Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 119
VÍNUiyiFJÖLLUN SIGMflRS B.
kynnst neyslu léttvíns á erlendri grundu, lært að njóta
góðs víns. Þá hafa margar vísindarannsóknir sýnt fram
á að hófleg neysla léttvíns er holl og hefur jákvæð áhrif
á heilsu okkar. Mörgum líður einfaldlega betur eftir að
hafa drukkið eitt til tvö glös af víni með matnum.
Fjölmargir Islendingar eiga nú sumarbústaði.
Sumarbústaðir nútímans eru flestir hverjir búnir öllum
nútímaþægindum. Margir heimsækja sumarbústaði sína allt
árið um kring, þeir eru orðnir eins og annað heimili fólks.
Mikill flöldi fólks verslar í verslunum ATVR í Borgarnesi og
á Selfossi í vikulokin. Meirihluti þeirra viðskiptavina er fólk
sem er að fara í sumarbústaði sína.
UIÐ GRILLIÐ
ÁSTROLSK VÍN ERU TILVALIN MEÐ GLÓÐARSTEIKTU KJÖTI. ÞAU
ERU BRAGÐMIKIL, EIKAR- OG KRYDDBRAGÐ, IÐULEGA BRAGÐ
AF ÞURRKUÐUM ÁVÖXTUM OG JAFNVEL SÚKKULAÐI.
Ég mæli með hinu frábæra franska víni úr Alsace-héraði
Chateau Insebourg Tokay Pinot Gris Le Clos á 1.990 krónur.
Þetta eryndislegtvín, sýrulítið og ekki tanninríkt. Ljúft ávaxta-
og kryddbragð, yfirgnæfandi er bragð af melónu, banana og
hunangi. Kryddbragðið er flókið en meðal annars vottar íyrir
vanillubragði. Þetta vín er einnig mjög gott með bragðmiklum
ostum og reyktum laxi eða silungi.
Sumarbústaöavín Ég hef oft orðið var við það að fólk
kaupir ódýrari vín þegar það fer í sumarbústaðinn, oft er það
svokallað kassavín. Það er eins og fólk haldi að vin skemmist
eða versni við það að fara í sumarbústaðinn. Eins og áður
sagði eru flestir sumarbústaðir nú til dags orðnir afar full-
komnir enda iðulega annað heimili fólks. Þetta var allt öðru-
vísi hér áður fyrr þegar við urðum að hristast á malarvegum
og sofa í tjaldi. Nú er öldin önnur og engin ástæða til annars
en að taka með sér gott vín í sumarbústaðinn.
Pinot Grigio Þetta ítalska hvítvín er frábært sumarvín. Létt,
þurrt, bragðmikið og frískandi. Tilvalið vín til að drekka
síðdegis á sólríkum degi eða á meðan verið er að grilla. Pinot
Grigio er góður fordrykkur, ágætt með glóðarsteiktum mat.
Það eru til ótal útgáfur af þessu vinsæla ítalska hvítvíni en
úrvalið er þó frekar takmarkað í verslunum ÁTVR. Castello
Banfi San Angelo Pinot Grigio á 1.780 krónur er ljómandi vín,
ekta Pinot Grigio, mjög ferskt, bragð af grænum eplum, jafn-
vel myntu og hunangi. La Villa Pinot Grigio á 1.780 krónur er
í 1,5 líters flöskum. Þetta er þægilegt vín á góðu verði.
Tommasi La Rosse Pinot Grigio á 1.350 krónur er einnig
góður kostur þó svo að það sé ekki í sama gæðaflokki og
Castello Banfi.
Við grillið Að grilla er matreiðsluaðferð sumarsins. Yfir
sumarmánuðina breiðir ilmurinn frá grillum sig yfir sumar-
bústaðahverfin á kvöldin. Glóðarsteiktur matur er oftast tölu-
vert kryddaður og með honum hafðar sterkar sósur.
Áströlsku vínin eru tilvalin með glóðarsteiktu kjöti. Þau eru
bragðmikil, eikar- og kryddbragð, iðulega bragð af þurrk-
uðum ávöxtum og jafnvel súkkulaði. Dæmi um góða ástralska
bolta er Lindemans Bin 45 Cabernet, Sauvignon á 1.540
krónur og Penfolds Bin 407 Cabernet Sauvignon á 2.330
krónur. Fyrir þá sem hins vegar kjósa fremur bragðminni vín
og ávaxtaríkari er hægt að mæla með Alta Vista Malbec 2000
á 1.480 krónur. Þetta argentíska vín er pressað úr Malbec
þrúgunni sem upprunalega kemur frá Frakklandi. Malbec
þrúgan dafnar einstaklega vel í Argentínu og þetta vín er orðið
mjög vinsælt í Bandaríkjunum og í Norður-Evrópu. Þetta er
afar ljúft vín með miklu ávaxta- og beijabragði, sólbeijum, blá-
beijum og jarðarbeijum. Ekkert er að því að drekka hvítvín
með glóðarsteiktum mat, einkum ef hann er mikið kryddaður.
Nýtl í vínbúðinni Meðal nýrra víntegunda í reynslusölu í sér-
deildum ÁTVR er skemmtilegt Chianti vín sem nefnist Isole E
Olena Chianti Classico. Þetta er eitt af þessum skemmtilegu
vínum frá Toscana héraði en þaðan koma einmitt athyglis-
verðustu ítölsku víntegundirnarí dag. Þetta er gott matarvín
sem kjörið er að taka með sér í sumarbústaðinn, flaskan kostar
1.550 krónur. Annað nýtt vín sem kjörið er að taka með sér í
sveitina er hvítvín frá Grikklandi, Kouros Patras á 1.090 krónur.
Grískt vin hefur ekki verið á markaðnum hér undanfarin ár.
Miklar framfarir hafa orðið í vingerð Grikkja á undanförnum
árum, en eins og á öðrum sviðum menningar og tækni er
Grikkland eitt elsta vínframleiðsluland heimsins. Þetta er ferskt
vin og þægilegt, áhugavert vín sem gaman er að prófa. BIl
Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum víntegundum í
sumarbústaðinn:
Rauðvín
Lindemans Bin 45 Cabernet Sauvignon á 1.540 krónur
Penfolds Bin 407 Cabernet Sauvignon á 2.330 krónur
Alta Vista Malbec 2000 á 1.480 krónur
Isole e Olena Chianti Classico á 1.550 krónur
Hvítvín
Castello Banfi San Angelo Pinot Grigio á 1.780 krónur
La Villa Pinot Grigio 1,5 lítrar á 1.780 krónur
Tommasi La Rosse Pinot Grigio á 1.350 krónur
Chateau Insebourg Tokay Pinot Gris Le Clos á 1.990 krónur
Kouros Patras á 1.090 krónur.
119