Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Blaðsíða 6
í yzta dálki til hcegri handar stendur hið foma fslenzka tímatal;
eptir því er árinu skipt í 12 mánuði þrítugnætta og 4 daga umfram,
sem ávalt skulu fylgja þriðja mánuði sumars; í því er aukið viku
5. eða 6. hvert ár í nýja stíl; það heitir sumarauki eða lagningarvika.
Árið 1920 er sunnudagsbókstafur: DC. — Gyllinital: 2.
Milli .ióla og langaföstu eru 7 vikur og .3 dagar.
Lengstur dagur í Reykjavík 20 st. 56 m„ skemstur 3 st. 58 m.
MYRKVAR 1920.
1. Tunglmyrkvi, almyrkvi, 2.-3. Maí. Hann stendur yfir frá
kl. 11. 1' e. m. til 2. 41' f. m. og er almyrkvi frá kl. 12. 15' til 1. 27'. ■
Hann sjest í Reykjavík frá upphafi til enda.
2. Sólmyrkvi, deildarmyrkvi, 18. Maí. Sjest ekki í Re}^kjavík.
Hann sjest í nokkrum hluta af Indlandshafinu og í Astralíu, nema ■
í norðaustustu hlutum hennar.
3. Tunglmyrkvi, almyrkvi, 27. Október. Sjest ekki í Reykjavík. «
4. Sólmyrkvi, deildarmyrkvi, 10. Nóvember. Hann hefst i
norðvesturhluta Bandaríkjanna, og sjest í Kanada, í norður- og
austurhlutum Bandaríkjanna, í suðurhlutanum á Grænlandi, í norð-
vesturhluta Afríku, á Spáni, í Portúgal, á Frakklandi, Englandi, í
vesturhluta Þýzkalands og á Islandi og í Færeyjum. I Reykjavík
hefst hann kl. 1. 49' e. m., er mestur kl. 3. 6' e. m., og tekur þá
yfir hjerumbil 7/10 af þvermæli sólhvelsins. Um sólarlagsbilið tekur '
hann yfir hjerumbil helming af þvermæli sólhvelsins.