Frjáls verslun - 01.04.2003, Qupperneq 38
FRÉTTASKÝRING SH OG SÍF
ERLENDIR FJÁRFESTAR KAUPI HLUT í SH Talið er að á næstunni verði gengið frá kaupum erlendra fjárfesta á hlut í
SH, Nýsjálendingsins Eric F. Barratt, forstjóra Sanford Ltd., og Kanadamannsins John C. Risley, stjórnarformanns
Clearwater Seafoods. SH á 15 prósenta hlut í FPI, Fishery Product International, stærsta sjávarútvegsfyrirtækinu
í Kanada og situr Gunnar Svavarsson, forstjóri SH, ásamt þessum tveimur mönnum í stjórn fyrirtækisins.
árangur og vilji hafa hann innbyggðan í matinu á félögunum.
Það hafi þvi annaðhvort þurft að leysa þennan hnút eða bíða
og sjá til. Má segja að seinni kosturinn hafi verið tekinn.
Róbert segir að í sameiningarviðræðum þurfi að vera ein-
hugur í hópnum. Best sé að byrja á því leggja niður fyrir sér
hver þróunin á að verða eftir sameininguna, hvernig og
hvepir eigi að leiða félagið og hvað þurfi af fjármagni, ekki
skiptahlutfalli eins og SIF vildi, enda telur Róbert að 50-50
hlutfall hafi ekki verið rétt hlutfall. „Ég held að það hafi frekar
verið pólitískt hlutfall. En ef eigendur SH hefðu verið tilbúnir
til að taka á sig þann fórnarkostnað þá hefði það verið þeirra
mál,“ segir hann. Róbert vildi ræða strax í upphafi hveijir
yrðu leiðandi í hinu sameinaða fyrirtæki og kom sú hugmynd
til tals að Róbert yrði stjórnarformaður hins sameinaða fyrir-
tækis en það fékk dræmar undirtektir hjá SIF og var því einn
af ásteytingarsteinunum. Þegar þetta er borið undir Róbert
segist hann líta svo á að hluthafar fyrirtækisins hafi viljað
halda fram þeirri stefnu sem hann hafi fylgt í SH undanfarin
ár. Athygli vekur að Róbert er stjórnarformaður SH þó að
ekki sé hann lengur hluthafi en Róbert bendir á að stjórnin
hafi verið kosin í heilu lagi á síðasta aðalfundi og svo skipt
með sér verkum. Hann hafi ekkert mótframboð fengið og því
hafi hann greinilega stuðning stærstu hluthafa.
Alkunna er að sameinuð fyrirtæki ná í mörgum tilfellum
ekki þeim árangri sem til er ætlast. Róbert segir að ástæðan
sé sú að þau hafi ekki farið fram með nógu skýra stefnu og
hlutirnir hafi verið of lausbundnir þegar til sameiningarinnar
hafi komið. Hann kveðst hafa verið hvatamaður þess að hafa
stefnuna skýra frá upphafi „og ég held að það að við vildum fá
menn til að taka þessi skref fyrst hafi orðið til þess að þeim
þótti við vilja taka þá yfir. En að sjálfsögðu tökum við enga yfir.
Við sögðum bara: Veljið ykkur forystu, látið hana leiða sam-
eininguna, hvort sem það er ég eða einhverjir aðrir, og svo
fylgir hitt á eftir.“
Skorti á eininguna Blaðamaður Frjálsrar verslunar ræddi
við íjölda manna og er ljóst að eignarhald í SH og SIF hefur
haft sín áhrif á þróun mála. Bankarnir og þá sérstaklega
Straumur sýndu sameiningarviðræðunum mikinn áhuga
enda ábatavænlegt að eiga hlut í sameinuðu félagi ef vel tekst
til. Hreyfing komst á hlutabréf í SH um áramótin og í byrjun
ársins. Landsbankinn ákvað að eignast 24,5 prósenta hlut í
SH rétt fyrir gamlársdag í stað þess að eiga veð í bréfum Þor-
móðs ramma í SH. Hjá Straumi var önnur staða. Straumur átti
hlut í SIF en ákvað að selja bréfin þegar ekkert varð af sam-
einingu. Sagt er að Bjarni Armannsson, forstjóri Islands-
banka, og Þórður Már Jóhannesson, forstjóri ijárfestinga-
félagsins Straums, sem átti hlut í SIF á þessum tíma, hafi
keyrt málið áfram. Það er þó ljóst að Þórður hafði beitt sér
mjög fyrir sameiningunni og var kominn svo langt að lýsa yfir
þeirri ætlun sinni að setjast í stjórn hins sameinaða félags
þegar Straumur ákvað skyndilega að selja bréf sín í SIF. Svo
virðist sem skort hafi á eininguna í hluthafahópunum.
