Frjáls verslun - 01.04.2003, Síða 29
GESTAPENNI: JAFET ÓLAFSSON
fjármálamarkaðnum
Hvað með islandsbanka? Það hefur vakið athygli að íslands-
bankamenn hafa setið þögulir og lítt verið áberandi í þeim slag
sem staðið hefur milli Landsbankans og Búnaðarbankans.
Islandsbankamenn hafa þó hoggið nokkurt skarð í raðir
hinna nýju Landsbankamanna með því að ráða um fimm starfs-
menn af fyrirtækjasviði bankans í Lúxemborg og með því að
stofna útibú í Lúxemborg. Areiðanleikakönnun vegna kaupa
Landsbankans á útibúi Búnaðarbankans er ekki lokið þegar
þetta er skrifað, brotthvarf þessara lykilmanna á lánasviðinu
hlýtur að hafa áhrif á endanlegt kaupverð. Þá eru allir þrír
bankarnir komnir með starfsemi í Lúxemborg.
Síðan FBA sameinaðist Islandsbanka hefur hann verið
stærsta fjármálafyrirtæki landsins. Nú er búið að velta honum
af þeim stalli, þeir ágætu keppnismenn í Islandsbanka munu
örugglega leita allra leiða að komast aítur í fyrsta sæti. I sjálfu
sér ætti það ekki að vera keppikefli eitt út af fyrir sig, góð
arðsemi og góð þjónusta er þar jafn mikilvæg.
Möguleikarnir til stækkunar á íslenskum markaði eru mjög
takmarkaðir, augu margra hljóta nú að beinast að sparisjóð-
unum. Einnig munu þeir stóru skoða grannt hvaða möguleikar
eru erlendis um vöxt og kaup á ijármálafyrirtækjum.
Fróðlegt verður að fylgjast með hvort konfið sé annað hljóð
í strokkinn hjá Spron-mönnum og mun enn vera áhugi fyrir
hendi hjá Kaupþingi/Búnaðarbankanum um kaupin á Spron?
Stjórn Spron fékk mjög ákveðin skilaboð frá sínum stofn-
ljáreigendum á síðasta aðalfundi þar sem Pétur Blöndal við
annan mann náðu góðri kosningu. Sparisjóðirnir eru margir
og samstaða þeirra hefur verið lítil, tengsl þeirra og ítök við
Kaupþing eru nánast að hverfa. Sameinaðir Sparisjóðir væru
jafnstórt Ijármálaafl og einhver af stóru bönkunum. Samein-
aðir gætu sparisjóðirnir verið mjög öflugir vegna dreifingar
sinnar um landið og stórs hóps viðskiptamanna. Breytingar
hjá sparisjóðunum verða örugglega nokkrar á næstu
mánuðum, sameiningar eða eignatengsl við einhvern af stóru
bönkunum munu líta dagsins ljós.
Litlll fjármálafyrirtækin Á ijármálamarkaðnum eru starf-
andi þrjú lítil verðbréfafyrirtæki, Islensk verðbréf á Akureyri,
MP Verðbréf og Verðbréfastofan, þau hafa öll verið að efla
sinn rekstur og verið með vaxandi markaðshlutdeild. Eg held
að forráðamönnum litlu verðbréfafyrirtækjanna líði vel þegar
þeir stóru eru að slást, það fer mikil orka í átökin, mikið rót
kemur á starfsfólk, skipulagsbreytingar og tengsl við
viðskiptamenn vilja rofna. Það er alltaf pláss fyrir lítil, per-
sónuleg og vel rekin ijármálafyrirtæki.
Eg riija það stundum upp að ekki eru mjög mörg ár síðan
Pétur Blöndal hóf starfsemi Kaupþings með ijóra starfsmenn.
Allir vita hvað hefur orðið úr þessu eitt sinn litla fyrirtæki. En
eru þá ekki litlu verðbréfafyrirtækin að spá í samruna úr því
þeir stóru standa í slíku? Eg held ekki. Einhverjar tilfærslur eru
á eigendahópi þessara fyrirtækja og þau eiga með sér vissa
samvinnu. En „lítið er fagurt" og best er að vaxa innanfrá.
Allir fylgjast þó vel með því sem er að gerast á þessum
markaði, umbreytingarnar hjá þeim stóru gefa þeim minni oft
meira svigrúm og það reyna þessi fyrirtæki að nýta sér.
Eitt er þó víst að það að spá hvernig þróunin verður á
íslenskum íjármálamarkaði á næstu árum er eins og reyna að
spá um veðrið næstu mánuði og vorið 2003 hefúr verið með því
skrautlegra sem sést hefur í íslenskri veðráttu um áratuga
skeið. SH
Tilgangurinn helgar meðalið, það eru
keypt ríflega tvö fóboltalið úr Búnaðar-
bankanum og síðan Búnaðarbankinn í
Lúxemborg í heilu lagi. Var þetta ekki
full stór skammtur?
Sameinaðir sparisjóðir væru jafnstórt
fjármálaafl og einhver af stóru bönk-
unum. Sameinaðir gætu sparisjóðirnir
verið mjög öflugir vegna dreifingar
sinnar um landið og stórs hóps
viðskiptamanna.
Það hefur vakið athygli að íslands-
bankamenn hafa setið þögulir og lítt
verið áberandi í þeim slag sem staðið
hefur milli Landsbankans og Búnaðar-
bankans.
29