Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Blaðsíða 43
var falið að friða landið. Sá maður er Noske, sem
kallaður heíir verið landvarnarráðherra.
Hann er fseddur i Brandenburg 1868. Ilann var
skógarhöggsmaður í ungdæmi sinu, en gerðist síðar
blaðamaður og heíir verið ritstjóri margra blaða.
Hann var kjörinn ríkispingsmaður 1906 og lét all-
mikið til sín taka, einkum um hermál og utanrikis-
mál.
Þegar Ebert tók við völdum, var Noske sendur til
Kielborgar til að lægja óeirðir þær, sem par vóru og
tókst honum pað vel. En pegar Spartacus-flokkurinn
efndi til gagnbyitingar, var hann gerður landvarnar-
ráðherra, eða yfirmaður pýzka varðliðsins, og bældi
niður uppreisnina með harðri hendi. Varð pá ekki
hjá pví komist að beita vopnum og láta kné fylgja
kviði.
Noske tókst að brjóta Spartacus-flokkinn á bak
aftur, en sá sigur var dýru blóði keyptur, enda hefir
Noske sætt hinum sárustu bituryrðum fjandmanna
sinna, en vinir lians hefja hann til skýja og líkja
íionum við mestu stórmenni sögunnar, vegna fram-
úrskarandi preks, staðfestu og hugrekkis, sem hann
hafi sýnt, er hann frelsaði Pýzkaland undan ofríki
Spartacus-flokksins.
Lenin
aðalforingi Bolsevíka í Rússlandi heitir réttu nafni
Vladimir Ilitsh Uljanoff, en Lenins-nafnið er dulnefni,
er hann hefir tekið sér á útlegðarárum sínum. Pað
er næsta örðugt að fá af honum sannar lýsingar, pví
að blöðum og tímaritum ber ekki vel saman í frá-
sögnum um hann, pótt flestöll kveði yfir honum
punga dóma, sem vonlegt er, par sem rnestar sögur
fara af allskonar liryðjuverkum, ránurn og hrann-
morðum, sem framin eru undir handarjaðri hans,
og öllu skelt á hann, pótt óvíst sé, að hve miklu
leyti undan hans rifjum er runnið eða hann fær við
(5)