Lindin - 01.01.1938, Page 70
68
L I N D I N
Hugsum oss, að einhver hefði nú komið við einhvern
af þessum munum eða tekið hann upp með hend-
inni. — Hvað hefði þá orðið? Það hefði orðið geysi-
legur hávaði frá rafbjöllum, sem þessi leynilögreglu-
maður hefði hringt. Dýrra málma og góðra gripa
hefir aldrei verið betur gætt í stál-peningaskápum eða
innan við hurð með toropnuðum lás. Osýnilegi, þráð-
lausi rafyeislinn er besti vörðurinn sem menn þekkja.
Því að þegar komið er við hann með hendinni, þá
er blásið í herlúður og kallað til varnar og þó sést
enginn maður.
Það er undursamlegt, hvað rafgeislinn getur gjört.
Hann fer leiðslulaust gegnum geiminn, og þó getur
hann komið svo miklu til vegar. Hann getur eldað
matinn, hitað upp húsin, lýst upp lieilar borgir, knúð
vélar áfram af reginafii og staðið sem varðljón fyrir
hvers manns dyrum og verndað gegn þjófum. Raf-
geislinn l'er beint í gegn um hurðir og veggi eins og
ekkert sé fyrir.
Börnin mín góð. Þér skiljið þetta ekki. Fullorðnir
menn skilja þetta ekki heldur. En til allrar hamingju
er margt, sem við ekki þurfum að skilja áður en við
reynum það.
Sumum mönnumi er þó harla óljúft að nota það,
sem þeir skilja ekki. Sá, sem seinastur var Soldán í
Tyrkjaríki hafði ekki traust á rafmagni, því að hann
skildi það ekki, og þess vegna vildi hann ekki láta
raflýsa höllina sína. — Hvernig á að útskýra fyrir
slíkum manni, hvað ósýnilegir geislar eru? Eða hvað
er yfirleitt hægt að útskýra fyrir slíkum mönnum?
Til er ýmislegt, sem menn verða fyrst að reyna,
en svo kemur til álita að skýra það. Slík er trúin.
Hvers vegna trúum við á Guð föður og Jesúm
Iirist? Vér trúum á Guð föður og Jesúm Krist, vegna
þess að reynslan hefir kennt oss það. — Fyrir mörg-
um árum gekk Jesú um kring í Gyðingalandi, gjörði