Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Page 15

Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Page 15
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 2011 15 elSa S igr ÍÐUr JÓnSdÓtt i r missa sjónar á höfuðtilgangi þess verkefnis sem kerfið snýst um. Auðvitað verður að hafa viðmið og markmið en matskerfi má ekki taka völdin. Ég hef áhyggjur af því að einföld afkastahvetjandi kerfi fái óþarflega mikil völd í skólastarfi, hvort heldur það eru einkunnakerfi eða launakerfi. Kerfi sem eru afkastahvetjandi í launum skila ekki endilega betri kennslu. Bónuskerfi í bönkum skiluðu betri afrakstri um hríð en svo kom í ljós að þar stóð margt á brauðfótum; sumt má hugsanlega skrifa á reikning hvatakerfanna. Það verður því miður ávallt togstreita milli einfaldra mælikvarða og mikilvægustu hugsjóna. Breytingar á skólastarfi Þótt þú hafir horft til framtíðar hefur þú einnig lagt rækt við sögu menntunar. Ég er sannfærður um að fátt sé gagnlegra en að rýna í sögu hugmynda og skóla- starfs til þess komast að niðurstöðu um það í hverju menntun felst og hverju ætti að breyta og hverju ekki í skólastarfi; eða til að átta sig á því hvert breytingar muni leiða og hverjar þeirra muni ná fótfestu. Athugun á þróun skólakerfa sýnir ákveðna þætti sem breytast lítið og aðra sem eru breytilegir. Sum gildi og viðfangsefni menntunar breytast ekki öldum saman, annað tekur miklum breytingum frá ári til árs. Í bókinni, Tinkering Toward Utopia, sem er einkar áhugaverð bók um umbætur í menntamálum, velta höfundarnir, Tyack og Cuban, fyrir sér umbótastarfi og skólaþróun. Þeir lýsa merkilegum, bandarískum umbótahugmyndum, hvernig þær risu og hnigu. Sumar þessara hugmynda voru vel hugsaðar og útfærðar, um þær var gott samkomulag og þær voru vel studdar og fjármagnaðar. Þær gengu upp um hríð en gengu svo oftast til baka. Skólaþróunin gengur í bylgjum. Sumir myndu telja þetta svartsýni. Nei, það má alls ekki líta svo á, það verða sífelldar framfarir, en ég tel að skóla- sagan hvetji okkur til að skilja hvaða öfl ráði ferðinni einmitt til þess að meira vinnist. Breytingar ganga aldrei alla leið til baka, ýmislegt lifir. En það er nauðsynlegt að átta sig á hvað gerist þegar hugsjónafólk er að vinna hugmynd brautargengi m.a. hvað vinnur gegn henni. Ekki má vanmeta hve mikið byggist á hugsjónaeldinum sem er oft, kannski alltaf, nauðsynlegur til að koma hugmynd í framkvæmd og það þarf að gera sér grein fyrir hvað þarf til að hún lifi, t.d. að hvaða marki hún sé bundin þeim einstaklingum sem ýta henni úr vör. Lítið dæmi er svokallaður opinn skóli í Fossvogs- skóla á áttunda áratugnum. Þeir sem hrundu honum af stað þekktu hugmyndirnar vel og vissu að hverju þeir stefndu, en smám saman skipti um fólk, nýjabrumið fór af og ákveðin þreyta kom í útfærsluna. Nú er aftur unnið að skyldum hugmyndum. Í stað þess að tala um svartsýni skulum við reyna að skilja að það er ekki nóg að brydda upp á nýjungum heldur er nauðsynlegt að vita hvernig þeim verður tryggt líf, þ.e.a.s. þeim sem eru góðar. Dæmi um málefni sem mér er hugstætt er sú mikla áhersla sem lögð hefur verið á skilning í nánast öllum umbótum á skólastarfi öldum saman. Alltaf hefur átt að snúa frá villu utanbókarnáms til náms sem byggt er á skilningi, en þrátt fyrir síendurteknar tilraunir til að efla skilning hefur námið iðulega orðið að marklausu utanbókarnámi, a.m.k. að hluta. Þeir sem leggja áherslu á skilning í skólastarfi verða
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.