
Hreiðar Már Sigurðsson er 32 ára. Það er komin ný
kynslóð bankastjóra á Islandi.
10 Nú segja menn að vart sé hægt að toppa „hina
herskáu" atburðarás síðustu vikna nema þá að
Landsbanki og Islandsbanki sameinuðust og til yrðu
„nýjar herbúðir“. Litlar líkur eru á því vegna sam-
keppnisráðs. [£]
SKULDIR HEIMILA
(Lán til einstaklinga - Tölur í milljónumJ
Bankar og sparisjóðir ...................... 195.274
íbúðalánasjóöur........................ 391.512
Fjárfestlánasjóðir rr.d. kreditkortaf.) ... 7.371
Lífeyrissjóðir............................... 84.300
LÍN ......................................... 54.754
Annað (Tryggingafélög.eignaleigur og fl.) ... 27.190
fllls: ......................... 760.401
11% - Lífeyrissjóðir
7% - LÍN
4% - flnnað
26% - Bankar og sparisjóðir
I l ------------------
Það er athyglisvert að aðeins um fjórðungur skulda einstaklinga
er við banka og sparisjóði. Þetta þýðir að Samkeppnisráð á
erfiðara með að hafna sameiningu íslandsbanka og Landsbanka
vegna „inn- og útlána" á markaðnum.
1. árs- |S r • y !! j m %r U ;
fjorðungur g|
Búnaðarbanki íslandsbanki Kaupþing Landsbanki
Eignir 264.139 330.678 228.223 280.893
EipiS fé 15.954 18.386 18.072 17.006
HagnaSur e. skatta 581 1.062 813 813
Útlán 200.403 258.854 84.102 215.793
Innlán 91.536 84.101 74.063 113.960
Gjöld 1.830 2.180 2.556 2.345
Hreinar RT 3.023 3.980 3.781 4.053
MarkaSsvirSi 13/5 (ma.kr.) 28,445 44,640 30,970 27,862
Heimild: Islandsbanki
Helstu lykiltölur úr rekstri bankanna á 1. ársfjórðungi þessa árs.
Markaðsvirði Kaupþings Búnaðarbanka er tæpir 60 milljarðar.
Markaðsvirði Landsbanka-íslandsbanka yrði um 73 milljarðar.
„VERÐUM EKKI LENGI MINNSTIR“
Eftir kaup Kaupþings banka á Búnaðarbankanum er Landsbank-
inn orðinn minnsti bankinn. Björgólfur Guðmundsson, for-
maður bankaráðs Landsbankans, hefúr ítrekað sagt að bankinn
ætli sér ekki að vera lengi minnstur. Þau orð hafa verið túlkuð þannig
að bankinn beri núna víurnar í Islandsbanka. Þessir tveir bankar
vinna núna náið saman í gegnum Fjárfestingafélagið Straum og eru
þar tveir stærstu hluthafarnir. Þess utan er vitað að Landsbankinn
ætlar sér frekari hluti í London. Þar á hann fyrir Heritable bankann,
sem sérhæfir sig í lánum til verktaka á byggingamarkaði, en fæstum
kæmi á óvart þótt Landsbankinn keypti þar annan banka á þessu ári
sem sérhæfði sig í lánum til íbúðakaupa.
Flestir eru vantrúaðir á að af sameiningu Islandsbanka og
Landsbanka geti orðið eftír að Kaupþing og Búnaðarbanki runnu
saman. Sá ráðahagur var á dögunum staðfestur af samkeppnisráði,
þ.e. ráðið lagðist ekki gegn sameiningunni. Flestir telja að ráðið
myndi engan veginn samþykkja sameiningu Islandsbanka og
Landsbanka þar sem þeir eru báðir mjög stórir og öflugir og næðu
með því ráðandi stöðu á viðskiptabankamarkaðnum.
Samkeppnisráð búið að gefa tóninn? Raunar má lesa út úr
niðurstöðu samkeppnisráðs vegna samruna Kaupþings og
18