Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 59
Kárahnjúkar. Mynd: Páll Stefánsson
MMar vonir eru bundnar við áhrif framkvæmdanna fyrir
austan á íslenskt efnahagslif og atvinnuástand landsmanna.
Fyrirtækið hefur hægt og rólega verið að ráða til sín starfs-
menn, einkum á skrifstofuna í Reykjavík og á Egilsstöðum, og
sú vinna heldur áfram. Fyrirtæki á EES-svæðinu geta ráðið
vinnuafl að vild, hvort heldur það er mannskapur héðan frá
Islandi eða frá öðrum löndum EES. Hins vegar má Impregilo
ekki flytja inn starfskraft frá löndum utan EES nema með sér-
stöku leyfi. Italirnir reikna með að þurfa samtals allt að 1.000
starfsmenn, þar af er gert ráð fyrir að Islendingarnir geti orðið
300400 talsins. Þegar hefur verið auglýst eftir starfsmönnum
hér innanlands og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa. Alls
bárust 800 umsóknir fyrsta daginn og er fyrirsjáanlegt að
nokkur hundruð manns verði ráðin og taki til starfa á næstu
vikum og mánuðum.
Frjálsari hendur? Auðvitað er ákveðin hagkvæmni í því að
nota innlent vinnuafl á Islandi en heimildarmenn Frjálsrar
verslunar eru þó sumir hveijir ekkert alltof bjartsýnir á hlut
íslendinga í þeirri atvinnu sem Impregilo mun veita. Það á þó
eftir að koma að fullu í ljós en ljóst er að áhugi virðist nægur.
Samningarnir um stíflu og aðrennslisgöng hljóða upp á 38
milljarða auk virðisaukaskatts og eru þar nokkrum milljörðum
undir kostnaðaráædun. Italirnir þurfa að passa vel upp á Jjár-
haginn. Ljóst er að Italirnir munu ekki keppa af neinni hörku
um innlent vinnuafl, t.d. með yfirborgunum, en þó liggur íýrir
að þeir munu vera með bónusgreiðslur. Islendingum þykir
ekki eftirsóknarvert að fara í vinnubúðir upp á hálendi, Ijarri
ljölskyidu og vinum, nema upp á almennileg býti og því er
hugsanlegt að þeir muni ekki sækjast eftir því að starfa hjá
fyrirtækinu þegar skýrist hvaða kjör verði í boði. Fyrirtækið
hefur þá fijálsari hendur um að sækja vinnuafl að utan.
Hvernig svo sem þetta fer er ljóst að um 600-700 starfsmenn
komi frá öðrum löndum og er fyrirsjáanlegt að nokkur hundruð
manna komi með flugi til Egilsstaða og verði fluttir þaðan beint
að Kárahnjúkum. Fyrsti hópurinn, um 150 starfsmenn, koma úr
ýmsum verkefnum fyrirtækisins víða um heim, þar á meðal sér-
hæfðar áhafnir á þrjár af tíu 80 metra löngum borvélum sem
hp proliant mest seldi netþjónn í heimi
hljóðlátur sigurvegari
ÞaS er ekki að ástæðulausu að hp proliant eru mest seldu netþjónar í heimi.
Sjálfvirkt eftirlit, stöðugleiki og auðveld uppfærsla eru meðal þeirra kosta sem
gera hp proliant að fyrsta valkosti hjá fyrirtækjum um allan heim.
Þegar saman fara stærsti framleiðandi tölva í heiminum og reynsla og örugg
þjónusta Opinna kerfa er valið hp proliant.
Kynntu þér málið og tryggðu starfsemi þinni öryggi og afköst með mest selda
netþjóni í heimi.*
m
= allt er framkvæmanlegt
Umboðsmenn og söluaðilar um land allt. Nánari upplýsingar er að finna á www.ok.is eða í síma 570 1000
59