Nokkru síðar komst hreyfing á bréf Granda og Afls í SH
og keypti Straumur þau bréf. Hefði Straumur átt bréfin í SIF
á þessum tímapunkti hefði hann verið í lykilstöðu til að sam-
eina félögin. Svo var þó ekki og því fór sem fór. Onefndur er
hlutur Burðaráss í bæði SIF og SH. Burðarás átti fyrir stóran
hlut í SIF og sem Brim eignaðist félagið hlut í SH í gegnum
UA og Skagstrending. Eimskip átti því hagsmuna að gæta í
báðum félögum og tók þátt í viðræðunum en tók ekki afger-
andi forystu fyrir sameiningunni ef marka má orð Róbert
Guðfinnssonar. „Það er rangt sem haldið er fram að það hafi
verið feikimikil pressa frá Eimskip eða slíkum fyrirtækjum.
Pressan í þessu máli, ef pressu skyldi kalla, kom fyrst og
fremst úr þessum herbúðum og það frá mér.“
Rétt er að geta þess að S-hópurinn, sem hafði staðið að sam-
einingu SIF og IS á sínum tíma og átti 34 prósenta hlut í SIF,
ákvað að lýsa því yfir í byijun mars - ekki þó með formlegum
hætti - að hann teldi tímasetningu til sameiningar ekki góða og
því væri réttast að hver færi að sinna sínu. Þessi afstaða er talin
hafa vegið þungt gagnvart Islandsbanka, Straumi og SH og
sýnt mönnum þar að eigendur og stjórn SIF vildu frið við sinn
rekstur og tækju því illa ef farið yrði í óvinveitta yfirtöku.
Risley og Barratt Búast má við að áhugi á sameiningu SH
og SIF sé fyrir bí - í bili að minnsta kosti og ekki gott að segja
hvort og þá hvenær viðræður geti hafist á ný. Líklegast þykir
að það líði að minnsta kosti eitt til tvö ár áður en hægt verður
að taka viðræður upp að nýju og þá verði tjárhagsstaða fyrir-
tækjanna skýrari. „Okkar tilfinning er sú að SH verði að
stækka til að geta tekið þátt í breytingum í umhverfinu og þá
vinnum við auðvitað að því. Annars værum við að daga uppi,“
segir Róbert og játar því að hann hafi áhuga á og hafi unnið
að því að fá erlenda fjárfesta inn í SH. Um þessar mundir
beinist áhugi manna í sjávarútvegi nefnilega að möguleik-
anum á því að útlendingar kaupi hlut í SH. Talið er að beðið
hafi verið fram yfir kosningar með að ganga frá því og nú geti
það gerst hvenær sem er. Þarna er um að ræða þá Eric F.
Barratt, forstjóra Sanford Ltd., sem er eitt stærsta sjávar-
útvegsfyrirtækið á Nýja-Sjálandi með starfsemi í Astralíu,
Argentínu og Kyrrahafi auk Nýja-Sjálands, og John C. Risley,
stjórnarformann Clearwater Seafoods sem er stórt og öflugt
sjávarútvegsfyrirtæki í Kanada. SH á 15 prósenta hlut í FPI,
Fishery Product International, stærsta sjávarútvegsfyrirtæk-
inu í Kanada og situr Gunnar Svavarsson, forstjóri SH, ásamt
þessum tveimur mönnum í stjórn fyrirtækisins en það fékk
einmitt nýlega fyrirgreiðslu hjá Islandsbanka. Rétt er að taka
fram að SH á engan kvóta og því mega erlendir ijárfestar eiga
hlut í félaginu. [Jj
38