Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Blaðsíða 47
Víst má kalla hann ofstækismann, en hann er pó í
aðra röndina gætnari en flestir ofstækismenn og á
sér þegar mikla sögu. Fjarri sanni væri að kalla
Lenin ástúðlegan eða hugþekkan í skapferli; hann er
kaldrifjaður, hlífðarlaus og vorkunnarlaus og lætur
sér ekki fyrir brjósti brenna góða hluti né illa þegar
um það er að gera að koma Bolsevíkastefnunni fram
i öllum löndum, svo sem hann hefir ásett sér.
Annars er það sannast að segja um Lcnin, að
harðla erfitt er að kynnast honum. Hann heíir árum
saman verið sveiptur einhverjum huliðshjálmi, sem
mun stafa meir af skapferli hans heldur en af stjórn-
mála-orsökum. Er það fátítt, að heimurinn viti svo
lítil deili á jafn-umsvifamiklum manni, sem engu
minni ótti stendur af öllum heimi, en af Atla Húna-
konungi á þjóðflutningatímunum. Hann á örfáa vini
utan hins fámenna flokks lærisveina sinna og dýrk-
enda er þekki hann, og þeir eru sagðir hlutfallslega
fáir á Rússlandi, sem nokkru sinni hafa séð hann.
Leon Davidovits Trotzki
annar nafnkunnasti foringi Bolsevíka í Rússlandi er
af Gyðingaættum og heitir réttu nafni Leiba Bron-
stein, en ber gerfinafn svo sem títt er í Rússlandi um
marga byltingamenn, sem komist hafa i útlegð og
farið landflótta. Ilann er fæddur árið 1877 í Ghetto í
héraðinu Kherson. Faðir hans var lyfsali. Varð lieim-
kynni hans fyrir ofsóknum í æsku hans og kviknaði
því snemma hatur hans til stjórnarinnar og mann-
félagsskipunarinnar. Hann gekk í skóla og tókst að
fá inngöngu í háskólann í Odessa, er hann var 22ja
ára að aldri, en það var ekki auðsótt, þvi að þar við
skólann gilti sú skipan sem við aðra rússneska há-
skóla, að einungis einn nemandi af hundraði mátti
vera Gyðingur. Honum svíður hlutdrægnin, sem beitt
er gegn þjóðbræðrum hans og gerist byltingamaður.
Skólaveran varð skammvinn; var hann dæmdur til
(9)