Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 49
fólk er frá vegna orlofs, veikinda eða verkefna sem eru unnin
hjá viðskiptavinum, og því getur mikið sparast með því að fólk
deili með sér vinnustöðvum og samnýti húsnæði. Þetta skapar
nýjar og gjörbreyttar kröfur um hönnun og skipulag skrifstof-
unnar og um nýja kynslóð húsgagna.
Allt skipulag og hönnun „nýju skrifstofunnar" byggist á
sveigjanleika, gegnsæi og breytileika og þar af leiðandi færri
föstum lokuðum rýmum. Byggingin sjálf er jafnvel úr gleri og
þeir veggir, sem eftir eru, eru gegnsæir þannig að allir sjá hvað
er að gerast. Veggirnir sem efdr standa eru frekar huglægir
eða táknrænir.
Ekki eiga allir fast vinnupláss í „nýju skriistofunni“ eiga
starfsmenn ekki allir sitt fasta vinnupláss og flestir vinna í opnu
rými. Hjá sumum fýrirtækjum eru tölvukerfi sem gefa til
kynna hvar séu laus borð hveiju sinni og það fer eftir því hvaða
verkefni á að leysa hvort setið er einn í næði eða með öðrum.
Hópvinna og samvinna eru mikilvægir þættir í þessu nýja
skipulagi og þarf fólk með mismunandi sérþekkingu og bak-
grunn að geta unnið saman þvert á deildir, haft samskipti sín á
milli og skipst á þekkingu. Það þarf því að vera hægt að breyta
uppröðun á skrifstofunni á skammri stundu.
Minni húsgögn og auðfæranleg í „nýju skrifstofunni" eru hús-
gögn minni, þau eru fjölnota og auðvelt að færa þau til, endur-
Mikið getur því sparast með því að fólk
deili með sér vinnustöð og samnýti hús-
næði. Þetta gerir nýjar og gjörbreyttar
kröfur um hönnun og skipulag skrifstof-
unnar og um nýja kynslóð húsgagna.
Ótrúlega hraðar tæknibreytingar síðustu
ára gera kröfur um breytingar á hinni
gömlu þunglamalegu skrifstofu með
föstum lokuðum veggjum og stórum
ósveigjanlegum skrifborðseiningum.
í tengslum við þessar breytingar hefur í
viðskiptaheiminum komið fram hugtakið
„New Work“.
Ljóst er að víða eru núna tómar skrifstofur
hluta úr ári þar sem fólk er frá vegna
vinnu heima, orlofs, veikinda eða verkefna
sem unnin eru hjá viðskiptavinum.
49