Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Blaðsíða 73
hafði á réttu að standa, lét Lord Northcliffe eigi
undan fyrr en stofnað var sérstakt ráðherraembætti
til pess að sjá hernum fyrir nægum skotfærum.
Réðst pað vel, pvi að starfann tók að sér Mr. Lloyd
George, sem nú er forsætisráðherra, en hann pótti
allra manna duglegastur í ófriðnum.
Nú er sannleikurinn uppvís orðinn í pessu skot-
færamáli, pví að í sumar gaf Lord French, aðalhers-
liöfðingi Breta, út bók um ófriðinn og staðfestir par
alt sem Northcliffe’s-blöðin höfðu sagt um petta efni.
Hefir Lord Northcliffe par með fengið fulla uppreist
fyrir pann dóm, er hann poldi að ósekju 1915.
Pessi sama deila leiddi til stjórnarskifta 1915, eða
að Mr. Asquith varð að taka menn úr öllum flokkum
í ráðuneyti sitt.
Það var lengi ætlan brezku stjórnarinnar að afla
sér nægilega margra hermanna með sjálfboðum. Lord
Northcliffe taldi petta seinlega, ranga og rangláta að-
ferð, sem kæmi mjög misjafnt niður á mönnum.
Hætti liann ekki fyrr en stjórnin varð að láta undan
og setja lög um herskyldu.
Það vita auðvitað allir, að Mr. Asquith vildi vinna
sigur í ófriðnum, en mótstöðumenn hans telja pann
mun á honum og Lord Northcliffe, að hinn fyrrnefndi
hafi ætlað að vinna sigur fyrirhafnarlaust, í stað pess
að Lord Northcliffe haíl séð strax, að til pess pyrfti
Bretar að leggja mikið á sig, enda gerði hann aldrei
tilraun til pess að leyna pjóðina pví.
Samstej’pustjórn Asquitbs átti litlum vinsældum að
fagna í Northcliffe’s-blöðunum og pangað til vóru
pau að, að liún féll. Hafði Lord Northcliffe borið
Mr. Asquith pungum sökum og kent honum um
marga hrakför Breta, sem eigi parf hér að telja. Þá
tók Mr. Lloyd George við. Þótt Lord Northcliffe
styddi hann, var pað ekki í blindni. Blöð hans
áskildu sér rétt til gagnrýni. Þau vóru hlífðarlaus er
á prekleysi bryddi og hæflleika skorti. Með illindum
(35)