Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Page 42

Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Page 42
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 201142 ÓlÍKar áHerSlUr Í leiKSKÓlaStarfi Tekið er fram að allir starfsmenn eigi að þekkja vinnulýsingarnar og framfylgja þeim en að fólk þurfi hins vegar ekki alltaf að vera þeim sammála. Vinnubrögðin þurfa að vera þeim „töm“ og eiga starfsmenn að láta leikskólastjórann „þjálfa“ sig. Einnig er starfsfólk hvatt til að vera frjótt í hugsun og skapandi innan rammans til að ná „hámarksárangri“ (Margrét Pála Ólafsdóttir, 1999, bls. 11). Starfsfólk sem tók þátt í rýnihópunum var ánægt með fyrirkomulagið og fannst gott að starfa innan fyrirfram ákveðins ramma sem veitti því öryggi. Því fannst gott að vita til hvers var ætlast af því og vissi að hverju það gekk þegar það réð sig til vinnu í leikskóla sem starfar sam- kvæmt Hjallastefnunni. Umhverfi leikskólans, búnaður og leikefni Starfsaðferðir leikskólanna settu mark sitt á umhverfi þeirra og mátti merkja tölu- verðan mun á umhverfinu eftir því hvaða aðferð var starfað eftir. Þeir leikskólar sem störfuðu samkvæmt aðferðum Reggio Emilia lögðu áherslu á fallegt umhverfi þar sem sköpun barnanna var í fyrirrúmi og fékk að njóta sín. Í skólanámskrá leikskólans Kletts kom fram að lögð væri sérstök áhersla á „skapandi starf þar sem tekið er tillit til löngunar barnsins og því búinn skapandi efniviður og aðstæður í máli og myndíð, til leikja sem og í öðru starfi“ (skólanámskrá Kletts). Þannig telur starfsfólk leikskólans Kletts að barnið „verði skapandi og frjór einstaklingur með hæfni til að velja og hafna og takast á við formlegra nám síðar“ (skólanámskrá Kletts). Sömu áherslur mátti sjá í skólanámskrá Gullkistunnar. Fjölbreytt framboð af efniviði til sköpunar og úrval leik- fanga var í þeim leikskólum sem störfuðu eftir hugmyndafræði Reggio Emilia. Einnig var safn barnabóka í báðum leikskólunum. Á leikvöllum leikskólanna voru leiktæki og leikföng. Þeir leikskólar sem störfuðu samkvæmt Hjallastefnunni lögðu áherslu á einfalt og látlaust umhverfi og voru veggir leikskólanna auðir. Sá efniviður sem í boði var til leikja telst til „opins“ efniviðar og var heimagerður leir, vatn, kubbar og litir, málning og skæri. Reglur voru um það hvaða efniviður skyldi vera á hverju svæði sem var vel skilgreint. Ekki var um spil, púsl eða áhöld til hlutverkjaleikja að ræða. Börnin höfðu ekki heldur aðgang að bókum. Einn leikskólakennari á Hóli hafði þetta að segja um efniviðinn: Þetta eykur ímyndunaraflið, þegar þau eru að leika með kubba þá breytast þeir í hitt og þetta, sléttujárn eða þau búa til það sem þeim dettur í hug úr púðum eða kubbum og svo náttúrulega fá þau aukaefnivið. Hólf og örvar á gólfum leikskólanna gáfu til kynna að hegðun barnanna væri stýrt. Hvert barn átti sitt hólf á gólfinu sem var merkt því og áttu börnin að setjast í hólfið í samverustundum. Örvar á gólfinu bentu í þá átt sem börnin áttu að ganga. Sam- kvæmt handbók Hjallastefnunnar á umhverfið „að vera merkt þannig að öllum sé ljóst hvað á að vera hvar og hvað gerist hvar“ (Margrét Pála Ólafsdóttir, 1999, bls. 24). Í öðrum leikskólanum voru hefðbundin leiktæki á útisvæði en ekki hinum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.