Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 95
roil gasgrill frá
jiran Reserva
Sauvignon
Marlboi
rá IMorð
grill
á grillinu og Ijúffengt
bregða á leik við grillið.
GRILLIÐ - ÞÆGILEGT OG
SÓMIR SÉR VEL
Char Broil gasgrillin eru vegleg
amerísk gæðagrill sem Olís hefur
flutt inn í rúman áratug. Grillin fást í
mörgum verðflokkum og hafa þau
verið afar vinsæl allt frá upphafi.
Grillið á myndinni er sérstaklega
hannað með tilliti til útipalla og
sómir það sér vel á hvaða verönd
sem er. Útsöluverðið á þessu til-
tekna grilli á þjónustustöðvum Olís
og í versluninni Ellingsen er 34.900
krónur.
Snorri
Snorri Guðmundsson, sem á og
rekur íslandsmálningu, íslenskar
hálendisferðir og Vegamál, er ein-
lægur og ástríðufullur grillmeistari.
Hann grillar helst allan mat og það
minnst tvisvar til þrisvar í viku, bæði á
sumrin og veturna. „Eg set allt á grillið.
Mér fmnst það afskaplega þægilegur
eldunarmáti,“ segir hann og bætir við að
hann kaupi gjarnan kjötið í Gallerý Kjöti
við Grensásveg, það sé best „þegar
maður hefur gesti eða ætlar að dekra
við sig í mat og drykk."
Hvað vínið varðar þá verða Rioja vín
oft fyrir valinu. Snorri dregur korkinn
upp úr flöskunni og fyktar. „Liturinn er
fallegur og fyktin er góð,“ segir hann og
telur vínið kraftmikið og gott með nauta-
kjöti og villibráð. „Þetta er bragðsterkt
vín og það situr vel. Þú finnur að þú ert
að drekka gott rauðvín sem endist vel,“
segir hann og líst afskaplega vel á eftir-
bragðið. 33
VORIÐ ER KOMIÐ
MEÐ
MATNUM
VELUR
SNORRI:
MARQUES DE ARIEIMZO
GRAIM RESERVA
Marques de Arienzo vínið kemur
frá Rioja-héraðinu á Norður-Spáni
og hefur verið geymt í eikar-
tunnum í sjö ár. Vínið er af Tem-
pranillo-þrúgunni í Rioja Alavesa-
héraðinu. Liturinn er glansandi
rúbín með eikartóni og ilmurinn
minnir á þroskaða ávexti og fínlegt
krydd. Vínið er frekar flókið og
gefur mikið af sér. í því má finna
bragð af töluverðum pipar, neguli
og fínlegri eik. Þetta vín er full-
komið með villibráð, kraftmiklu
kjöti og bragðmiklum ostum.
MONTANA MARLBOROUGH
SAUVIGNON BLANC, 2001
Vín í góðu jafnvægi, sem kemur frá
Montana's Brancott, Squire og
Kaituna í Ástralíu. Vínið er hálmgult
að lit með grænni áferð, ferskt og
ilmandi af þroskuðum garðaberjum,
papriku, hitabeltisávöxtum og
greipaldinum. Þetta vín hefur ríku-
legt ávaxtabragð. Jurtakennt
bragðið er ferskt og keimurinn af
ástaraldinum og sítrusaldinum
kyndir undir áhugann. Þetta vín
hentar vel með ostrum, grillaðri
djúphafsrækju eða laxi, hvítum fiski
og grænu salati með steinselju,
pipar og sítrónu. Einnig hentar það
með réttum frá Miðjarðarhafinu og
tyrkneskum réttum með hummus,
ólífum og fetaosti.
95