Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Blaðsíða 77
það er eyðslusemi á fé ríkisins. Telur hann stjórn-
ina seinvirka að losa sig við ýmis útgjöld, er stafi
af ófriðnum. Er mesti sægur hermanna og annarra
embættismanna frá ófriðnum enn á fullum mála,
sem blöðin telja gersamlega óþarft.
► Um langt skeið hefir daglega birzt á ritstjórnar-
síðunni í Daily Mail þessi skýrsla:
Útgjöld ríkisins á dag £ 4,440,000
Tekjur ríkisins á dag £ 2,335,200
Tekjuhalli á dag £ 2,104,800
Þykir blaðinu þetta óefnilegt, sem vonlegt er, án
þess þó, að hér sé staður til þess að leggja dóm á
deilumál þeirra Lord Northclifi'es og Mr. Lloyd
Georges. Það er þó víst, að stjórnin hefir beðið
margan ósigur í aukakosningum að undanförnu, enda
hafa Northcliffes-blöðin ekki spilt því.
Pó að Lord Northcliffe hafi löngum haft mest af-
11 skifli af málum Breta heima fyrir, er þó langt frá,
að sjóndeildarhringur hans sé eigi stærri. Hann hefir
ferðast um flest ríki Bretakonungs og blöð hans
hafa látið máleini þeirra allra til sín taka.
■* Peir vóru vinir Játvarður sjöundi og Lord North-
clille og mun þar hafa miklu umráðið víðtæk áhrif
og afskifti konungs af utanríkismálum. Var það
áhugamál beggja að tryggja vináttu við Frakka og
vóru þeir samhentir þar. Sæmdi Játvarður hann
lávarðstign fyrir starfsemina. Síðar er Lord North-
clilfe orðinn Vicecount (varagreifi) að nafnbót.
Athafnir Lord Northcliffe’s til þessa hafa sýnt það,
að hann hefir mörg viðfangsefni. Blöð hans höfðu
nægilegt verkefni fyrir ófriðinn, alveg eins og á með-
k an á styrjöldinni stóð. Pað er litlum efa undirorp-
ið, að hann eigi enn eftir að koma við sögu heims-
ins, meðan lionum endist aldur til.
(39)