Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Blaðsíða 66
Redmond var nú orðinn bilaður að heilsu og lézt
hann í marzmánuði J918.
Sum ensk blöð hafa hælst um pað, að lítið liggi
eftir Redmond. En pegar pess er gætt, við hvert of-
urefli hann átti að etja og margvísleg vandræði, pá
er pess ekki að vænta, að mikið ynnist á 1 framkvæmd.
Og jafnan stóð hann trúlega á verði fyrir landa sina
og varði allri ævi sinni fyrir málstað peirra. Er hon-
um mjög að pakka rekspölur sá, sem kominn er á
sjálfstæðismál tslands, pótt ekki sé á enda kljáð og
aðrir menn yngri gengi siðustu árin fram fyrir
skjöldu og sjálfur drægist hann pá aftur úr.
Framgangur Sinn-Feina kom bezt i Ijós er gengið
var til almennra kosninga í Stóra-Bretlandi og á ír-
landi til parlamentisins í árslok 1918. Náðu peir pá
sjötíu pingsætum, en pjóðernisflokkurinn (er fylgt
hafði Redmond) aðeins sjö sæti. Urðu pá gersam-
lega endaskifti á hlutfalli irsku fulltrúanna móts við
pað, sem áður hafði verið.
Ýmsir pingfulltrúar Sinn-Feina sátu í varðhaldi á
Englandi, er peir vóru kosnir. írsku fulltrúarnir hlíttu
kröfum pjóðfundar sins, neituðu að sækja parla-
mentið enska og háðu pjóðping í Dýflinni. Alt fór
friðsamlega fram, en Englendingar létust brosa að
pinglialdi pessu og kváðu pað írum vonbrigði mest,
er peir hefði ekki hleypt pví upp með hervaldi.
Þingið lýsti írland lýðveldi og kaus de Valera for-
seta pess.
íra skortir mátt til pess að framkvæma lýðveldis-
stjórn sína, en Englendingar eru á hinn bóginn í
stórvandræðum með írsku málin. Gengur illa að ríma
saman kenningar sínar um »sjálfsákvörðunarrétt
smápjóðannaa við drotnunargirni pá, er peir birta
enn á írlandi.
(28)