Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2003, Page 85

Frjáls verslun - 01.04.2003, Page 85
VORIÐ ER KOMIÐ Handlagnir heimilisfeður: Hótel bar Sumum mönnum er það gefið að geta sífellt fengið nýjar hugmyndir og vera alltaf að vinna eitthvað. Einn þeirra er Þór Þórsson sem rekur Véla- og skipaþjónustuna Framtak. Hann er hagur smiður auk þess að vera lærður rennismiður og hefur bæði hús hans og sumarbústaður vakið athygli iyrir það sem hann hefur gert. „Eg hef mikið gaman af því að smíða og það að smíða úr timbri er góð tilbreyting frá því að smíða úr járni,“ segir Þór. „Eg á mér sumarbústað í Efstadal, rétt innan við Laugarvatn og þar hef ég verið að dunda mér frá árinu 1990 við að smíða, leggja hitaveitu, setja upp rafmagn og annað sem fylgir en ég hef ekki notað eina einustu vinnuvél við þetta heldur hand- grafið allt. Er að vísu orðinn svolítið latur við það núna en það er nú líka búið að grafa allt sem þarf í bili held ég.“ Frumlegt fuglahús Þór langaði til að gera tilraun með það hvernig fuglar hugsuðu og bjó til forláta fuglahús með þremur inngöngum. Húsið er rennt úr stórum trjábol og hanga litlir bjálkar við inngangana sem á er letrað: Hótel, bar og Vogur. „Ég hef verið að fylgjast með aðsókninni og hef satt að segja engan marktækan mun séð á því hvort um var að ræða bar eða Vog,“ segir hann glettinn. „Reyndar er alls engin aðsókn, því fuglarnir setjast í mesta lagi ofan á þakið og fara svo. Sennilega eru þetta bara furðufúglar!" og Vogur Utla-Hraun og Giljagaur Fleira skondið hefur Þór unnið og þar á meðal er geymslan. Hún er hlaðin úr torfi að ffaman og er alveg eins og alvöru torfbær. Heitir reyndar Litla-Hraun en nafnið kemur af hraunhleðslunni á hliðinni sem stendur upp úr jörðinni. Gaflinn er úr timbri og þakið úr torfi og húsið er grafið inn í barð. „Ég veit nú ekki hvað byggingafulltrúi segir við þessu en svo má ekki gleyma Giljagaur," bætir Þór við. „Bústaðurinn heitir nefnilega Giljagaur en það kemur til af því að hann er úti við gil og það er bévaður gauragangur þar - stöðugt verið að smíða eitthvað!" SU Hjólalíf: Tími til að hugsa Víða erlendis þykir það sjálfsagður ferðamáti í borgum að nota hjól og má sjá allt frá smábörnum til virðulegra biss- nessmanna hjóla. Hér á landi er þetta ekki jafii algengt og má ef til vill kenna veðurlagi um að einhveiju leyti. Einn þeirra sem notar hjól mikið er Oskar Dýrmundur Olafsson, forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Miðbergs í Breiðholti. „Hjóireiðar sem slíkar eru bæði heilbrigður og skemmtilegur samgöngumáti," segir Oskar. „Sögulega séð er reiðhjólið, fyrir utan auðvitað fæturna, sá samgöngumáti sem haldið hefur sér hvað best og útlit reiðhjólsins hefur haldist að mestu óbreytt allt frá upphafi, á 18. öld. Ut ífá reiðhjólinu hafa svo komið bæði bílar og flugvélar.“ Það að hjóla er orkusparandi ferðamáti og því hafa hjólreiðar nokkuð færst í vöxt að undanförnu í samhengi við vaxandi áhuga fólks á umhverfi sínu og því að vernda það fyrir mengandi þáttum. Það er líka góð leið til að halda heilsunni í lagi og nú er heilsurækt einnig í tísku. I því sambandi má geta þess að fræga fólkið montar sig ekki aðeins af því að eiga hús í mörgum borgum heldur lætur það fylgja með að það eigi reið- hjól í svo og svo mörgum borgum! Oskar Dýrmundur segir hjólreiðar ekki bara góðar fyrir lík- amlega heilsu heldur andlega einnig. „Ég er í stjórnunarstöðu og þarf oft að leysa flókin viðfangsefni auk þess sem ég fer á milli funda. Ef ég fer hjólandi gengur mér mun betur að skipu- leggja hugsanir mínar og leysa mál en ef ég fer í bíl. Ég mæli hiklaust með þessari leið, sé á annað borð veður til þess. Umferðin er oft á tíðum þung og stundum er ég líka mun fljót- ari í ferðum en ella.“ Hvað með fatnaðinn og svitann? Hvað snertir fatnað, þ.m.t. jakkaföt og virðulegri flikur, segir Oskar Dýrmundur vel hægt að kaupa föt sem henta á fundum þó svo þau séu líka nothæf til að hjóla í. „Ég hef keypt mér teygjanlegar buxur sem eru um leið e.k. jakkafatabuxur og það gengur ágætlega," segir hann. „Svo má hafa með sér föt til skiptanna í tösku á bögglaberanum, rétt eins og hægt er að taka með sér íþróttaföt. Ég er alltaf með fartölvu með mér á bögglaberanum og lágmarksfatnað og nota svo sundlaugarnar og likamsræktarstöðvar ef ég þarf að fara í sturtu. Þetta er sem sagt minnsta mál! [ffl 85
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.