Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 57
Sigurður Arnalds, upplýsingafulltrúi Kárahnjúkavirkjunar.
Mynd: Geir Ólafsson
staðnum var um að ræða gríðarlega jarðgangagerð þar sem
hitastígið gat farið niður í um 40 stiga frost að vetrinum. I því
verkefni þurftí að nota fjórar borvélar af svipaðri gerð og fyrir-
sjáanlegt er að verði notaðar hér. I síðarnefnda dæminu var um
að ræða endurbætur sem nú standa yfir og lýkur brátt á neðan-
jarðarbrautakerfinu í St. Pétursborg í Rússlandi. Þetta kerfi
þykir afskaplega flókið og erfitt enda figgur það m.a. í árbotni úr
Nevu. Jarðgöngin hrundu fyrir nokkrum árum og tók Impreg-
ilo því að sér að bora göng af svipaðri gerð og nú þarf að gera
við Kárahnjúka.
Fiat 09 Berlusconi Langflestir íslendingar höfðu aldrei
heyrt nalii Impregilo nefnt fyrr en fyrirtækið tók þátt í forvali
Landsvirkjunar og því er eðlilegt að velta fyrir sér hvaða fyrir-
tæki þetta sé og fyrir hvað það standi. Impregilo er ítalskt
verktakafyrirtæki að uppruna sem á rætur að rekja tæpa öld
aftur í tímann. Það varð til úr samruna tveggja fyrirtækja,
verktakafyrirtækjanna Lodigiani og Girola, sem sameinuðust
árið 1906, og Impresit sem var stofnað 1929. Meðal stærstu
Halldór Jón Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, og
Gianni Porta, verkefnisstjóri Impregilo á Íslandi. Myndin var
tekin þegar gengið var frá fjármögnunarsamningum við
Landsbankann. Mynd: Geir Ólafsson
uni- og skólphreinsistöðva o.þ.h., rekstur á hraðbrautum,
flugvöllum, vatnsveitum og öðrum veitum, fasteignarekstur
og aðra þjónustu. Virkjanagerðin er stærstí hluti starfsem-
innar en fyrirtækið hefur byggt um 160 vatnsaflsvirkjanir víða
um heim. Velta fyrirtækisins nam samtals 1.255 milljónum
evra, eða tæplega 100 milljörðum króna, á íyrri helmingi
ársins 2002, þar af stóðu virkjana- og samgönguframkvæmdir
fyrir 662 milljónir evra, eða sem jafngildir um 55 milljörðum
króna.
Impregilo hefur yfir 20 þúsund starfsmenn í ýmsum verk-
efnum víða um heim. Félagið er skráð í kauphöllinni í Mílanó
og eru ríflega 75 prósent hlutabréfanna í dreifðri eignaraðild,
22 prósent í eigu fýrirtækis sem heitir Gemina og 3,32 pró-
sent í eigu fjármálafyrirtækisins Capitalia. Eftír því sem næst
verður komist eiga Fiat-verksmiðjurnar á Italíu hlut í Impreg-
ilo enn þann dag í dag. Stór hluti starfsemi fýrirtækisins fer
fram á Italíu en félagið tekur í auknum mæli að sér verkefni
um allan heim enda nýtur það viðurkenningar sem tæknilega
öflugt fýrirtæki.
sem segir sex
eigenda Impresit á sínum tíma voru m.a. Fiat-verksmiðjurnar,
en sagt er að Berlusconi, forsætisráðherra Italíu, sem nú er
ákærður fyrir meintar mútur, tengist þeim. Þessi tvö fýrirtæki
sameinuðust í Impregilo árið 1960. Arið 1995 áttí sér svo stað
annar samruni þegar Impregilo og Cogefar-Impresit samein-
uðust í þetta fýrirtæki sem Islendingar eiga viðskipti við í dag.
Impregilo SpA hefur höfuðstöðvar nálægt Mílanó og eru
stjórnendur þess alþjóðlegir þó að Italir séu fýrirferðarmestir
enda fýrirtækið enn þann dag í dag í ítalskri eigu. Forstjóri
Impregilo heitir Pier Giorgio Romiti, dr. ing., og stjórnarfor-
maður þess er Paolo Savona prófessor. Starfsemin skiptist í
sex einingar: virkjanir og samgöngumannvirki, byggingu
spítala, hótela og ýmiskonar iðnaðarhúsnæðis, vatnshreins-
TVSBI' SkrÍfStOfur hérlendis Impregilo hefur opnað tvær skrif-
stofur hér á landi, í sama húsi og Europris hefur aðsetur við
Lyngháls í Reykjavík og á Egilsstöðum. Þrír menn hafa einkum
verið í forsvari íýrir iýrirtækið og eru þeir alfir verkfræðingar að
mennt með langa starfsreynslu hjá fýrirtækinu. Þetta eru þeir
Gianni Porta, verkefnissfjóri Impregilo á Islandi. Hann er af
ítölsku bergi brotinn en fæddur og uppalinn í Eþíópíu. Porta
kemur hingað frá St. Pétursborg og tekur við yfirumsjón fram-
kvæmdanna. Roberto Velo er fjármála- og rekstrarstjóri og loks
er Richard Graham yfirverkfræðingur en hann er líka fæddur
og uppalinn í Afríku. Þessir menn hafa ráðið nokkra Islendinga
sér tíl aðstoðar, þar á meðal er lögmaðurinn Þórarinn V. Þórar-
insson, hdl. hjá AM Praxis.
57