Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1940, Blaðsíða 101
(Framh. frá 2. kápusíðu)
en hér skal aðeins minnzt á Árbók íslands, yfirlit um
helztu viðburði innanlands. Er hvergi hægara að finna, hve-
nær ýmsir atburðir hafa skeð og frásagnir um þá en í ár-
bókinni, og er Almanakið því næsta ómissandi eign hverj-
um manni.
Stjórn félagsins er ljóst, að með útgáfu skemmtilegra
og nytsamra bóka vinnur félagið þjóðnjdjaverk. En til
þess að geta beitt sér öfluglega í starfi sínu þarf það að
njóta stuðnings sem flestra þeirra manna, er menntun
unna og bókavinir eru. Pess vegna hefir stjórnin ákveðið, að
gefa þeim mönnum, sem af einhverjum ástæðum hafa
enn ekki gerzt meðlimir félagsins, sérstök kostakjör, ef
þeir ganga nú í féiagið og styrkja það eftirleiðis.
Nýjum félagsmönnum er hér með gefinn kostur á því
að eignast allar bækur, sem Þjóðvinafélagið hefir gefið
út 1919—1939. 21 árgang af Andvara og Almanaki, allt
sem út er komið af Bókasafni félagsins, 9 bindi alls,
Jón Sigurðsson, 5 bindi aiis, Sjálfstæði ísiands 1809, eftir
Helga P. Briem, Bréf og ritgerðir eftir Stephan G. Step-
hansson og Ornefni í Vestmanneyjum eftir Þorkel Jó-
hannesson, fyrir einar 80 kr., að viðbættu félag'sgjaidinu
fyrir þetta ár, 1939, eða 90 kr. alls.
I’essar bækur eru alls um 780 arkir, og er þetta svo
einstakt tælsifæri fyrir bókavini, að slíks munu fá dæmi
eða engin. Ef þér skylduð eiga eitthvað af þeim bókum,
sem hér ræðir um, og kærðuð yður því ekki um þær allar,
dregst andvirði þeirra frá þeirri upphæð, er nefnd var,
að réttri tiltölu og eftir samkomulagi.
Bækurnar verða sendar beint frá félaginu gegn fyrir-
framgreiðslu eða gcgn póstkröfu.
Ef þér vilduð ennfremur eignast eitthvað af öðrum for-
lagsbókum félagsins, skuluð þér sæta um það hinum beztu
kjörum.
Árgjald félagsins er 10 kr. En verðmæti ársbókanna
hefir hin síðari ár farið langt fram úr þeirri upphæð, og'
hefir félaginu því að eins verið þetta kleift, að það heíir
notið lítils háttar styrks frá Alþingi og trausts fylgis margra
ágætra félagsmanna.
En með vaxandi fjölda félagsmanna œtti það að vera
belur tryggt, að félagið geti haldið áfram að vera bezta
og mildlvirkasta bókaútgáfufélag landsins.
Stuðlið að þessu. Gangið í félag vort og notið ijður
bezlu bókakaupin.
Hið íslenzka þjóðvinafélag, pósthólf 313, Rvík.