Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1920, Blaðsíða 130
*28. Porsteinn Ingólfsson, 264 smálestir. Eigandi hf.
Haukur. Iíeypti frá Englandi gamalt 1916 og seldi
»bandamönnum« 1917.
29. Vinland, c. 300 smálestir. Eigandi hf. Geir Thor-
steinsson & Co. Smíöað í Hollandi og kom til íslands
eftir mikið umstang í marz 1919.
30. Egill Skallagrímsson, c. 300 smálestir. Eigandi hf.
Kveldúlfur. Kom í marz 1919.
31. Gglfi, 346 smálestir. Hf. Defensor lét smíða i
í Pýzkalandi og fekk til íslands 1. ágúst 1919.
Hér að ofan eru skráð öll þau botnvörpuskip, sem
talið er, aö íslendingar hafi eignast. Eru pau talin í
þeirri röð, sem pau hafa komið hingað. Eins og skrá-
in ber með sér, eru nú að eins 12 þeirra i eigu ís-
lendinga, en 19 hafa gengið peim úr greipum með
ýmsu móti; fjögur hafa strandað hér við land, tiu
vóru seld bandamönnum árið 1917, tvö hafa veriö
seld öðrum erlendis og prjú hafa sokkið, par af tvö
í styrjöldinni.
Nú hafa verið stofnuð nokkur ný botnvörpuútgerð-
arfélög ogeiga flest þeirra skip í smíðum, annaðhvort
í Englandi eða Pýzkalandi. Sum eldri félögin eiga
og skip í smíðum. Er von ekki allfárra nýrra skipa
hingað í vetur og á næsta ári, svo að vel mun verða
unnið upp það skarð, sem varð í flotann við söluna
til »bandamanna« 1917.
Verölagsskrái' 1919—1920.
(Áíjrip).
Hér fer á eftir yflrlit yfir verðlagsskrár pær, sem
gerðar vóru haustið 1918 og gilda frá 16. maímán-
aðar 1919 til jafnlengdar 1920. Er hér tekið með-
altal af verðlagi hverrar vöru í öllum verðlagsskrán-
um, ennfremur hæsta og lægsta verð á hverri vöru
og skýrt frá i hverjum verðlagsskrám pað kemur fyrir.
(92)