Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Page 93
hafi í einu ekki færri en s/‘ allra bæjarbúa og
varð veikin mjög mannskæð. Um tíma sást varla
maður á ferli og flestum búðum og stofnunum
var lokað. Hclst hún allan mánuðinn í bænum
og alt fram undir jól. Talið er, að dáið hafl í
Reykjavík um 260 manns meðan á veikinni stóð,
en margir létust síðar af afleiðingum hennar, svo
að óhætt mun að telja, að hún hafl orðið 300
maiins í bænum að bana. Mestur var manndauði
um miðjan nóvember. — Var mánuður pessi og
fyrri hluti desembermánaðar hinn erfiðasti og
dapurlegasti tími, sem dunið hefir yflr Reykjavík.
— Veikin barst suður um Reykjanesskaga, víða
um Árnessýslu og Rangárping og um Akranes og
neðri hluta Borgarfjarðar, en hvarvetna vóru
stemdir stigar fyrir henni pegar almenningur tók
upp sóttvarnir. Ekki komst veikin í Skaftafells-
sýslur, enda gerði Gísli sýslumaður Sveinsson öfl-
ugar ráðstafanir til sóttvarna. Víða kom sóttin á
Vestfjörðum, en varð stöðvuð. Var hún vægri
miklu par en syðra. Hvergi var hún jafnskæð sem
í Reykjavík.
Des. 1. Sambandslögin koma í gildi. Samkomur með
ræðuhöldum í Reykjavík og viðar. — S. d. Hið
íslenzka Garðyrkjufélag endurreist. Hafði legið
niðri í 20 ár. Form. Hannes Thorsteinsson banka-
fulltrúi.
— 18. Stofnað Sálarrannsóknarfélag i Rvík.
b. Embætti og sýslanir.
Jan. 12. Pórhallur Gunnlaugsson skipaður gæzlustöðv-
arstjóri við landssimastöðina í ísafjarðarkaupstað.
Febr. 18. Sr. Jón Jónsson prófastur i Stafafelli fær
lausn frá umboðsmensku Bjarnanessumboðs frá
næstu fardögum.
— 25. Skúla Skúlasyni presti í Odda og próf. i Rang-
árvallaprfd. veitt lausn frá emb. frá næstu fard.
(55)