Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 97

Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 97
Veiðidellan lætur ekki að sér hæða og þær eru margar sög- urnar sem ganga undir sam- heitinu „veiðisögur". Þær eiga það sameiginlegt að flestir telja þær mestu ýkjur og sumar hreinustu lygi en um leið fullyrða sögumenn að hvert einasta orð sé hreinn sann- leikur. Jón Ingvar Pálsson, lögfræð- ingur hjá Innheimtustofnun sveitar- félaga, er þekktur veiðimaður og hefur frá ýmsu að segja eftir langa veiðiævi. „Eg byijaði sem leiðsögumaður við veiðar 1978 og var við það í um 10 ár eða til 1988,“ segir Jón Ingvar. „Efflr það hef ég verið með annan fótinn við leiðsöguna en á þessum árum hef ég auðvitað kynnst mýgrút Jón Ingvar Pálsson og sonur, Jón Ingvar Jónsson, með góða veiði úr Stekknum í Norðurá í júní 2002. Veiddi þann sama tvisvar! af merkilegu fólki og orðið vitni að ótrúlegustu atburðum fyrir utan nú allar veiðisögurnar sem ég get sagt persónulega...og allar dagsannar!" Notaði lausu dagana Jón Ingvar hefur ekki látið sér duga að veiða á Islandi heldur hefur hann farið víða um lönd og veitt og þar á meðal til Ameríku og Kúbu en sagan sem hann ætlar að segja er frá Laxá í Kjós. „Þannig var að þegar ég var leiðsögumaður í Kjósinni kom það íýrir að dagar voru lausir og þá gat maður skotíst og veitt smávegis. Eg var, þegar þessi saga gerðist, árið 1983 líklega, líka veiðivörður og notaði mér gjarnan lausu dagana. Einn dag þegar leið á haustíð var laus stöng og ég svindlaði mér auðvitað upp í efsta svæðið með það sama. Þetta var á veiðistað sem heitír Efri-Stekkjarflöt en það er staður sem yfirleitt er ekki mjög gjöfull eða viðvarandi veiðistaður en ég hafði heyrt það eftir vini mínum, Olafi Helga Olafssyni, bónda á Valdastöðum í Kjós, að þarna væri talsvert af fiski svo ég hugsaði mér gott tíl glóðarinnar og fór að kasta. Það gerðist ekki neitt. Nákvæmlega ekki neitt tyrst um sinn. Nema hvað fiskurinn stökk allt í kring um mig, mest leginn smáfiskur. Þegar ég var kominn niður týrir miðjan streng og var á annarri eða þriðju flugu varð ég íýrir því að flugan, sem var með þríkrækju, festist í sporði á fiski. Þetta var smáfiskur eins og þeir sem voru að stökkva í kringum mig og ég ætlaði bara að reyna að slíta hann frá því ég hafði engan áhuga á honum og nennti ekki að elta hann um allt. Ekki tókst mér hins vegar að slíta hann lausan og áður en ég vissi af var hann kominn að mér og ég tosaði hann upp. Það var reyndar ekkert auðvelt að ná tökum á honum svona með fluguna í sporðinum. Við það að grípa í sporð laxins og snara honum upp á land losnaði öngullinn og stakkst í lófann á mér, rétt við þumalinn. Fiskurinn slapp við það sama og synti sína leið. Sneri ég mér að því að losa öngulinn. Það gekk nokkuð greiðlega en ég veitti því athygli að þarna voru bara tvær krækjur eftir á flugunni, sú þriðja hafði týnst. Sagan er dagsönn Ég lét það ekki á mig fá og greip aðra flugu í boxinu, gula Frances, flugu sem fáir veiðimenn með sjálfsvirðingu nota fyrr en í lengstu lög. Ég fór beint efst í strenginn aftur og kastaði flugunni. Þar kastaði ég 2-3 köst og labbaði aðeins niðureftir og það var eins og við manninn mælt að það var tekið um leið. Ég varð glaður og hélt að ég væri kominn í veislu þarna og bjó mig undir átök við fiskinn. Sá var hins vegar ekki á sömu skoðun og barðist hreint ekkert mér til undrunar. Ég rotaði hann og sá að hann hafði kokgleypt öngulinn og fór að velta því íýrir mér af hverju hann hefði ekki reynt að berjast af rneiri hörku. Ég skoðaði hann allan og sá þá í honum öngul - í sporðinum! Þetta var þá sami fiskur og ég hafði veitt áður. Það var nú á skjön við kenn- inguna sem segir að maður fái sama fisk ekki aftur daginn sem maður missir hann og að styggður fiskur taki ekki agn. En þessi saga er dagsönn og ég man hana eins og hún hafi gerst í gær - þó það séu rétt 20 ár síðan...“ BD 97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.