Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Síða 56
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 201156
HÖnnUn og SmÍÐi
9. Að ná leikni í meðferð verkfæra.
10. Að vinna nákvæmt verk og búa til nytsamar afurðir.
(Íslensk þýðing greinarhöfunda)
Salomon stofnaði uppeldismiðaðan handverksskóla fyrir verðandi kennara í Nääs í
Suður-Svíþjóð sem varð síðan að alþjóðlegri þjálfunarmiðstöð fyrir smíðakennara árið
1875 (Bennett, 1926; Thorbjornsson, 1990). Fimm íslenskir kennarar sóttu námskeið í
skóla Salomons á árunum 1875 til 1917 (Bennett, 1937). Árið 1904 gaf Salomon ásamt
fleirum út ritið Handbók fyrir kennara í uppeldismiðaðri smíði (Kortfattad handledning i
pedagogisk snickerislöjd) sem ætlað var kennurum er vildu hefja slíka kennslu (Salomon
o.fl., 1904). Í ritinu eru allar nauðsynlegar upplýsingar og útskýringar til að kennari
geti byrjað að kenna uppeldismiðaða smíði. Þar skilgreina þeir t.d. eiginleika mis-
munandi viðartegunda og lýsa verkfæranotkun. Þeir lýsa einnig æfingum og sýna
dæmi um verkefni (Jón Þórarinsson, 1891; Salomon fl., 1904).
Kennslumiðstöð Salomons í Nääs öðlaðist smám saman alþjóðlega viðurkenningu.
Þegar fyrri heimsstyrjöldin braust út höfðu meira en 1500 kennarar frá yfir fjörutíu
löndum tekið þátt í námskeiðum í uppeldismiðaðri smíði í Nääs. Í nokkra áratugi
þróuðust kennsluaðferðir Salomons og urðu síðan að alþjóðlegri menntahreyfingu
slöjdsins (Thorbjornsson, 1990). Margir erlendir stuðningsmenn stefnunnar kynntu
hana með fyrirlestrahaldi, skrifuðu blaðagreinar og bækur, stofnuðu hreyfingar og
kenndu uppeldismiðaða smíði í skólum ólíkra landa. Uppeldismiðuð smíði var einnig
kynnt á nokkrum heimssýningum (The Danish slöjd guide, 1893; Thorbjornsson, 1990).
Áhrif Cygnæusar og Salomons náðu einnig til Ameríku (Bennett, 1937) þegar Lars-
son, sem sótt hafði skóla Salomons, fluttist til Bandaríkjanna og stofnaði slöjd-skóla í
Boston árið 1888. Þessi skóli er talinn hafa markað stærsta sporið í þróun handmennta-
og tæknimenntakennslu í Ameríku (Phillips, 1985).
Kenningar menntafrömuðarins Deweys voru grundvallaðar á alþjóðlegri þróun í
menntun þess tíma. Hugmyndafræði slöjd-hreyfingarinnar var þar áhrifamikill þáttur
(Olson, 1963). Dewey átti m.a. bréfasamskipti við Salomon og varð fyrir áhrifum af
hugmyndum hans (Stowe, 2008). Kenningar Deweys höfðu síðan áhrif á mótun nám-
skráa í handmenntakennslu á tuttugustu öld en ekki er ólíklegt að hann hafi þróað
þessar hugmyndir sínar undir áhrifum frá Salomon (Kananoja, 1989).
aksEl mikkElsEn og danska skólasmíðin
Aksel Mikkelsen (1849–1929) kom á fót uppeldismiðaðri smíði sem almennri kennslu-
grein í dönskum skólum eftir að hafa tekið þátt í námskeiði hjá Salomon í Nääs. Um
svipað leyti stofnaði Mikkelsen handverksskóla sinn (1883) í Kaupmannahöfn og
byrjaði að mennta grunnskólakennara til að kenna skólasmíði í Danmörku árið 1885
(Kantola o.fl., 1999). Mikkelsen þróaði sitt eigið kennslulíkan sem þekkt er undir
heitinu dönsk skólasmíði en ólíkt því sem gilti hjá Salomon var líkan Mikkelsens ekki
einstaklingsmiðað heldur byggt á bekkjarkennslu (Kananoja, 1989). Mikkelsen þróaði
smágerða hefilbekki og verkfæri fyrir börn, bæði vinstri og hægri handar. Í dönsku
skólasmíðinni var sögin notuð sem aðalverkfærið og allir bekkir byrjuðu á að smíða