Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2003, Page 20

Frjáls verslun - 01.04.2003, Page 20
BflNKAMflL í BRENNIDEPLI Strandar á gjaldeyrisviðskiptum? Á meðal bankamanna má hins vegar heyra að sameining Islandsbanka og Landsbanka myndi líklegast stranda á gjaldeyrisviðskiptunum; að það væri bitinn sem stæði fastur í samkeppnisráði, kaup og sala á krónunni. Landsbankinn er með 40% af viðskiptum með gjald- eyri, íslandsbanki er með um 30 til 35%. Saman eru þessir tveir bankar með um 70 til 75% af öllum gjaldeyrisviðskiptum þjóðarinnar á meðan Kaupþing-Búnaðarbanki er aðeins með um 25 til 30%. Þessi hlutföll yrðu „stóru bitarnir“ sem stæðu í samkeppnisráði. SD Sagan á bak við „BANKAMANNARANIÐ" etta var miðvikudaginn 16. apríl og allir voru á leiðinni í páskafrí. Á dagatalinu stóð „fullt tungl“. Það boðaði svo sem ekkert sérstakt, annað en bara gott páskafrí. Samt var óvissa og spenna í loftí því fjórum dögum áður hafði verið skrifað undir samruna Kaupþings og Búnaðarbankans í fjóð- menningarhúsinu. En klukkan var orðin flmm síðdegis þennan miðvikudag. Starfsmenn Búnaðarbankans stóðu upp úr stól- unum og drifu sig heim. Það var búið að loka bankanum. Það var sömuleiðis búið að loka Kauphöllinni. Enginn áttí von á öðru en hefðbundnu páskafríi. Aðeins nokkrum klukku- stundum eftír að bönkunum var lokað þennan miðvikudag byrjaði balHð. Fyrsta skrefið af hálfu Landsbankans í þreifingum við lykilstarfsmenn Búnaðarbankans var stígið. Nákvæm áætlun var í gangi. 8 til 10 starfsmenn bankans voru í sigtinu. Síminn hringdi... búið var að flauta leHdnn á. „Áhlaup á bankann" Þetta „áhlaup á bankann", eins og Sólon R. Sigurðsson, bankastjóri Búnaðarbankans, hefur nefnt það í plmiðlum, endaði með þvi að 26 þekktir starfsmenn bankans hafa ráðið sig til Landsbankans, þeirra á meðal margir lykil- starfsmenn. Flestir 26-menninganna unnu á verðbréfasviðinu og færast yfir til verðbréfasviðs Landsbankans. Ekki nóg með það. Einn 26-menninganna, Sigurjón Þ. Árna- son, var orðinn annar tveggja bankastjóra Landsbankans áður en páskafríið var á enda. Búnaðarbankafólkið mat atvinnuöryggi sitt Htíð í kjölfar sam- runans við Kaupþing og leit á brotthvarf Árna Tómassonar, aðalbankastjóra Búnaðarbankans, sem tákn um það sem koma skyldi í bankanum; þ.e. að um yfirtöku Kaupþings væri að ræða og starfsmenn Kaupþings yrðu teknir fram yfir þá þegar gengið yrði til borðs og bankarnir púslaðar saman. Að „blóðbaðið“ yrði þeirra megin. Andri vann málið með Björgólfi Sagan á bak við áhlaupið er sú að það var Andri Sveinsson, bankaráðsmaður í Landsbank- anum, sem tók upp símann og hóf hringingar þetta afdrifaríka miðvikudagskvöld. Hann vann máHð mjög náið með Björgólfi Guðmundssyni, formanni bankaráðs Landsbankans. Andri byijaði á því að setja sig í samband við þau Siguijón Þ. Árnason, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs, EHnu Sigfúsdóttur, fram- kvæmdastjóra fyrirtækjasviðs, Yngva Örn Kristinsson, fram- kvæmdastjóra verðbréfasviðs, og Ársæl Hafsteinsson, yfirmann lögfræðisviðs og útlánaeftírHts. Andri mun hafa haft samband við hvert þeirra fyrir sig þarna um kvöldið og borið upp erindið. Ekkert þeirra vissi hvaðan á sig stóð veðrið þetta kvöld. Eitt var víst; búið var að raska svefnró þeirra. Daginn eftir, á skírdag, hélt dansinn áfram og tjórmenningarnir fengu vitneskju hver um aðra. Fljótlega kom í ljós að fleiri voru í sigtinu þessa páska og að rætt yrði við fleiri starfsmenn, m.a. Guðmund Guð- mundsson, deildarstjóra á verðbréfasviði. Að hafna starfi og missa síðan vinnuna staðan var metin fram og tfl baka í páskafríinu. Eðlilega var fundað með Andra og innbyrðis um það hvort rétt eða rangt væri að yfirgefa Búnaðar- bankann. Ótal símhringingar gengu á milU. Þetta voru miklar boUaleggingar. Hvernig var hægt að hafiia tilboði um starf í Landsbankanum og missa svo vinnuna í Búnaðarbankanum nokkrum vikum síðar eftír sameininguna við Kaupþing? Þetta var sú spurning sem flestír spurðu sig. Óvissan í kringum Búnaðarbankann bjó tíl þetta tækifæri. Skyndilega átti fólk kost í öUum hræringunum. Sóloni brá mjög við líðindin Á annan í páskum var niðurstaða komin, aHir höfðu tekið ákvörðun. Fjórmenningarnir hringdu þá í Sólon R Sigurðsson og báðu um fiind með honum. Hann varð eðfilega við því og hélt hópurinn heim tíl hans um kvöldið. Honum brá mjög við tíðindin, en gat lítið sagt. Auðvitað var þetta erfið stund fyrir aUa, eins og gengur. En það varð ekki aftur snúið. Morguninn eftír, áfyrstavinnudeginum eftir páskafrí, fóru sex aðrir starfsmenn bankans tfl Sólons og sögðu upp. Við það fólk hafði Andri talað í páskafríinu og kom það aHt að máfinu í boUaleggingunum yfir páskana þó það hafi ekki farið með fjór- menningunum heim til Sólons kvöldið áður. Á miðvikudeginum Jjölgaði í hópnum og undir lok þess dags var talan orðin 14. Fljót- lega bættust tólf starfsmenn Búnaðarbankans í hópinn og er endanleg tala þeirra sem færa sig um set yfir til Landsbankans orðin 26. Þessi flöldi var ekki aUur kortlagður í upphafi af Lands- bankamönnum. En þegar flóðbylgjan fór af stað komst los á ýmsa og þeir höfðu samband að fyrra bragði og vildu fljóta með. Jakob Bjarnason sagði upp Tveir tfl viðbótar sögðu upp í Búnaðarbankanum eftir sameininguna við Kaupþing án þess að færa sig yfir til Landsbankans, m.a. Jakob Bjarnason, fyrrver- andi framkvæmdastjóri hjá Keri og raunar fyrrverandi fram- kvæmdastjóri hjá Landsbankanum, en hann sá um eignarhalds- félagið Hömlur á árum áður. Jakob hóf störf hjá Búnaðarbank- 20
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.