Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Side 33

Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Side 33
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 2011 33 anna magnea HreinSdÓttir og JÓHanna einarSdÓttir í pörum en það gefur möguleika á umræðu um starfið. Þessi samskipti stuðla að þjálfun og umræðu um uppeldi og menntun. Kennararnir líta á sig sem rannsakendur sem skrá starf sitt með börnunum sem einnig er litið á sem rannsakendur. Upphafs- maður starfsaðferða leikskóla sem kenndir eru við Reggio Emilia, Malaguzzi (1993), lagði áherslu á ígrundun og umræðu meðal starfsfólks um starfið sem lykilatriði í uppeldisfræði Reggio Emilia-leikskóla. Sífelld endurmenntun kennara fer fram í daglegu starfi í samræðum við samstarfsfólk þar sem áhersla er lögð á umburðar- lyndi í skoðanaskiptum (P. Cavazzoni munnleg heimild, 26. maí 2008). Skráningar (e. pedagogic documentation) eru mikilvægur þáttur í daglegu starfi. Verkefni barnanna og vangaveltur eru skráðar með ýmsum hætti og kennararnir nýta upp- lýsingarnar til að undirbúa starfið með börnunum (Kennedy, 1999). Ferlið við skrán- inguna er ekki einungis fólgið í tæknilegri aðferð heldur enn frekar í viðhorfi til starfsins og til barna (D. Lanzi munnleg heimild, 27. maí 2008). Athyglin beinist helst að því hvernig börn læra og hvernig þau skipuleggja nám sitt og þekkingu. Skráninguna nota kennarar til að kynnast börnunum betur og því hvernig þekkingarleit þeirra fer fram. Því er skráning gott tæki fyrir kennara til að auka við þekkingu sína á börn- unum og einnig er hún eitt mikilvægasta endur- og símenntunartæki þeirra. Áhugi barnahópsins þróar nám og kennslu í Reggio Emilia-leikskólum og geta viðfangsefni tekið á sig ólíkar myndir og þróast í ýmsar áttir, allt eftir áhugasviði barnanna. Því er námskrá höfð fljótandi (e. emergent curriculum) en það merkir að oft eru ekki sett fyrirfram ákveðin markmið til að vinna eftir heldur er verkefninu leyft að þróast eftir hugmyndum barnanna. Gengið er út frá því að uppbygging þekkingar sé hópvinna þar sem börnin þurfi góðan tíma til að viðra hugmyndir sínar (Rinaldi, 2006). Því er unnið í þemavinnu sem metin er með skráningu. Lögð er áhersla á að umhverfi skólans sé þægilegt og örvandi og er sköpunarferli barnanna í fyrirrúmi. Samkvæmt Reggio Emilia-starfsaðferðunum hafa börn rétt á því að nota margvíslegan efnivið til að koma vitneskju sinni til skila (e. the child as a communicator) og eru hugsanir þeirra og vitneskja gerð sýnileg á ýmsan hátt. Hönnun og notkun rýmis á að hvetja til samskipta og tjáningar og er litið á umhverfið sem þriðja kennarann (e. the environment as the third teacher) ásamt leikskólakennaranum og barnahópnum. Framlag foreldra er álitið lykilatriði í leikskólum sem starfa eftir Reggio Emilia- aðferðunum og tekur það á sig margar myndir. Foreldrar eru virkir þátttakendur í námi barna sinna og hjálpast að við að huga að velferð allra barna í leikskólanum (e. the parents as partners). Hugmyndir þær sem foreldrar koma á framfæri í leikskól- anum eru mikils metnar og eins þau skoðanaskipti og umræður sem fram fara milli foreldra og kennara og eru til þess fallnar að þróa nýjar aðferðir við nám. Mikilvægt er talið að framlag foreldra breyti starfinu og hafi áhrif (C. Giudici munnleg heimild, 30. maí 2008). Kennarar líta ekki á framlag foreldra sem ógn heldur sem góða viðbót við leikskólastarfið. Því er lögð áhersla á að foreldrar og starfsfólk gefi sér tíma til samræðna þegar komið er með börnin og þau sótt og þau tækifæri sem gefast eru nýtt til samráðs. Tenging leikskólans við samfélagið kemur þannig í veg fyrir að leik- skólinn einangrist.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.