Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Qupperneq 55
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 2011 55
BrynJar ÓlafSSon og gÍSli ÞorSteinSSon
menningarinnar. Þetta þýðir að markmiðið verður að þróa skynbragð barnsins á
form og fegurð og efla verklagni þess. Viðskiptabundin sjónarmið handverksmanns-
ins verður að sniðganga. Í handverksskólanum hlýtur tilgangurinn að vera bundinn
hagkvæmnisjónarmiðum mismunandi iðngreina til þess að tryggja viðskipti og arð
af sölu afurða. Fyrra sjónarmiðið tengist uppeldiskenningu Pestalozzis og Fröbels og
ætti ekki að vera hægt að afneita mikilvægi hennar. (Kananoja, 1999, íslensk þýðing
greinarhöfunda)
Kennsluaðferðir Salomons í uppeldismiðaðri smíði voru betur skipulagðar en
aðferðir Cygnæusar (Bennett, 1926). Barnið varð miðdepillinn í kennslufræði Salomons
og stuðningur við heildstæða þróun allra hæfileika nemandans í fyrirrúmi. Hann
undirstrikaði mikilvægi þess að kenna grundvallarþekkingu og færni í upphafi náms-
ins til þess að gera frekari þróun einstaklingsins mögulega, sem myndi svo seinna
gera hann að góðum borgara (Moreno Herrera, 1999; sjá mynd 2).
Mynd 2. Kennslufræðilíkan Ottos Salomon fyrir uppeldismiðað handverk í skólastarfi
(unnið út frá skipuriti Lasaros Moreno Herrera frá 1998 (Moreno Herrera, 1998))
Vinnuferlar voru mikilvægir þættir í kennsluaðferðum Salomons. Mikilvægt var að
greina þá og nota þegar kennari gaf nemendunum fyrirmæli og leiðbeiningar. Þrjú
grundvallaratriði einkenndu aðferðir hans: (1) Smíði nytsamra hluta, (2) greining
vinnuferla og (3) kennsluaðferðin (Bennett, 1926, bls. 64). Kennsluaðferðir Salomons
byggðust á eftirfarandi markmiðum (Bennett, 1926, bls. 64):
1. Að stuðla að vinnugleði og almennri vinnusemi.
2. Að skapa virðingu fyrir erfiðri og vandaðri líkamlegri vinnu.
3. Að þroska sjálfstæði og hæfileikann til að taka eigin ákvarðanir.
4. Að veita þjálfun sem byggðist á reglusemi, nákvæmni, hreinlæti og aðgætni.
5. Að þjálfa augað til að sjá nákvæmlega og læra að meta gildi formfegurðar.
6. Að þroska snertiskyn og verkfærni.
7. Að stuðla að einbeitingu, iðjusemi, stöðugleika og þolinmæði.
8. Að stuðla að auknum líkamlegum styrk.
grundvallarlögmál
Kennslufræðilegar reglur
um smíðakennslu
afurðin
Hagnýtir hlutir með
persónulegu gildi
markmið
menntandi og hagnýt
ferillinn
frá hinu auðvelda til hins
erfiða og frá hinu einfalda
til hins flókna
aðferðir
röð verkefna.
einstaklings- og hópkennsla.
kennarinn
menntamaður, ekki
iðnmenntaður leiðbeinandi
nemendurnir
Hinir fullþróuðu og
gagnlegu borgarar