Lindin - 01.01.1938, Blaðsíða 89
L I N D I N
87
og tilnefndi séra Jón Jakobsson á Bíldudal sem rit-
ara fundarins.
Var þá gengið til dagskrár. Hóf formaður
umræður um félagsm ál, sem voru fyrsta atriði
dagskrárinnar. Benti hann með stuttri inngangsræðu
á það, að nú eins og áður vsíri slærsta hugðarmál
félagsins útgáfa »Lindarinnar«, sem því miður hefði
ekki komið út um hríð vegna erfiðs fjárhags. Spunn-
ust þegar nokkrar umræður um það mál, og mæltu
ýmsir fast með því, að »Lindin« yrði gefin út á. þessu
ári, meðal annars vegna þess, að margur unnandi
hennar spyrði þrátt eitii' því, hvort hún kæmi ekki
bráðlega út, og töldu ræðumenn sig fúsa til fjár-
framlaga í því augnamiði. Að lokum kom eftirfarandi
tillaga li am: »Fundurinn samþykkir að fela stjór'n
sinni að skipa þriggja manna ritnefnd til að annast
útgáfu »Lindarinnar«, ef hún sér sér fært að gefa
hana út í haust. Var tillagan samþykkt með 7 atkvæð-
um gegn einu. Varð þá hlé á fundinum til kl. 830,
en þá íluttu þeir Jónas Jónsson kennari, séra Sig-
urgeir og séra Eiríkur á Núpi erindi í kirkjunni fyrir
almenning og voru þau ágætiega sótt af Suðureyrar-
búum og fólki úr nágrenninu. Nefndi Jónas erindi
sitt »í meðlæti og mótlæti«. Séra Sigurgeir talaði um
andlegar lækningar í City Témple' og séra Eiríkur
um kristnihald í Svíþjóð. Milli erindanna voru sungn-
ir sálmar. Kl. 11 lauk samkomunni.
Að morgni hins 7. september hófst fundurinn að
nýju í kirkjunni. Var sunginn sálmur nr. 17 í sálma-
bókinni, en séra IJalldór Kolbeins las upp úr Jó-
hannesar guðspjalli (Jóh. 13, 4—10 og v. 34—35) og
lagði út af þeim ritningarstað með nokkrum orðum
og flutti að lokum bæn. Á eftir var sunginn sálmur
nr. 29 í Sálmabókar-viðbætinum »Komi þitl ríki«.
Flutti þá formaður fréttir af aðalfundi Prestafé-
lags íslands, sem nýlega var afstaðinn.